Leita í fréttum mbl.is

EM einstaklinga: Stórmeistararnir unnu í fjórðu umferð

P1030972

Stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson (2581) og Héðinn Steingrímsson (2574) unnu báðir í fjórðu umferð EM einstaklinga sem fram fór í Gjakova í Kósovó í dag. Hannes vann svissneska FIDE-meistarann Gabriel Gaehwiler (2352) en Héðinn vann Ísraelann Moshe Gal (2173). Guðmundur Kjartansson (2457) og Björn Þorfinnsson (2410) töpuðu hins vegar báðir. Guðmundur fyrir ísraelska stórmeistaranum Tamir Nabaty (2601), sem var sannarlega betri en enginn (nobody), en Bjössi fyrir þýska stórmeistaranum Vitaly Kunin (2595).

Hannes hefur 3 vinninga, Héðinn hefur 2½ vinning, Guðmundur hefur 2 vinninga og Björn hefur 1½ vinning.

Bæði Hannes og Héðinn verða í beinni í fimmtu umferð sem fram fer á morgun. Hannes teflir við pólska stórmeistarann Dariusz Swiercz (2656) en Héðinn við, úkraínska Íslandsvininn brosmilda, Yuriy Kryvoruchko (2691). 

Björn og Guðmundur tefla við minni spámenn frá Kósovó og Albaníu. Björn teflir reyndar við skákkonu sem gæti reyndar þótt ótrúlegt megi virðast vera eina skákkona sem tekur þátt í skákmótinu. Ritstjóri ætlar að kanna betur þá staðreynd á morgun. 

Þrír stórmeistarar eru efstir og jafnir á mótinu. Það eru Radoslaw Wojtaszek (2722), Póllandi, Ernesto Inarkiev (2686), Rússlandi, og hinn eiturhressi Georgíumaður Baadur Jobava (2661).

Umferð morgundagsins hefst kl. 13:45.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.7.): 11
  • Sl. sólarhring: 20
  • Sl. viku: 176
  • Frá upphafi: 8778611

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 103
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband