Leita í fréttum mbl.is

ÓL: Naumt tap gegn Póllandi - stórsigur á Sri Lanka

 

P1040744

Pólverjar reyndust of stór biti fyrir íslenska liđiđ í opnum flokki er liđin áttust viđ í 10.umferđ Ólympíuskákmótsins í Bakú. Pólverjar unnu 2,5-1,5. Hannes Hlífar Stefánsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Guđmundur Kjartansson gerđu allir jafntefli en Bragi Ţorfinnsson tapađi sinni skák.

P1040759

Í kvennaflokki vann Ísland stórsigur gegn Sri Lanka 3-1. Lenka Ptacnikova, Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir og Hrund Hauksdóttir unnu sínar skákir en Guđlaug Ţorsteinsdóttir tapađi sinni viđureign.

Ţađ stefnir í ćsispennandi baráttu um sigurinn í opnum flokki á milli Bandaríkjanna og Úkraínu. Bćđi liđ unnu nauma sigra í dag og eru nú efst og jöfn fyrir síđustu umferđ međ 18 stig. Norđmenn unnu glćsilegan sigur á einu efnilegasta liđi mótsins, Íran, 3,5-0,5. Magnus Carlsen hefur dregiđ vagninn fyrir Noreg í mótinu og hefur heimsmeistarinn nćlt sér í 7 vinninga í 9 skákum.

P1040732

Í kvennaflokki tók Kína risaskref í átt ađ sigri í mótinu međ ţví ađ leggja Pólland ađ velli nćsta örugglega. Kína hefur hlotiđ 18 stig en nćstu ţjóđir hafa 16 stig.

Síđasta umferđ mótsins verđur tefld á morgun og hefst hún klukkan 7 ađ íslenskum tíma. Skákáhugamenn heima á Íslandi ţurfa ţví ađ stilla vekjaraklukkur sínar til ađ missa ekki af fjörinu. Pörun síđustu umferđar liggur ekki fyrir.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 19
  • Sl. viku: 96
  • Frá upphafi: 8778394

Annađ

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 80
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband