Leita í fréttum mbl.is

Indverjarnir viđ suđumark: Gupta međ vinningsforskot – Tania Sadchev međ stórmeistaraáfanga

Gupta

Indverjarnir Abhijeet Gupta og Tania Sadchev halda áfram ađ gera frábćrta hluti á GAMMA Reykjavíkurskákmótinu í Hörpu. Gupta vann í dag Svíann Nils Grandelius og hefur vinningsforskot á nćstu menn. 

_DSC7050

Tania Sachdev hefur algjörlega slegiđ í gegn í Reykjavíkurskákmótinu. Hún  gerđi í dag jafntefli viđ Armenann sterka Sergei Movsesian og ţar međ er ljóst ađ hún hefur tryggt sér áfanga ađ stórmeistaratitli. Hún er í skiptu sjöttu sćti.

Jones og Henrik Danielsen

Fimm skákmenn geta náđ Gupta ađ vinningum tapi Indverjinn á morgun. Ţađ eru Búlgarinn Cheparinov, Englendingurinn Jones, Aserinn Mamedyarov, Rússinn Andreikin og Ítalinn ungi Rambaldi en sá er ađeins 16 ára. 

Guđmundur Kjartansson, sem vann ítalska stórmeistarann Danyyil Dvirnyy, er efstur Íslendinga međ 6,5 vinning. Hjörvar Steinn Grétarsson, Bragi Ţorfinnsson og Stefán Kristjánsson eru nćstir Íslendinga međ 6 vinninga.

Ungstirniđ, Awonder Liang, sem er ađeins 12 ára, er heldur betur ađ slá í gegn og vann Henrik Danielsen í dag og hefur 6,5 vinning. Hann er sem stendur yngsti alţjóđlegi meistari heims.

Í lokaumferđinni sem hefst kl. 11 á morgun teflir Gupta viđ Rambaldi, Mamedyarov viđ Cheparinov og Andreikin viđ Jones.

Guđmundur mćtir Grandelius í lokaumferđinni, Bragi viđ armenska stórmeistarann Gabriel Sargassian og Hjörvar danska alţjóđlega meistarann Korley Kassa.

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 17
  • Sl. sólarhring: 25
  • Sl. viku: 132
  • Frá upphafi: 8778468

Annađ

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 99
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband