20.4.2015 | 15:32
Íslandsmót grunnskólasveita: Rimaskóli Íslandsmeistari
Sjaldan eđa aldrei hefur veriđ jafn gríđarlega mikil spenna á Íslandsmóti grunnskólasveita og liđna helgi. Rúmlega ţrjátíu sveitir voru mćttar til leiks. Nokkrar ţeirra voru afar vel mannađar og meiri breidd greinilega ríkjandi í skólaskákinni en oft áđur: Álfhólsskóli hefur veriđ sigursćll á undanförnum árum og sveit skólans sem varđ Íslandsmeistari barnaskólasveita fyrst áriđ 2013 var nú sameinuđ á unglingastigi. Ölduselsskóli er afar efnileg sveit sem hefur náđ góđum árangri undanfarin ár. Hörđuvallaskóli hefur Vigni Vatnar á fyrsta borđi og annar skóli úr Kópavogi, Smáraskóli, er afar sterkur međ tvíburana Bárđ Örn og Björn Hólm á fyrstu tveimur borđunum. Laugalćkjarskóli hefur sennilega á ađ skipa virkustu ungu skákmönnum landsins sem tefla nokkurn veginn á öllum mótum og hafa veriđ í mikilli framför ţó ekki hafi ţeir teflt af alvöru í mörg ár. Ţá á eftir ađ telja upp sveit Rimaskóla sem var ekki endilega sigurstrangleg fyrir mótiđ ţar sem sveitin hefur endurnýjast gríđarlega mikiđ á síđustu árum eftir ađ Dagur Ragnarsson, Oliver Aron og Jón Trausti Harđarson kláruđu grunnskóla.
Í fyrstu umferđ mćttust tvćr af sterkustu sveitunum: Rimaskóli og Álfhólsskóli. Álfhólsskóli fór međ nokkuđ ţćgilegan 3-1 sigur af hólmi. Í annarri umferđ skildu Smáraskóli og Álfhólsskóli jafnir ţar sem tvíburarnir stóđu fyrir sínu. Í ţriđju umferđ tefldu tvćr af efnilegustu sveitum landsins ţegar Hörđuvallaskóli lagđi Ölduselsskóla 2.5- 1.5. Leiddir áfram af Vigni Vatnari sýndi Hörđuvellingar piltunum úr Laugarlćk engin griđ í fjórđu umferđ og komust á toppinn međ 3-1 sigri. Á međan vann Rimaskóli góđan sigur á Smáraskóla 3-1. Í fimmtu ferđ hélt spútnikliđ Hörđuvallaskóla áfram á sinni fljúgandi siglingu og lagđi b-sveit Álfhólsskóla. A-sveit skólans hafđi í síđustu umferđum unniđ stóra sigra og komin ofarlega en missti niđur 2 vinninga gegn Laugalćkjarskóla eftir ađ stöđurnar gáfu um tíma til kynna ađ 4-0 sigur myndi vinnast.
Stađan eftir fyrri dag var ţví ţannig ađ sveit Hörđuvallaskóla var óvćnt efst en međ nauma forystu og átti eftir ađ tefla viđ sterkar sveitir. Nokkrar sterkar sveitir komu skammt undan og ţví ljóst ađ spennan á seinni deginum yrđi gríđarleg.
Teningunum var kastađ í sjöttu umferđ: Rimaskóli skellti Hörđuvallaskóla 3-1 og Álfhólsskóli sigrađi b-sveit sína örugglega 4-0: einvígi var framundan milli Rimaskóla og Álfhólsskóla. Í sjöundu og áttundu umferđ fengu báđar sveitirnar samtals sjö vinninga af átta og voru hnífjafnar fyrir síđustu umferđ međ 25.5 vinning!
Rimaskóli átti Salaskóla og Álfhólsskóli tefldi gegn sveit Ölduselsskóla. Sannarlega erfiđara hlutskipti sem Álfhólsskóli fékk enda sveit Ölduselsskóla sennilegasta efnilegasta sveit landsins međ brćđurna Óskar Víking og Stefán Orra Davíđssyni sem eru einungis í 4. og 5. bekk. Fór svo ađ Álfhólsskóli missti niđur vinning á međan Rimaskóli smám saman mjatlađi niđur vinninga inn gegn Salaskóla. Ađ lokum samdi Jóhann Arnar Finnsson annars borđs mađur Rimaskóla jafntefli í mun betri stöđu og tryggđi ţannig Rimskćlingum titilinn sjónarmun og hálfum vinningi á undan Álfhólsskóla. Sannarlega ćsispennandi keppni og ađdáunarvert ađ fylgjast međ efnilegum skákmönnum sveitanna leggja allt undir fyrir heiđur sinna skóla. Glćsilegur árangur hjá Rimaskóla sem vann nú titilinn fimmta áriđ í röđ! Ţriđja sćtinu náđi vösk sveit Laugalćkjarskóla sem verđur spennandi ađ fylgjast međ á nćstu árum enda á sveitin eftir ađ haldast óbreytt nćstu 2-3 árin.
Lokastöđuna má finna á Chess-Results.
Sveit Rimaskóla skipa: Nansý Davíđsdóttir, Jóhann Arnar Finnsson, Kristófer Jóel Jóhannsson, Joshua Davíđsson og Kristófer Halldór Kjartansson. Liđsstjóri Jón Trausti Harđarson.
Sveit Álfhólsskóla skipa: Dawid Kolka, Felix Steinţórsson, Róbert Luu, Guđmundar Agnar Bragason og Halldór Atli Kristjánsson. Liđsstjóri Lenka Ptacnikova.
Sveit Laugalćkjarskóla skipa: Aron Ţór Mai, Daníel Ernir Njarđarson, Jón Ţór Lemery, Eldar Sigurđarson, Jason Gíslason og Alexander Sigurđarson. Liđsstjóri Dađi Ómarsson.
Borđaverđlaun
- Vignir Vatnar Stefánsson Hörđuvallaskóla 9v/9!
- Bárđur Örn Birkisson 8v/9
- Kristófer Jóel Jóhannsson 7.5v/8
- Atli Mar Baldursson 7v/9
Salaskóli náđi eins og oft áđur góđum árangri sem sýnir enn og aftur ţađ góđa starf sem Tómas Rasmus vinnur í skólanum.
Efst b-sveita Álfhólsskóli.
Efst c-sveita Rimaskóla.
Efst d-g sveita Salaskóli.
Skákstjórar voru Omar Salama og Stefán Bergsson.
Flokkur: Spil og leikir | Breytt 22.4.2015 kl. 13:11 | Facebook
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 2
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 92
- Frá upphafi: 8778323
Annađ
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 66
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ţetta var flott mót og takk fyrir ţađ en hvar er linkur á mótstöfluna. Kv, Stefán Ţór
stefán Ţór sigurjónsson (IP-tala skráđ) 22.4.2015 kl. 12:34
Hér: http://chess-results.com/tnr170217.aspx?lan=1. Hefur jafnframt verđur skeytt inn í frétt.
Skák.is, 22.4.2015 kl. 13:05
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.