6.4.2015 | 09:55
Hjörvar sigurvegari áskorendaflokks - Lenka Íslandsmeistari kvenna
Hjörvar Steinn Grétarsson (2554) sigraði í áskorendaflokki Íslandsmótsins í skák sem lauk í gær. Hann vann Dag Ragnarssonar (2347) í lokaumferðinni. Guðmundur Gíslason (2311), sem vann Oliver Aron Jóhannesson (2212), varð annar og fær því keppnisrétt í landsliðsflokki að ári ásamt Hjörvari. Lenka Ptácníková (2242) varð Íslandsmeistari kvenna.
Það verður að teljast með nokkrum ólíkindum að á níu umferða móti mætust ekki tveir efstu menn mótsins, Hjörvar og Guðmundur. Guðmundur tefldi heldur ekki við Davíð Kjartansson (2364) sem varð þriðji á mótinu 6,5 vinning. Það var góður endasprettur Guðmundar sem lagði grunn af silfrinu og sæti í landsliðsflokki en hann vann þrjár síðustu skákirnar. Toppaði á hárréttum tíma!
Elsa María Kristínardóttir (1875), sem átti afar gott mót, varð önnur á Íslandsmóti kvenna með 5,5 vinning. Tinna Kristín Finnbogadóttir (1950) og Veronika Steinunn Magnúsdóttir (1571) urðu jafnar í 3.-4. sæti með 5 vinninga. Frammistaða Veroniku var afar góð.
Lokastaða efstu manna:
- 1. Hjörvar Steinn Grétarsson (2554) 7,5 v.
- 2. Guðmundur Gíslason (2321) 7 v.
- 3. Davíð Kjartansson (2364) 6,5 v.
- 4.-8. Lenka Ptácníková (2242), Jón Trausti Harðarson (2170), Dagur Ragnarsson (2347), Haraldur Baldursson (1971) og Stefán Bergsson (2063) 6 v.
- 9.-11. Oliver Aron Jóhannesson (2212), Björn Hólm Birkisson (1845) og Elsa María Kristínardóttir (1875) 5,5 v.
Staðan á Íslandsmóti kvenna:
- 1. Lenka Ptácníková (2242) 6 v.
- 2. Elsa María Kristínardóttir (1875) 5,5 v.
- 3.-4. Tinna Kristín Finnbogadóttir (1950) og Veronika Steinunn Magnúsdóttir (1571) og 4 v.
Að lokum skulum við skoða hverjir hækka mest á stigum á mótinu.
- Aron Þór Mai (+81)
- Björn Hólm Birkisson (+64)
- Andri Freyr Björgvinsson (+45)
- Óskar Víkingur Davíðsson (+36)
- Héðinn Briem (+32)
- Óskar Long Einarsson (+29)
- Stefán Bergsson (+20)
- Veronika Steinunn Magnúsdóttir (+17)
- Hjálmar Sigurvaldason (+16)
- Vignir Vatnar Stefánsson (+16)
Flokkur: Spil og leikir | Facebook
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.7.): 19
- Sl. sólarhring: 19
- Sl. viku: 145
- Frá upphafi: 8779025
Annað
- Innlit í dag: 14
- Innlit sl. viku: 115
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 10
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.