15.8.2015 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Endalok Evans-bragđs
Eitt ţekktasta leikbragđ skákarinnar er kennt viđ viđ William Davies Evans, kaptein í breska sjóhernum á ţví tímabili viđ upphaf 19. aldar ţegar Napóleóns-stríđin voru ekki á enda kljáđ. Í frístundum sat hann og tefldi á uppihaldskrá sinni í London, beitti bragđi sínu viđ hvert tćkifćri og vann margan frćkilegan sigur. Til er í handriti skák sem hann tefldi og vann í 20 leikjum gegn landa sínum Alexander McDonnell. Sá varđ síđar frćgur fyrir maraţoneinvígi sem hann háđi síđar í London viđ Frakkann La Bourdonnais. Evans-bragđ sprettur upp úr Ítalska leiknum: 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 og nú 4. b4!? Besta leiđ svarts hefur löngum veriđ talin sú ađ hirđa b4-peđiđ og gefa ţađ síđan aftur viđ hentugt tćkifćri. Fischer og Kasparov tefldu stundum Evans-bragđ, sá fyrrnefndi í léttari skákum, en frćgt varđ ţegar Kasparov vann Anand í ađeins 25 leikjum á skákmóti í Ríga áriđ 1995. Ţađ vill nú samt verđa svo međ unnendur gambíta ađ ţeir eiga stundum erfitt međ ađ fóta sig í flóknum stöđum, t.d. ţegar ţeir hafa leiđst út í ađ henda miklum liđsafla fyrir borđ. Í dag vandast máliđ frćđilega međ skákreikna beintengda viđ gagnagrunna sem meta stöđurnar á örskotsstundu. En samt hafa gambítarnir, t.d. kóngsbragđ, skólađ til marga öfluga stórmeistara og nćgir ađ nefna Boris Spasskí og Jón L. Árnason.
Á skákmóti sem lauk í Dortmund í Ţýskalandi á dögunum vann Fabiano Caruana öruggan sigur eftir mikinn sprett ţar sem hann vann fimm skákir í röđ og varđ ađ lokum 1˝ vinningi á undan nćsta manni, Filippseyingnum Wesley So. Í einni af sigurskákunum kom Evans-bragđ viđ sögu. Sennilega hefur andstćđingur hans, Nisipeanu frá Georgíu, ćtlađ ađ koma Caruana á óvart en Ítalinn, sem brátt mun tefla fyrir Bandaríkjamenn, reyndist öllum hnútum kunnugur. Í skýringum sem hann gerđi viđ skákina komst hann svo ađ orđi ađ frá sínum sjónarhóli vćri bragđ Evans búiđ ađ vera. Einhvern veginn flögrar ađ manni ađ Caruana hafi kynnt sér skákir sem Hannes Hlífar Stefánsson tefldi fyrir allmörgum árum.
Dortmund 2015; 7. umferđ:
Dieter Nisipeanu Fabiano Caruana
Ítalskur leikur Evans-bragđ
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4. b4 Bxb4 5. c3 Ba5 6. d4 d6 7. Db3 Dd7
Ţessi og nćsti leikur svarts halda stöđunni saman. lakara er 7. ... De7 vegna 8. d5 ţó ađ svartur geti barist áfram međ 8. ... Rd4!
8. dxe5 Bb6 9. a4 Ra5 10. Da2 Rxc4 11. Dxc4 Re7 12. Ba3
Ţekktur stađur fyrir biskupinn í Evans-bragđi en skapar engin vandamál.
12. ... 0-0 13. 0-0 He8
Í skýringum sínum telur Caruna ađ enn betra hefđi veriđ ađ leika 13. ... Rg6 og eftir 14. exd6 cxd6 15. Hd1 Dg4! hóti svartur m.a. 16. .... Rf4.
14. exd6 cxd6 15. Hd1 Dc6 16. Rbd2 Be6 17. Dxc6 Rxc6 18. Bxd6 Had8 19. Bb4 Hd3!
Svartur hefur gefiđ peđ um stundarsakir en menn hans standa vel.
20. a5 Bc7 21. Rf1 Hxd1 22. Hxd1 Rxa5 23. Rd4 Rc4 24. Rxe6 Hxe6 25. Hd7 Hc6 26. Rg3 g6!
Svarta stađan er alltaf betri vegna ţess hve illa biskupinn á b4 stendur. Áđur en svartur rćđst til atlögu loftar hann út og hindrar för riddarans til f5 í leiđinni.
27. Re2 a5 28. Rd4?
Hann varđ ađ leika 28. Be7.
28. ... axb4 29. Rxc6 b3 30. Hxc7 Rd6!
Magnađur lokahnykkur, b3-peđiđ rennur upp í borđ ţó ađ hvítur sé hrók yfir.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 8. ágúst 2015
Meginflokkur: Spil og leikir | Aukaflokkur: Skákţćttir Morgunblađsins | Breytt 8.8.2015 kl. 15:28 | Facebook
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.6.): 1
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 1122
- Frá upphafi: 8778168
Annađ
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 1084
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.