1.11.2015 | 15:55
HM ungmenna: 7. pistill
6. umferđ
Andstćđingur Dags tefldi stíft upp á jafntefli og skipti upp á öllu sem hann gat. Stundum verđa menn bara ađ sćtta sig viđ ţađ ţegar ţeir eru međ svart enda fékk Dagur fá fćri á ađ tefla til vinnings og sćttist á jafntefli. Oliver hafđi hvítt gegn hinum albanska Timoleo Mico (2075). Hann fékk mun betra tafl út úr byrjuninni og svartur gerđi lítiđ annađ en ađ bíđa og halda sér fast og hćtti sér bara einu sinni í skákinni yfir fimmtu reitaröđina. Á ákveđnum tímapunkti í skákinni lék Mico Rc6-Rb8-Ra6-Rc5-Ra6-Rb8 á međan Oliver bćtti stöđu sína jafnt og ţétt og yfirspilađi andstćđinginn ađ lokum. Símon hafđi svart gegn FM Sven Tica (2300). Viđ höfđum litiđ á nokkuđ skynsama leiđ til ađ mćta byrjunartaflmennsku Tica og hún kom einmitt upp í skákinni. Símon vann mann fyrir tvö peđ en varđ ađ láta eitt peđ af hendi til viđbótar í framhaldinu og fékk upp endataflsstöđu sem var ţví miđur ekki hćgt ađ vinna. Jafntefli voru engu ađ síđur góđ úrslit fyrir framhaldiđ í mótinu hjá Símoni, sem hefur veriđ ađ tefla vel. Jón Kristinn hafđi svart gegn Ted Shpati (1918) frá Albaníu. Ţađ skiptist upp á drottningum í byrjuninni og Jón Kristinn sýndi í framhaldinu yfirburđi sína í endataflinu og vann peđ og skákina í framhaldinu. Öruggur sigur. Jón Kristinn er í beinni útsendingu í dag, á einum af efstu borđunum, gegn FM Makhnyov (2399).
Bárđur Örn hafđi svart gegn Liao Yu Hao (1844) frá Kína. Hann hafđi undirbúiđ sniđuga leiđ í spćnska leiknum međ Helga og fékk hana einmitt upp í skákinni. Andstćđingurinn var ekki vel međ á nótunum og Bárđur fékk mun ţćgilegra tafl sem hann nýtti sér vel og vann af öryggi. Dawid Kolka hafđi hvítt á Jacky-Long Mouthuy (1462). Mouthuy kom Dawid ađeins á óvart í byrjuninni en hann fékk engu ađ síđur fína stöđu. Hann náđi ekki ađ nýta sér yfirburđina í framhaldinu og varđ ađ sćtta sig viđ jafntefli.
Heimir Páll hafđi svart gegn Tynyshbayev (1095) frá Kasakstan. Heimir fékk góđa stöđu út úr byrjuninni og sýndi mun meiri stöđuskilning en andstćđingurinn. Hann herjađi á veikleikana í peđastöđu hvíts og vann af öryggi í framhaldinu.
Vignir Vatnar hafđi hvítt á Muhammet Ezizov (1760) frá Túrkmenistan. Vignir kom andstćđingnum á óvart međ ţví ađ tefla nýja leiđ í byrjuninni. Hann uppskar betri stöđu og yfirspilađi Ezizov í miđtaflinu og vann af öryggi. Vignir hefur aftur hvítt í dag gegn FM Aydincelebi (2247) frá Tyrklandi. Óskar Víkingur hafđi hvítt gegn Revaliente (1567) frá Spáni. Óskar fékk snemma frumkvćđiđ í skákinni og tefldi listavel í framhaldinu. Svartur náđi varla ađ koma mönnunum út og Óskar innsiglađi sigurinn međ skemmtilegri mátfléttu. Lok skákarinnar birtast í Fréttablađinu á morgun, mánudag. Freyja hafđi svart gegn Venkataraja frá Bandaríkjunum. Freyja fékk á sig byrjunarleiđ sem hún hafđi ekki mćtt áđur og ţurfti ađ eyđa talsverđum tíma á byrjunina. Hún leysti vel úr vandamálunum sem upp komu og hélt jöfnu međ góđri taflmennsku. Jón Trausti og Veronika töpuđu bćđi eftir ónákvćmni í byrjuninni. Einnig töpuđu Björn Hólm, Hilmir Freyr, Stefán Orri, Róbert og Adam.
Ég vaknađi í morgun, fyrir klukkan 8, viđ undarlegt skvamphljóđ utan viđ hóteliđ. Ég óđ út á svalir og ţar fyrir neđan, viđ bryggjuna, var háaldrađur Grikki ađ brasa viđ ađ róa árabát í land. Ađfarirnar voru svo svakalegar ađ ţegar hann sveiflađi árunum í hringi skullu ţćr á yfirborđinu međ fyrrgreindu skvampi. Ekki nóg međ ţađ heldur var hann međ stćrđar kolkrabba um borđ, sem var á stćrđ viđ heimiliskött. Kolkrabbinn var flćktur í háf, sem kallinn hafđi í bátnum, en gerđi sitt allra besta viđ ađ losna ţađan svo gamli mađurinn ţurfti ítrekađ ađ hafa áhyggjur af honum og átti hann nógu erfitt međ róđurinn fyrir. Ţađ besta var ađ á hinum bakkanum stóđ félagi hans, á svipuđum aldri, og hvatti hann áfram međ hrópum og köllum. Ágćtis byrjun á deginum.
Ţađ hefur veriđ kaldara hjá okkur, bćđi í dag og í gćr, heldur en undanfarna daga. Mér skilst ađ ţađ spái sól og meiri hita á
morgun svo ţađ horfir til betri vegar!
Bestu kveđjur,
Björn Ívar
Flokkur: Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 15:57 | Facebook
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 22
- Sl. sólarhring: 22
- Sl. viku: 129
- Frá upphafi: 8778231
Annađ
- Innlit í dag: 18
- Innlit sl. viku: 88
- Gestir í dag: 17
- IP-tölur í dag: 17
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.