Leita í fréttum mbl.is

Ísak Orri sigrađi á fyrsta móti Bikarsyrpunnar

20160911_171055-768x605Ísak Orri Karlsson (1148) kom, sá og sigrađi á afar spennandi upphafsmóti Bikarsyrpu TR sem fram fór um liđna helgi. Tefldar voru sjö umferđir og hlaut Ísak 6 vinninga en nćst honum međ 5 vinninga komu Joshua Davíđsson (1411) og Batel Goitom.

Mótiđ einkenndist af mikilli spennu og ţegar kom ađ lokaumferđinni höfđu tveir keppendur 5 vinninga og ađrir tveir 4 vinninga ţannig ađ allt gat gerst enda breyttist stađa keppenda ört ţegar úrslit úr síđustu umferđinni tóku ađ detta inn. Á efsta borđi stýrđi hin unga Batel Goitom hvítu mönnunum gegn Joshua og var ekkert á ţví ađ gefa eftir í baráttunni viđ stigahćsta keppanda mótsins. Örugglega fćrđi hún mennina til á borđinu köflótta, vann snemma liđ og sigldi sigrinum án mikillar hćttu í höfn. Ţar međ var Batel komin í hóp keppenda sem höfđu 5 vinninga og ađ jafntefli gegn Árna Ólafssyni (1156) á öđru borđi myndi duga Ísaki Orra til sigurs í mótinu.

Ísak hafđi hvítt gegn Árna og úr varđ afar jöfn og spennandi orrusta ţar sem hnífjafnt var í liđi og stađan nánast samhverf alveg ţar til Ísak vann peđ og fékk í kjölfariđ vćnlega stöđu í endatafli ţar sem ţeir félagar höfđu sinn hrókinn hvor. Árni varđist hvađ hann gat en ţegar Ísak knúđi fram uppskipti á hrókunum sá Árni sćng sína uppreidda og lagđi niđur vopn. Sem fyrr segir stóđ Ísak Orri ţví uppi sem sigurvegari mótsins, einn međ 6 vinninga, og er sannarlega vel ađ sigrinum kominn. Ţess má til gamans geta ađ Ísak ćtlađi sér ađ taka yfirsetu fyrr í mótinu en eftir góđa byrjun snérist honum hugur og kom sú ákvörđun honum sannarlega til góđa.

Viđ óskum Ísaki til hamingju međ sigurinn og ţökkum keppendum fyrir skemmtilegt mót en afar gefandi er ađ fylgjast krökkunum viđ skákborđin ţví framfarirnar leyna sér ekki, sama hversu langt ţau eru komin. Munum ađ ţađ eru alltaf jákvćđir og lćrdómsríkir punktar sem hćgt er ađ taka úr öllum skákum, og skiptir ţá ekki máli hvort viđ unnum, töpuđum eđa gerđum jafntefli.

Sjáumst á nćsta móti Bikarsyrpunnar sem fer fram fyrstu helgina í nóvember.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 7
  • Sl. sólarhring: 21
  • Sl. viku: 100
  • Frá upphafi: 8778398

Annađ

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 84
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband