Leita í fréttum mbl.is

Eitt sterkasta Reykjavíkurskákmót sögunnar hefst á ţriđjudaginn

Mameydarov Reykjavik

GAMMA Reykjavíkurskákmótiđ hefst í Hörpu ţriđjudaginn 8. mars. Um 250 manns taka ţátt í mótinu sem hefur sjaldan veriđ sterkara. Međal keppenda eru fjórir svokallađir ofurstórmeistarar en ţađ eru ţeir kallađir sem hafa meira en 2700 skákstig. Um 30 stórmeistarar taka ţátt.

andreikin03

Ofurmeistararnir

Aserinn Shakhriyar Mamedyarov er stigahćstur keppenda en hann hefur 2747 skákstig. Nćstir koma Rússinn Dmitry Andreikin (2732), Ungverjinn Richard Rapport (2721) og Armeninn Gabriel Sargassian (2702). Allt eru ţetta lykilmenn í sínum landsliđum.

Rapport vann Ramirez

Heimavarnarliđiđ

Íslenska heimavarnarliđiđ mćtir međ Hannes Hlífar Stefánsson (2600) fremstan í flokki.  Einnig eru skráđir til leiks stórmeistararnir Hjörvar Steinn Grétarsson (2572), Henrik Danielsen (2488), Stefán Kristjánsson (2471) og Ţröstur Ţórhallsson (2423).

Hjörvar Steinn


Sterkar skákkonur!

Sterkar skákkonur eru áberandi í ár.  Má ţar nefna hina ţýsku Elizabetu Paetz (2472), hina írönsku Söru Khademalsharieh (2403) og hina indversku Tönju Sachdev (2366).

Tania Sachdev


Efnilegustu skákmenn heims mćta

Ţađ hefur ávallt veriđ stefna Reykjavíkurskákmótsins ađ bjóđa hingađ ungum og efnilegum skákmönnum. Í ár má nefna hinn ítalska Fransesco Rambaldi (2541), sem er ađeins 16 ára, og einn yngsti stórmeistari heims, hinn norska Aryan Tari (2553), sem er yngsti stórmeistari Norđurlanda og bandaríska undrabarniđ Awonder Liang (2408). Hann er ađeins 12 ára og er sá yngsti í skáksögunni sem hefur unniđ stórmeistara en ţađ afrekađi hann ađeins 9 ára.

Awonder

Gođsagnirnar láta sig ekki vanta

Ţađ eru ekki bara ungir menn á menn ţví ávallt taka ţátt í mótinu nokkrar gođsagnir. Í ár má nefna hinn norska Simen Agdestein, sem hefur međal annars ţjálfađ Magnus Carlsen, hinn rúmenska Mikhail Marin og Alexander Beljavsky sem var međal annars Ólympíumeistari međ Sovétmönnum.

Carlsen-Agdestein.jpg

Carlsen mćtir!

Pabbi heimsmeistarans, Henrik Carlsen, lćtur sig ekki vanta á GAMMA Reykjavíkurskákmótiđ nú sem endranćr en hann er einn fastagesta. 

Henrik Carlsen

Setning mótsins hefst kl. 14:30 ţriđjudaginn 8. mars í Hörpu. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráđherra, og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, munu bjóđa hina erlendu keppendur velkomna og tríó Óskars Guđjónssonar leika skemmtilegan jazz.

GAMMA Capital Management hf. er ađalstyrktarađili mótsins ásamt Reykjavíkurborg.

gamma_reykop15

Viđ erum ein fjölskylda!

Af hinum 250 keppendum koma um 165 erlendis frá en alls koma keppendur mótsins frá 35 ţjóđlöndum. Keppendur eru á aldursbilinu 9-73 ára sem endurspeglar einkunnarorđ skákarinnar vel - viđ erum ein fjölskylda!

Enn er opiđ fyrir skráningu fyrir ţá sem vilja taka ţátt í veislunni. Nánar á heimasíđu mótsins.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 23
  • Sl. sólarhring: 28
  • Sl. viku: 153
  • Frá upphafi: 8778511

Annađ

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 107
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband