10.9.2016 | 23:53
Hörðuvalla drengir með pálmann í höndunum
Áður en að þriðja umferð hófst voru liðsmenn almennt sammála um það að þetta væri viðureignin sem yrði að vinnast. Andstæðingarnir voru Noregur 1 en þeir eru með hæstu meðalstig allra í mótinu. Norsarar hefðu staðið sig vel í fyrstu tveimur umferðunum og voru tveimur vinningum frá okkur fyrir umferðina. Því var ljóst að um erfiða viðureign væri að ræða.
Viðureignin þróaðist vel fyrir okkur og Vignir og Stephan fengu fljótlega mjög góðar stöður. Sverrir og Arnar virtust vera með allt "undir kontról" en þó var mikil barátta eftir.
Ísland 4 - Noregur I 0
1.borð: Vignir Vatnar - Afras (1852) 1-0
Vignir tefldi byrjunina hratt og af miklu öryggi. Snemma varð ljóst að Vignir væri mun betri skákmaður en Afras og komu nokkrir ónákvæmir leikir hjá Afras í miðtaflinu og refsaði Vignir heldur betur fyrir það, og sigraði örugglega. Úrvinnslan hjá Vigni í þessari skák var framúrskarandi. Skákin var fyrst að klárast og var aðeins lognið á undan storminum fyrir aumingja Norðmennina. Vignir er með fullt hús á mótinu, 3 vinninga af 3!
2.borð : Liam (1653) - Stephan Briem 0-1
Andstæðingur Stephans tefldi Grand-Prix afbrigðið í Sikileyjarvörn en komst þó lítið áfram í byrjuninni, Stephan var vel undirbúinn og fékk góða stöðu mjög snemma. Andstæðingur Stephans lék klaufalega af sér peði snemma í skákinni, og var Stephan þá með yfirburðarstöðu en Liam náði þó að klóra í bakkann og náði að koma sér út í endatafl með mislituðum biskupum en þó átti Stephan nokkur tromp eftir í hendinni, og loksins loksins kom "ýmindunaraflið" frá Stephani sem ég óskaðist eftir í seinasta pistli og kláraði hann skákina einkar glæsilega.
Góður sigur hjá Stephani.
3.borð : Sverrir Hákonarson - Nicholas (1515) 1-0
Sverrir tefldi London system og upp kom jöfn staða sem hafði ekki upp á margt að bjóða. Þegar líða fór á skákina, fór Nicholas að eyða ansi miklum tíma og þá fór Sverrir að pressa á kauða, sem þýddi að hann þurfti að nota allan sinn tíma og að lokum var of mikið af flækjum fyrir Nicholas sem gerði það að verkum að hann féll á tíma. Sverrir er með fullt hús á mótinu, 3 vinninga af 3!
4.borð : Henrik (0) - Arnar Milutin 0-1
Þegar að Arnar Milutin kemst á "run" þá er alveg eins gott að reyna að stoppa flóðhest á ferð (ekki hægt) , drengurinn á það til að taka syrpur þar sem að hann vinnur hverja skákina á fætur annarri. Arnar er að tefla vel á mótinu og geislar af sjálfstrausti enda sést það augljóslega við borðið. Arnar fékk betri stöðu út úr byrjuninni, og betri tíma þar að auki.
Þó svo að Arnar hafi ekki verið neinu liði yfir til að byrja með, þá var Arnar með hartnær strategískt unnið. Veikleikarnir voru miklir hjá hvítum, og um leið og fyrsta peðið féll hjá hvítum þá átti hann enginn svör. Skák Arnars var önnur að klárast og þá var staðan orðin 2-0 fyrir okkar menn og bæði Stephan og Sverrir með góðar stöður og því leit allt út fyrir að toppsætið væri okkar. Arnar Milutin er með fullt hús 3v af 3!
Niðurstaðan varð semsagt glæsilegur 4-0 sigur fyrir okkar menn sem var mun framar vonum, að vinna hæstu sveitina að meðalstigum með mesta mun (4-0) er ótrúlega vel gert hjá drengjunum. Upp er komin sú staða að við þurfum aðeins 3,5 vinning af 8 á morgun til þess að tryggja okkur sigur og eigum við tvær stigalægstu sveitirnar eftir. Eftir fund með foreldrum áðan, var ákveðið að nýta umferðina í fyrramálið til þess að hvíla tvo í liðinu og koma inn með varamennina þá Benedikt og Óskar.
Næst á dagskrá er lið Finna en þeir eru aðeins með hálfan vinning í mótinu. Strákarnir vita þó að sigurinn er ekki enn kominn í höfn, og því var farið snemma í háttinn og byrjað að undirbúa sig andlega fyrir átök morgundagsins. Stefnan er sett á það að við getum mætt alveg pressulausir í seinustu umferðina.
Staðan í Barnaskólamótinu:
1.Hörðuvallaskóli 11/12
2. Svíþjóð 7,5/12
3. Danmörk 6,5/12
Álfhólsskóli 1/2 - Noregur I 3 1/2
Andstæðingar okkar í þriðju umferð voru Noregur I en þeir eru með hæstu meðalstig allra í mótinu. Strákarnir voru ákveðnir að rétta úr kútnum eftir slæmt tap í morgun, enda hafa þeir verið að tefla vel en úrslitin ekki alveg fallið með þeim. Norska liðið er mun eldra og reyndara en okkar lið.
1.borð: Dawid Kolka - August (1936) 1/2
Dawid hafði hvítt gegn Ágústi sem hafði verið að tefla vel í mótinu. Dawid tefldi af miklum krafti og fékk góða stöðu úr byrjuninni. Jafnt og þétt fékk Dawid betra og betra tafl, og að lokum í endataflinu var hann kominn biskup yfir en þó fyrir tvö peð. Ágúst varðist vel eftir að hafa misst manninn en Dawid varð á mistök þegar hann missti sitt eina peð, og því var lokastaðan tveir biskupar á móti einum. Glæsileg skák hjá Dawid engu að síður.
2.borð : Aleksander (1855) - Róbert Luu 1-0
Róbert hafði svart gegn Aleksander. Við áttum von á því að Aleksander myndi tefla 1.c4 en hann kom okkur á óvart og lék 1.e4 í fyrsta leik, lítið við því að gera. Upp kom hefðbundin Skandinavísk staða þar sem hvítur stóð alltaf betur. Í raun og veru var staða Róberts aldrei góð í skákinni, en hann varðist af mikilli hörku og það var ekki auðvelt fyrir hvítan að finna eitthvað rakið þó að staðan liti vel út. Að lokum fann Aleksander leið sem fólst í því að skipta upp í mislitað biskupaendatafl en það skipti þó ekki máli, þar sem hvítur var kominn of langt með frípeðið sitt.
3.borð : Halldór Atli - Odin (1710) 0-1
Halldór Atli hafði hvítt á 3.borði gegn Óðni. Við Halldór Atli ákváðum að tefla eitthvað solid, enda andstæðingurinn mikið stigahærri. Halldór fékk fína stöðu úr byrjuninni og náði að stilla riddörunum sínum á flotta reiti sem "kontróleruðu stöðinni algjörlega" , en í miðtaflinu komu því miður nokkrir ónákvæmir leikir og tapaði Halldór kalli. Eftir það var ekki aftur snúið.
4.borð : Even (1608) - Guðmundur Agnar 1-0
Guðmundur Agnar hafði svart á 4.borði gegn Even. Eins mikið og ég hrósaði Agnari fyrir frumlegar byrjanir í gær þá kom það í bakið á honum tvöfalt jafnvel þrefalt í dag. Agnar ákvað að tefla óhefðbundinn Grunfeld og til þess að gera langa sögu stutta, þá tapaði hann skákinni á innan við hálftíma.
Leiðinlegt og stórt tap 3 1/2 - 1/2 staðreynd en vitað var að þessi dagur yrði alltaf erfiður þar sem við fengum tvær stigahæstu sveitirnar. Ég var þó ánægður með taflmennskuna að mörgu leyti sérstaklega hjá Dawid. Það þýðir lítið að svekkja sig á þessu því við eigum erfiða viðureign í fyrramálið gegn Dönum. Í fyrramálið mun Halldór Atli hvíla og inn í hans stað kemur Atli Mar.
Staðan í Unglingamótinu:
1. Noregur I 9/12
2. Noregur II 7,5/12
3. Danmörk 6/12
4. Svíþjóð 5/12
5. Ísland 4,5/12
Þangað til næst, bestu kveðjur frá Holmenkollen.
Birkir Karl Sigurðsson
Heimasíða mótsins: http://skole2016.nordisksjakk.no/en/
Flokkur: Spil og leikir | Facebook
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 7
- Sl. sólarhring: 21
- Sl. viku: 100
- Frá upphafi: 8778398
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 84
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.