Leita í fréttum mbl.is

Spennandi önnur umferđ í U-2000 mótinu

IMG_8792-1024x683

Harđfiskur og símagambítur var međal ţess sem kom viđ sögu í rafmagnađri annari umferđ U-2000 mótsins sem fór fram á miđvikudagskvöld. Dýrđarinnar ilmur frá veigum ţeim er á bođstólum voru í Birnu-kaffi steig innum skynfćri ţeirra ríflega fjörutíu skáksála sem stigu inn í Skákhöllina úr hinu dimma myrkri hins íslenska veturs.

Á fyrsta borđi stýrđi Haraldur Baldursson (1957) svörtu mönnunum gegn Ađalsteini Thorarensen (1714) og líkt og í fyrstu umferđ virtist Haraldur sigla sigrinum nokkuđ örugglega og án mikilla láta í höfn. Af fyrstu tveimur umferđunum ađ dćma virđist ljóst ađ sigurvegari mótsins í fyrra verđur mjög erfiđur viđ ađ eiga og klárt ađ keppendur ţurfa ađ beita kćnskubrögđum og jafnvel fantabrögđum til ađ leggja Harald.

Á öđru borđi virtist Jon Olav Fivelstad (1918) eiga alla vinningsmöguleika gegn hinum beinskeytta Friđgeiri Hólm (1739) í endatafli ţar sem sá Jon hafđi hrók og tvö peđ fyrir tvo menn. Eitthvađ snérust ţó vopnin í höndum hans og var Friđgeir sjálfsagt kominn međ unna stöđu um tíma en svo fór ađ sćst var á skiptan hlut. Á ţriđja borđi lagđi síđan hinn ungi Dawid Kolka (1907) rektorinn sjálfan, Lárus H. Bjarnason (1594).

Ţó svo ađ fátt vćri um óvćnt úrslit er ţađ engan vegin til marks um spennustigiđ sem var í loftinu og til marks um ţađ hve jafnar og spennandi viđureignirnar voru má nefna ţađ ađ klukkan ellefu um kvöldiđ var meira en ţriđjungi skákanna enn ólokiđ. Síđasti bardaganum lauk ekki fyrr en ađfaranótt fimmtudagsins og virtist öđrum keppandanum umhugađ um hag skákstjórans ţví hann kallađi til hans hátt og snjallt hvort hann vćri ekki orđinn ţreyttur. Tók mótherjinn ţessu međ jafnađargeđi en benti ţó kurteisislega á ađ hann ćtti einungis 30 sekúndur eftir á klukkunni!

Í einni viđureign varđ keppandi fyrir ţví óláni ađ sími hans hringdi og ţví lítiđ annađ ađ gera en ađ dćma tap vegna hins svokallađa símagambíts. Er ţví rétt ađ ítreka ţau tilmćli til keppenda ađ skilja einfaldlega allan slíkan rafeindabúnađ eftir ţegar taflmennska í mótum er annarsvegar.

Ţegar skammt var liđiđ á umferđ kvöldsins gaus upp hin sérkennilegasta lykt sem virtist engan veginn geta komiđ frá hinu rómađa Birnu-kaffi. Fóru fljótlega ađ berast ábendingar um ţetta og viđ nánari eftirgrennslan kom í ljós ađ einn keppenda var einfaldlega ađ gćđa sér á dýrindis harđfiski sem er auđvitađ allra meina bót. Brást hlutađeigandi hinn besti viđ beiđni um ađ fara rólega í fiskinn og hafa pokann eins mikiđ lokađan og mögulegt vćri.

Ţađ liggur fyrir ađ í afar athyglisvert og spennandi mót stefnir en ţriđja umferđ verđur tefld nćstkomandi miđvikudagskvöld og ađ venju verđa tímavélarnar rćstar klukkan 19.30. Mćtast ţá m.a. Haraldur og Hilmar Ţorsteinsson (1800), Dawid og Veronika Steinunn Magnúsdóttir (1778), sem og Héđinn Briem (1588) og Kjartan Ingvarsson.

Skákir mótsins eru ađgengilegar hér ađ neđan en ţađ er sem fyrr Dađi Ómarsson sem slćr ţćr inn hratt og örugglega. Ţá má einnig kíkja á myndir frá mótinu og vert er ađ minna á ađ Birnu-kafffi verđur opiđ ţar sem í bođi er kaffi og ađrar ljúffengar veitingar fyrir keppendur og áhorfendur.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 87
  • Frá upphafi: 8778273

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 71
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband