Leita í fréttum mbl.is

Opnunarveisla Reykjavíkurskákmótsins hefst kl. 16 á Skybar - mótiđ hefst á morgun kl. 14:30

GAMMA Reykjavíkurskákmótiđ hefst í Hörpu ţriđjudaginn 8. mars. Um 250 manns taka ţátt í mótinu sem hefur sjaldan veriđ sterkara.  Í mótinu í ár má finna allt í senn undrabörn, ofurstórmeistarar, sterkustu skákkonur heims og gođsagnir! Á  mótinu taka ţátt skákmenn á aldursbilinu 9-73 ár sem er ákaflega lýsandi fyrir einkunnarorđ skákarinnar – Viđ erum ein fjölskylda!

Í dag á milli 16:00-17:30 eru keppendur og allir skákáhugamenn bođnir velkomnir í opnunarveislu mótsins á Skybar (Hótel Arnarhvoli - beint á móti Hörpu). Tilvalinn vettvangur til ađ hitta keppendur og blanda geđi viđ. Hamingjustund (Happy Hour) verđur á Skybar á međan opnunarveislunni stendur. 

Efnilegustu skákmenn heims mćta

Ţađ hefur ávallt veriđ stefna Reykjavíkurskákmótsins ađ bjóđa hingađ ungum og efnilegum skákmönnum. Í ár má nefna hinn ítalska Fransesco Rambaldi  sem er ađeins 16 ára, og einn yngsti stórmeistari heims, hinn norska Aryan Tari  sem er yngsti stórmeistari Norđurlanda og bandaríska undrabarniđ Awonder Liang. Hann er ađeins 12 ára og er sá yngsti í skáksögunni sem hefur unniđ stórmeistara en ţađ afrekađi hann ađeins 9 ára. Hann er sem stendur yngsti alţjóđlegi meistari heims!

Sterkar skákkonur!

Sterkar skákkonur eru áberandi í ár.  Má ţar nefna hina ţýsku Elizabetu Paetz og hina indversku Tönju Sachdev sem er ţjóđţekkt í Indlandi. Helsti styrktarađili hennar er Red Bull. 

Ofurmeistararnir

Aserinn Shakhriyar Mamedyarov er stigahćstur keppenda en hann hefur 2747 skákstig. Nćstir koma Rússinn Dmitry Andreikin (2732), Ungverjinn Richard Rapport (2721) og Armeninn Gabriel Sargassian (2702). Allt eru ţetta lykilmenn í sínum landsliđum.

Heimavarnarliđiđ

Íslenska heimavarnarliđiđ mćtir međ Hannes Hlífar Stefánsson  fremstan í flokki, fimmfaldan sigurvegara Reykjavíkurskákmótsins. Einnig eru skráđir til leiks stórmeistararnir Hjörvar Steinn Grétarsson, Henrik Danielsen, Stefán Kristjánsson og Ţröstur Ţórhallsson.

Gođsagnirnar láta sig ekki vanta

Ţađ eru ekki bara ungir menn á menn ţví ávallt taka ţátt í mótinu nokkrar gođsagnir. Í ár má nefna hinn norska Simen Agdestein, sem hefur međal annars ţjálfađ Magnus Carlsen, hinn rúmenska Mikhail Marin og Alexander Beljavsky sem var međal annars Ólympíumeistari međ Sovétmönnum.

Carlsen mćtir!

Pabbi heimsmeistarans, Henrik Carlsen, lćtur sig ekki vanta á GAMMA Reykjavíkurskákmótiđ nú sem endranćr en hann er einn fastagesta. 

Setning mótsins hefst kl. 14:30 ţriđjudaginn 8. mars í Hörpu. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráđherra, og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, munu bjóđa hina erlendu keppendur velkomna og tríó Óskars Guđjónssonar leika skemmtilegan jazz. 

GAMMA Capital Management hf. er ađalstyrktarađili mótsins ásamt Reykjavíkurborg.

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 32
  • Sl. viku: 132
  • Frá upphafi: 8778490

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 94
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband