Leita í fréttum mbl.is

Skákţáttur Morgunblađsins: Hjörvar og Bragi hafa unniđ allar skákir sínar í Bakú

ICELAND_Maria EmelianovaÍslensku liđin á Ólympíuskákmótinu í Bakú í Aserbaídsjan hafa byrjađ af feikna krafti og í opna flokknum eru Íslendingar međ átta stig af tíu mögulegum eftir fimm umferđir og sitja í 7.-25. sćti ásamt ýmsum stórţjóđum skákarinnar. Hjörvar Steinn Grétarsson og Bragi Ţorfinnsson hafa unniđ allar skákir sínar, Hjörvar hefur teflt í öllum fimm umferđunum en Bragi hefur hvílt einu sinni. Leita ţarf aftur til Ólympíumótsins í Buenos Aires 1939 til ađ finna viđlíka sigurgöngu en ţá vann Jón Guđmundssonar allar tíu skákir sínar í úrslitakeppninni en Íslendingar unnu Copa Argentina, sigurlaun b-riđils. Fróđleiksfúsum er bent á ágćta vefsíđu, olimpbase.org, ţar sem rakin eru úrslit og skákir Ólympíumótanna frá upphafi.

Í gćr var frídagur en sjötta umferđ fer fram í dag og ţá mćta Íslendingar Tyrkjum í opna flokknum en í kvennaflokknum eru mótherjarnir Perú. Kvennaliđiđ vann Englendinga í 3. umferđ og Moldóvíu í 4. umferđ. Međ miklu harđfylgi tókst Lenku Ptacnikovu og Hallgerđi Helgu ađ knýja fram sigur í báđum skákum sínum af miklu harđfylgi. Taflmennska Hallgerđar í lokakafla skákarinnar viđ England var afburđagóđ. Í miklu tímahraki tókst Lenku ađ snúa töpuđu tafli viđ og sigra í viđureigninni viđ Moldóvíu. Vinningshlutfall hennar er 80%. Ţó ađ smávegis bakslag hafi komiđ hjá íslensku kvennasveitinni er frammistađan góđ.

Hollendingar, Úkraínumenn og Indverjar leiđa opna flokkinn međ 10 stig en mikla athygli vakti er Úkraínumenn unnu Rússa, 2 ˝ : 1 ˝ í 4. umferđ.

Í kvennaflokki eru Rússar og Úkraínumenn í efsta sćti međ 10 stig. Íslenska sveitin er í 44. –58. sćti međ sex stig.

Hinn ágćti međbyr sem liđ Íslands í opna flokknum hefur fengiđ gefur vonir um hátt sćti en vel heppnađur lokasprettur er vitaskuld forsenda ţess. Sveitin hefur einu sinni teflt „upp fyrir sig“ en tapađi ţá 1:3 fyrir Tékkum. Ţar vann Hjörvar Steinn hinn öfluga stórmeistara Laznicka á sannfćrandi hátt:

Ól 2016; 2. umferđ:

Hjörvar Steinn Grétarsson – Viktor Laznicka

Móttekiđ drottningarbragđ

1. d4 d5 2. c4 dxc4 3. e4 Rf6 4. e5 Rd5 5. Bxc4 Rb6 6. Bd3 Rc6 7. Re2 Bg4 8. Be3 Dd7 9. Rbc3 O-O-O 10. a4!?

Peđsfórn sem Hjörvar hafđi greinilega skođađ fyrir skákina ţar sem svipuđ stađa hafđi komiđ fyrir áđur í skákum Tékkans. Atburđarásin í nćstu leikjum er ţvinguđ.

10. ... Rxe5 11. Bb5 c6 12. dxe5 Dxd1 13. Rxd1 cxb5 14. axb5 Kb8 15. e6! (sjá stöđumynd).

G9D106844Ţessi skemmtilegi peđsleikur sem er dćmigerđur fyrir hinn dýnamíska stíl Hjörvars virđist hafa slegiđ Laznicka út af laginu. Hann á ţó ađ geta varist.

15. ... Bxe6 16. Bf4+ Kc8 17. Hc1+ Kd7 18. Hc7+ Ke8 19. Hxb7 g5!?

A7-peđiđ er í hćttu og falli ţađ er b-peđiđ fariđ ađ ógna. Annar möguleiki var 19. ... Bd5.

20. Bxg5 Hg8 21. Be3 Ha8?

Tapleikurinn. Kannski hefur Laznicka óttast ađ hrókurinn lokađist af eftir 21. ... Hxg2! 22. Rg3 og misst af 22. ... Bd5! Og 22. Rf4 má svara međ 22. ... Bg4! o.s.frv. Jafnvćgi ríkir eftir 22. Hxa7 Rd5.

22. Bxb6 axb6 23. Hxb6 Bc4 24. Rec3 Hg5 25. Re3 Bd3 26. f4 Hc5 27. Kf2 Bg7 28. Hd1

Allir menn hvíts eru komnir á stjá og eftirleikurinn er auđveldur.

28. ... Bxc3 29. Hxd3 Bxb2 30. Kf3 f5 31. Hb7 Hd8 32. Hb3 Bd4 33. b6 Hdc8 34. Hd3 Hd8 35. Hb3 Hdc8 36. Ha7 Hb8 37. b7 Kd7 38. Hd3

– og svartur gafst upp.

Helgi Ólafsson helol@simnet.is

Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 8. september 2016

Skákţćttir Morgunblađsins


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 10
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 103
  • Frá upphafi: 8778401

Annađ

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 87
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband