Leita í fréttum mbl.is

Skákţáttur Morgunblađsins: Huginn og TR berjast um Íslandsmeistaratitil skákfélaga

Sveitir Hugins og Taflfélags Reykjavíkur munu berjast um Íslandsmeistaratitilinn í seinni hluta Íslandsmóts skákfélaga í Rimaskóla um helgina. Fyrir sjöttu umferđ mótsins sem hófst á fimmtudagskvöldi hafđi Huginn ˝ vinnings forskot á TR en úrslit keppninnar gćtu ráđist í dag ţegar sveitirnar mćtast í nćstsíđustu umferđ. Efstu ţrjár sveitir Íslandsmótsins öđlast keppnisrétt í Evrópukeppni taflfélaga sem fram fer í Novi Sad í Serbíu nćsta haust.

Stađan fyrir lokaumferđirnar fjórar var ţessi:

1. Huginn 32 v. ( af 40 ) 2. Taflfélag Reykjavíkur 31 ˝ v. 3. Skákfélag Akureyrar 23 v. 4. Fjölnir 21 v. 5. Víkingaklúbburinn 20 ˝ v. 6. Huginn b-sveit 18 ˝ v. 7. Taflfélag Bolungarvíkur 16 v. 8. – 10. Skákdeild KR, Skákfélag Akureyrar b-sveit og Taflfélag Reykjavíkur b-sveit 12 ˝ v. 

Hou Yifan komst yfir í heimsmeistaraeinvíginu

Kínverska skákdrottningin Hou Yifan sem talin er fremsta skákkona heims í dag vann ađra skákina í einvígi sínu viđ heimsmeistara kvenna Maríu Muzychuk og eftir tvćr fyrstu skákirnar er stađan 1 ˝: ˝ ţeirri kínversku í vil. Einvígiđ fer fram í Lviv í Úkraínu. Í skákinni á fimmtudaginn kom upp opna afbrigđi spćnska leiksins og lengi framan af var stađan í járnum. 

2. einvígisskák:

Spćnskur leikur

Hou Yifan – María Muzychuk

Spćnskur leikur

1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. O-O Rxe4 6. d4 b5 7. Bb3 d5 8. dxe5 Be6 9. Be3

Vinsćlast er 9. Rbd2 og 9. De2 kemur einnig til greina.

Be7 10. c3 O-O 11. Rbd2 Dd7 12. Bc2 Rxd2 13. Dxd2 Bg4 14. Bf4 Bxf3 15. gxf3 Had8 16. Hfd1 De6 17. De3 Hd7 18. Bg3 g6 19. a4 Rd8 20. axb5 axb5 21. f4 f6 22. exf6 Dxf6 23. De2 c6 24. Dg4 Hb7 25. f5 Bd6 26. Ha6!

Vegna möguleikans – Hxd5 síđar meir reynist ţessi leikur erfiđur viđfangs. Svartur á ţó ađ geta haldiđ jafnvćgi.

Hg7 27. fxg6 Bc5??

Afleitur leikur. Eftir 27. ... Bxg3 28. Dxg3 De6 er stađan í jafnvćgi.

28. Kg2 hxg6

GQKVCTVO29. Hxd5! Bxf2 30. Bb3! Re6 31. Hd6 Bc5 32. Dxe6+

- og svartur gafst upp. 

Magnús Carlsen ver titilinn í New York

Í áskorendakeppninni sem hefst í Moskvu 10. mars öđlast sigurvegarinn rétt til ađ skora á heimsmeistarann Magnús Carlsen. Átta skákmenn hefja leikinn og tefla tvöfalda umferđ. Nú liggur fyrir ađ heimsmeistaraeinvígiđ mun fara fram í New York dagana 11.-30. nóvember nk. Fyrirtćkiđ Agon, sem var framkvćmdarađili heimsmeistaramótsins í hrađskák og atskák í Berlín sl. haust, mun annast einvígishaldiđ. Tefldar verđa 12 skákir. 

 

Átta krakkar í úrslitum „barna-blitz“

Alţjóđlega Reykjavíkurskákmótiđ hefst í Hörpu á ţriđjudag og eru um 250 keppendur skráđir til leiks. Reykjavíkurskákmótiđ hefur undanfarin ár fengiđ á sig ć meira svipmót skákhátíđar og međal vinsćlla keppnisgreina til hliđar viđ ađalmótiđ er hrađskákkeppnin „barnablitz“ en ţar er keppt eftir tímafyrirkomulaginu 4 2. Undankeppnir hafa víđa fariđ fram síđustu daga en ţeir átta krakkar sem munu tefla til úrslita í höfuđstöđvum ađalstyrktarađila Reykjavíkurskákmótsins, GAMMA, eru Alexander Oliver Mai, Joshua Davíđsson, Óskar Víkingur Davíđsson, Robert Luu, Sindri Briem, Sindri Snćr Kristófersson, Stephan Briem og Sćmundur Árnason.

Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 5.mars 2016

Skákţćttir Morgunblađsins


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 33
  • Sl. sólarhring: 35
  • Sl. viku: 148
  • Frá upphafi: 8778484

Annađ

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 109
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband