14.3.2015 | 22:53
Reykjavíkurskákmótiđ: Ţrír efstir međ 5,5 - Hannes Hlífar og Jón Viktor efstir íslendinga
Ţađ er ekki ađ sökum ađ spyrja ţegar skák, Reykjavík, Íslensku veđurfari, Magnúsi Carlsen og Hörpunni er hrćrt saman Afraksturinn er frábćr.
Fyrir umferđ dagsins var Shakhriyar Memedyarov (2756) einn efstur međ fullt hús og virtist líklegur til ađ stinga af međ sigurinn. Svo fór ekki, en hann fékk mun verra tafl gegn tékkanum David Navara (2736) og má teljast heppinn ađ hafa haldiđ jöfnu. Heimsmeistarinn Magnús Carlsen skýrđi skákina í myndveri ásamt Fionu Steil-Antoni og var nokkuđ viss um svartan sigur í viđureigninni.
Hér taldi Magnús ađ einfaldast vćri ađ leika a4 og mynda frípeđ á a-línunni eftirleikurinn yrđi tćknileg úrvinnsla, svo góđa taldi hann stöđu svarts. En David Navara hafđi ađrar hugmyndir. Hann lék hér 23.. Rg4? Og Re3? í framhaldinu.
Riddarinn á e3 er friđhelgur vegna 25. fxR Dxe+ og Hc1 í framhaldi. Hugmynd Navara virtist ganga út á ađ hvítur svari Re3 (síđasta leik) međ Rf3, ţá á svartur drottningarfórn, Dxe4!. Taki hvítur drottninguna á e4, kemur Hc1 međ máti.
En lífiđ er ekki svona auđvelt Shak lék einfaldlega Dd3 og stöđuyfirburđir svarts eru eđ engu orđnir fljótlega var samiđ jafntefli.
Magnús mćtti í myndver
Líkt og kom fram ađ ofan ţá mćtti heimsmeistarinn í myndver og rćddi um Ísland, skák, pabba sinn sem teflir bara einu sinni á ári Í Reykjavíkurskákmótinu! Og fór yfir skákirnar og allskonar.
Stađan
Eftir sex umferđir eru ţrír skákmenn efstir og jafnir međ 5,5 vinninga. Ţeir eru:
- GM Alexandr Fier (2601) frá Brasilíu
- GM Shakhriyar Memedyarov (2756) frá Aserbćjan
- Og GM Erwin L´ami (2605) frá Hollandi
Íslendingar eiga tvo fulltrúa í 4.-12. sćti:
GM Hannes Hlífar Stefánsson (2560) en hann lagđi alţjóđameistarann Razvan Preotu (2447) í dag. Hannes hefur hvítt á stórmeistarann Zuniga Julio E Granda (2646) á morgun og getur blandađ sér í hóp efstu manna međ góđum úrslitum.
Hinn er ađ sjálfsögđu alţjóđameistarinn Jón Viktor Gunnarsson (2443) sem hefur átt gríđarlega gott mót og gerđi baráttujafntefli í dag viđ ofurstórmeistarann Hrant Melkumyan (2676). Jón Viktor verđur međ hvítt gegn stórmeistaranum Eric Hansen (2566) frá Kanada á morgun og getur fariđ langt međ ađ tryggja sér stórmeistaraáfanga međ hagstćđum úrslitum, skilji greinarhöfundur reglurnar rétt.
Stöđuna má skođa nánar hér.
Skáksýring
Ţađ er orđninn fastur liđur ađ renna yfir skákir Jóns í ţessum pistlum og á ţví er engin breyting:
Jón Viktor Gunnarsson (2443) heldur áfram góđu gengi á mótinu. Í umferđ dagsins var hann međ svart gegn stórmeistaranum Hrant Melkumyan (2676) frá Armeníu. Jón Viktor svarađi 1. d4 byrjun Hrants međ grjótgarđsafbrigđi hollensku varnarinnar. Í útsendingunni kom fram ađ Jón Viktor hefur líklega aldrei teflt ţetta afbrigđi áđur, enda virtist byrjunin koma hr. Hrant nokkuđ á óvart.
- d4 e6 2. g3 f5 3. Bg2 Rf6 4. c4 d5
Grjótgarđurinn
- Rh3 c6 6. 0-0 Bd6 7. Bf4 0-0 8. Bxd6 Dxd6 9. Rd2 Rbd7 10. e3 b6 11. Rf4 Re4 12. Rxe4 fxe4 13. Hc1 Bb7 14. Hc3 Rf6 15. h4 dxc4 16. Dc2 e5 17. dxe5 Dxe5 18. Hxc4 Ba6
Förum hratt yfir sögu. Hvítur teflir fast og leysir upp miđborđ svarts međ tvöfaldri skiptamunsfórn! Ţegar ţarna var komiđ viđ sögu var ţrefaldi heimsmeistarinn, hr. Magnús Carlsen í myndverinu međ Fionu Steil-Antoni og leyst hreint út sagt ekki vel á svörtu stöđuna.
- Hxe4 Rxe4 20. Bxe4 Bxf1 21. Bxh7+ Kf7
Hvítur hefur fórnađ tvennum skiptamunum, en stađa svarts er viđ ţađ ađ falla saman. Hér taldi Magnús Carlsen ađ stađan vćri töpuđ fyrir svartan, óhugsandi vćri ađ hann nćđi ađ virkja hrókana sína og hvítur ćtti auđvelt međ ađ vinna eitthvađ af peđum svarts og skiptamun til baka.
- Kxf1 Df6 23. Bf5 Hfd8 24. Be6+ Ke7 25. Dxc6 Hd1+ 26. Kg2 Had8 27. h5 H1d6
Hvítur hefur saumađ ađ svörtu stöđunni og fátt virđist koma í veg fyrir hvítan sigur. Magnús Carlsen sagđi hér ađ hvítur ćtti allt of marga góđa leiki í stöđunni Hann nefndi t.d. 28. Db7+ Ke8 29. Dxa7 sem dćmi um einfalt plan og afskrifađi svartan endanlega.
En ţá gerđist eitthvađ. Hvítur hugsađi sig um í smá tíma og lék 28. Rg6+?? Ţessu var umsvifalaust svarađ međ 28.. Kxe6! og svartur er allt í einu međ tvo hróka gegn riddara, einum riddara! Vitni sem stóđ yfir borđinu ţegar Hrant áttađi sig á hvađ hann hafđi gert lýsti atvikinu sem svo: Hann varđ bara stjarfur, setti hendurnar um andlitiđ og var ţannig í svona 5 mín áđur en hann skrifađi leikinn hans Jóns
Ţađ sem er merkilegast, ef svo má ađ orđi komast, er ađ Hrant (hvítur) átti 15 mínútur eftir á klukkunni en Jón Viktor rúma eina mínútu Líklega hefur Hrant falliđ í ţá gildru ađ ćtla ađ pressa á svartan, leika hratt og flćkja tafliđ í ţeirri von ađ svartur myndi leika af sér. Hann kolféll á eigin bragđi.
Stađan var vitanlega gjörunnin á svart eftir ţetta, en Jón Viktor átti eftir ađ leika 11 leiki ţar til 40 leikjum var náđ, en ţá bćtast viđ 30 mínútur. Hann gaf annann hrókinn fyrir riddarann og hélt sér fast ţar til viđbótartíminn bćttist viđ.
- Rg6+?? Kxe6 29. Dc4 Kd7 30. Da4+ Hc6 31. Da7+ Hc7 32. Da3 Dc6+ 33. Kh2 Dc5 34. Da4+ Kc8 35. Da8+ Kd7 36. Df3 Dg5 37. Rf4 Hf8 38. De2 Hxf4 39. exf4 Dd5 40. Dg4+ Kd8
Stađan virđist vera unnin, en ţađ er miklu meira en ađ segja ţađ ţegar mađur situr viđ borđiđ. Eitt feilspor og hvítur nćr annađ hvort ţráskák ţar sem svarti kóngurinn á lítiđ skjól, eđa peđ hvíts á kóngsvćngnum rúlla af stađ upp borđiđ Hér ţarf ađ vanda sig.
- f5 Hf7 42. Dg5+ Kd7 43. G4 De5+ 44. Kg2 Dxb2 45. De3 Df6 46. Kh3 Dd6 47. Db3 He7 48. Da4+ Dc6 49. Db3 b5 50. Kg3 Dc4
Svartur virđist vera ađ ná tökum á stöđunni Nú ţarf bara ađ virkja hrókinn og tjaldiđ fellur. Ţađ er hins vegar ekki eins auđvelt og ţađ sýnist. Til viđbótar var tíminn af skornum skammti.
- Df3 De4 52. Da3 Ke8 54. Kh3 Dd5 55. Kh4 De5 56. Kh3 Dd5 57. Kh4 De5 ˝ ˝
Tíminn var á ţrotum og ţví var ţráleikiđ jafntefli stađreynd. Gríđarleg baráttuskák hjá okkar manni sem hefđi auđveldlega getađ tapast hefđi ekki veriđ fyrir afleik hvíts. Hvítur spennti bogann hátt og varđ bráđrćđi sínu ađ bráđ. Úrslitin eru Jóni afar hagstćđ og hann á góđa möguleika á ađ ná sínum 3. Stórmeistaraáfanga á mótinu.
Hrant Melkumyan (2676) ˝ ˝ Jón Viktor Gunnarsson (2443
Óvćnt úrslit
Af nógu er ađ taka í flokknum óvćnt úrslit líkt og venjulega.
Stórsigrar dagsins:
- Kristján Eđvarđsson (2176) vann IM Victor C Shen (2401)
- Símon Ţórhallsson (2009) vann FM Stig Tjomsland (2300)
- Loftur Baldvinsson (1945) vann NM Hans M Niemann (2275)
- Hörđur Jónasson (1562) vann David Kenney (1885)
- Óskar Víkingur Davíđsson (1454) vann William Olsen (1716)
Árangur Kristjáns Eđvarđssonar vekur athygli en hann er nú búinn ađ vinna ţrjár skákir í röđ og er ađ vinna 40 skákstig! Kristján mćtir stórmeistara á morgun, GM Pouya Idani (2496) sem er sá ţriđji sem hann mćtir í mótinu.
Símon Ţórhallsson (2009) er ađ fara á kostum og hefur einnig unniđ ţrjár skákir í röđ. Í 6. umferđ lagđi hann FM Stig Tjomsland (2300) frá Noregi og er ađ moka inn heilum 77 skákstigum. Símon hefur svart á IM Alina L´ami (2393) á morgun og ćtlar sér vafalaust stóra hluti.
Loftur Baldvinsson (1945) hefur líka unniđ ţrjár í röđ og er ađ grćđa 35 stig. Hann lagđi NM Hans M Niemann (2275) í dag og hefur svart á FM Lars Oskar Hauge (2380) á morgun nú er ađ vanda sig!
Hörđur Jónasson (1562) hefur fengiđ 2,5 úr síđustu 3 og er ađ grćđa tćp 15 stig. Hann mćtir Jens Erik Kofoed Hald (2069) á morgun og heldur vonandi áfram góđu gengi!
Óskar Víkingur hefur átt gott mót og er 45 stig í plús! Hann mćtir Ludwig Roser (1802) á morgun og heldur pottţétt áfram ađ tefla vel.
Óvćnt úrslit 6. umferđar
- GM Rui Gao (2533) ˝ ˝ GM Pavel Eljanov (2727)
- GM Hrant Melkumyan (2676) ˝ ˝ IM Jón Viktor Gunnarsson (2443)
- Zbigniew Pakleza (2498) ˝ ˝ GM Sergei Movsesian (2665)
- IM Dagur Arngrímsson (2366) ˝ ˝ GM Héđinn Steingrímsson (2530)
- GM Hjörvar Steinn Grétarsson (2554) ˝ ˝ IM Justin Sarkar (2376)
- GM Sabino Brunello (2540) ˝ ˝ IM Alina L´ami (2393)
- GM Sahaj Grover (2519) ˝ ˝ WGM Sarasadat Khademalsharieh (2357)
- IM Vladimir Hamitevici (2450) 0-1 FM Tibor Kende Antal (2317)
- WGM Nino Maisuradze (2302) 1-0 IM Bragi Ţorfinnsson (2429)
- Kristján Eđvarđsson (2176) 1-0 IM Victor C Shen (2401)
- WGM Lenka Ptacníkóvá (2242) ˝ ˝ GM Ralf Akesson (2456)
- Ansgar Barthel (2230) 1-0 FM Einar Hjalti Jensson (2390)
- Örn Leó Jóhannsson (2107) ˝ ˝ Dagur Ragnarsson (2347)
- Roland Loos (2337) 0-1 Tor Gulbrandsen (2095)
- Stefán Bergsson (2063) ˝ ˝ Philipp Hitzler (2315)
- Benjamin Haldorsen (2307) ˝ ˝ Alberto Prieto (2045)
- Símon Ţórhallsson (2009) 1-0 FM Stig Tjomsland (2300)
- Loftur Baldvinsson (1945) 1-0 NM Hans M Niemann (2275)
- Yuri Eijk (2062) ˝ ˝ IM Marin Daniel Pulvett (2434)
- IM Vladimir Poley (2269) 0-1 Tom Skovgaard (2042)
- Jón Kristinsson (2251) ˝ ˝ Matthew Lunn (2034)
- Haraldur Haraldsson (1948) ˝ ˝ FM Richard Bjerke (2180)
- Jón Trausti Harđarson (2170) ˝ ˝ Joerg Mehringer (1955)
- Agnar T Möller (1806) ˝ ˝ Erhard Rueger (2133)
- Jens Weichelt (2132) 0-1 Ben Simpson (1843)
- Dagur Kjartansson (1756) ˝ ˝ Ludo Tolhuizen (2123)
- Gregory Lux (2065) ˝ ˝ Bartosz Miszkielo (1694)
- Dag Andersen (1843) ˝ ˝ WFM Qiyu Zhou (2182)
- Stanislav Gschwendtner (2009) ˝ ˝ Tommy Hansen (1807)
- Per Kr Vigdal (1985) 0-1 Tobias Lang Nielsen (1761)
- Hrund Hauksdóttir (1692) ˝ ˝ Ole Jorn Gyldenas (1969)
- Hans K. Gaarder (1701) 1-0 Kris Klausen (1937)
- August Klofsrud (1571) ˝ ˝ Martin Sandberg (1889)
- Hörđur Jónasson (1562) 1-0 David Kenney (1885)
- Sigurđur Ingason (1880) 0-1 Wojciech Babijczuk (1549)
- Birgir Örn Steingrímsson (1669) ˝ ˝ Dawid Kolka (1875)
- Halldór Atli Kristjánsson (1335) ˝ ˝ Ludwig Roser (1802)
- Óskar Víkingur Davíđsson (1454) 1-0 William Olsen (1716)
- Susan E Chadwick (1370) 1-0 Elmar Fjallheim (1678)
- Karl-Johan Rist (1677) ˝ ˝ Jon Thor Lemery (1273)
- Alec Elías Sigurđarson (1348) ˝ ˝ Nikulás Valgeirsson (1000)
Pörun í 7. Umferđ
Pörun í 7. Umferđ liggur fyrir:
Pörunina má skođa nánar hér.
Flokkur: Spil og leikir | Breytt 15.3.2015 kl. 00:39 | Facebook
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 9
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 116
- Frá upphafi: 8778240
Annađ
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 83
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.