Leita í fréttum mbl.is

Glæsilegt Minningarmót Birnu Norðdahl á Reykhólum: Lenka og Jón L. efst 

Jón L. Árnason og Lenka Ptacnikova, sigurvegarar á Minningarmóti Birnu Norðdahl.
Íslandsmeistarinn Lenka Ptáčníková og stórmeistarinn Jón L. Árnason sigruðu á Minningarmóti Birnu Norðdahl á Reykhólum laugardaginn 20. ágúst. Keppendur komu hvaðanæva af landinu og var mikil stemmning í íþróttahúsinu þar sem mótið fór fram við frábærar aðstæður.

Stórmót. Frábærar aðstæður voru til taflmennsku í íþróttahúsinu á Reykhólum.

Mótið var haldið til að minnast Birnu E. Norðdahl (1919-2004) sem var brautryðjandi í kvennaskák á Íslandi. Birna var bóndi og listakona og fyrsta konan sem sögur fara af að hafi teflt á skákmóti hérlendis, árið 1940. Hún átti frumkvæði og allan heiður af því að íslensk kvennasveit fór í fyrsta skipti á Ólympíuskákmót, í Argentínu 1978.

Íslenskar landsliðskonur í skák voru heiðursgestir á mótinu á Reykhólum, og í þeim hópi voru skákkonur sem tefldu með Birnu á Ólympíumótum 1978 og 1980. Þetta var hluti af upphitun kvennalandsliðsins fyrir Ólympíumótið í Bakú sem hefst eftir hálfa aðra viku.

Tefldar voru 8 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma og voru keppendur 37, þar af fjórir stórmeistarar. Í kvennaflokki urðu Lenka Ptáčníková og Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir jafnar og efstar, en Lenka var hærri á stigum. Guðlaug Þorsteinsdóttir, sem varð fyrst kvenna Íslandsmeistari, árið 1975, hreppti bronsið, en jafnar í 4.-7. sæti urðu Hrund Hauksdóttir, Veronika Steinunn Magnúsdóttir, Áslaug Kristinsdóttir og Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir. Þær Áslaug, Guðlaug og Sigurlaug voru allar í landsliðinu samtíða Birnu, rétt eins og Svana Samúelsdóttir, sem tók núna þátt í skákmóti eftir langt hlé.

Frumherjar. Svana Samúelsdóttir og Sigurlaug R. Frðþjófsdóttir tefldu með Birnu Norðdahl í kvennasveit Íslands á ólympíumótum.

Í karlaflokki urðu Jón L. og Jóhann Hjartarson efstir og jafnir, en Jón var hærri á stigum. Í þriðja sæti varð Hannes Hlífar Stefánsson, sem mun leiða sveit Íslands á Ólympíumótinu í Bakú sem hefst núna í byrjun september.

Veronika Steinunn Magnúsdóttir og Finnur Árnason voru valin best klæddu keppendur mótsins.

 

Hrund og Veronika fengu verðlaun fyrir bestan árangur 20 ára og yngri, og heimamaðurinn Guðjón D. Gunnarsson (betur þekktur sem Dalli) varð efstur skákmanna með 2000 skákstig eða minna.

Birna Norðdahl, nafna og barnabarn Birnu heitinnar ásamt heimamanninum Guðjóni D. Gunnarssyni, sem náði bestum árangri skákmanna með minna en 2000 skákstig,

Vegleg peningaverðlaun voru veitt á mótinu. Verðlaun í kvennaflokki voru ívið hærri en hjá körlunum, og er það algjör nýbreytni á skákmótum. Það var að frumkvæði Finns Árnasonar forstjóra Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum, sem styrkti mótið með verulegu fjárframlagi. Auk þess tefldi Finnur á mótinu, þó að árangur hans þar hafi kannski ekki verið alveg í takti við peningaframlagið.

Stórmeistarar í efstu sætum í karlaflokki. Jóhann Hjartarson, Hannes H. Sefánsson og Jón L. Árnason taka við verðlaunum úr hendi Birnu Norðdahl yngri.

 

Fjölmenni var við setningu mótsins á Reykhólum í dag og ríkti afar góður andi á mótinu. Samhliða fór fram sýning á munum sem tengjast Birnu, bæði listaverk eftir hana og verðlaunagripir hennar af skákmótum, sem og myndir sem tengjast sögu íslenskra skákkvenna.

Hlynur Þór Magnússon sagnfræðingur á Reykhólum, sem átti frumkvæði að Minningarmóti Birnu flytur ávarp við setningu mótsins.

Við setningu mótsins flutti Hlynur Þór Magnússon sagnfræðingur á Reykhólum ávarp, en hann var frumkvöðull að mótinu og skipuleggjandi ásamt Skákfélaginu Hróknum. Setningarávarpið flutti Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitastjóri Reykhólahrepps, og svo lék Birna E. Norðdahl, barnabarn skákdrottningarinnar, fyrsta leikinn fyrir Hrund Hauksdóttur gegn Hannesi Hlífari.

Birna Norðdahl yngri leikur fyrsta leikinn fyrir Hrund Hauksdóttur gegn Hannesi H. Stefánssyni.

 

Mótið var afar skemmtilegt og spennandi frá upphafi og leikgleðin í fyrirrúmi. Heimamenn á Reykhólum og fjölskylda Birnu tóku virkan þátt í hátíðinni og voru tvær dætur Birnu meðal keppenda, þær Indiana Svala Ólafsdóttir og Anna María Ólafsdóttir.

Brynjar Pálmi Björnsson og Hrafn Jökulsson. Brynjar hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir ómetanlega aðstoð við framkvæmd skákhátíðarinnar á Reykhólum.

Í mótslok þakkaði Hrafn Jökulsson forseti Hróksins fjölskyldu Birnu, fólkinu á Reykhólum og í Reykhólahreppi, keppendum og bakhjörlum, en þó sérstaklega Hlyni Þór Magnússyni, fyrir frumkvæðið og frábært samstarf við skipulagningu hátíðarinnar. 

Krakkarnir á Reykhólum tóku virkan þátt í skákhátíðinni.

 

Í tilefni af hátíðinni færðu Hrókurinn og Þörungaverksmiðjan grunnskólanum á Reykhólum 10 taflsett að gjöf, og munu Hróksmenn efna til skákdaga í skólanum í haust. Mikill skákáhugi er meðal barna og ungmenna á Reykhólum og tóku þau virkan þátt í hátíðinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 23
  • Sl. viku: 127
  • Frá upphafi: 8779007

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 102
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband