13.3.2015 | 00:18
Reykjavíkurskákmótiđ: Hjörvar Steinn međ fullt hús - Jón Viktor lagđi Gawain Jones og Jón Kristinn međ stórmeistarajafntefli
Óhćtt er ađ segja ađ umferđ dagsins á Reykjavíkurskákmótinu hafi bođiđ upp á allt Stórsigra, frábćr úrslit, afleiki, fléttur og allt ţar á milli.
Sex skákmenn eru enn međ fullt hús eftir fjórar umferđir. Ţeir eru:
- GM Shakhriyar Mamedyarov (2756)
- GM Hjörvar Steinn Grétarsson (2554)
- GM Pavel Eljanov (2727)
- IM Javek Stopa (2544)
- GM Alexandr Fier (2601)
- GM Rui Gao (2533)
Nánar má skođa stöđuna hér.
Ţađ blés ekki eins byrlega og fyrri daginn fyrir frćndur okkar norđmenn, ţví allir sem voru međ fullt hús töpuđu sínum viđureignum. Einn úr ţeirra hópi stendur sig ţó framar áćtlunum, hr. Carlsen! - Nei ekki sá, heldur pabbi hans Magnúsar, Henrik Carlsen. Hann hefur náđ afar hagstćđum úrslitum og mokar inn skákstigum. Hvađ er eiginlega í vatninu heima hjá ţeim feđgum?
Magnús Carlsen mćtir!
Heimsmeistarinn sjálfur mćtir til leiks á skákstađ á morgun. Ekki missa af ţví!
FM Lars Oskar Hauge (2380) sem vann stórmeistara í gćr í ađeins 19 leikjum, fékk ákjósanlega stöđu gegn GM Alexandr Fier (2601), vann peđ og virtist líklegur, en missteig sig í miđtaflinu og tapađi.
Alexandr Fier warmed up for the #ReykjavikOpen by playing Peter Svidler on #c24live! Round 4 now live from Iceland: https://t.co/ImmWWICxFf
chess24.com (@chess24com) March 12, 2015
"Something has gone wrong for Fier in the opening". #ReykjavikOpen.
Tarjei J. Svensen (@TarjeiJS) March 12, 2015
Oops. Lars Oskar missed 18...Ng4! Norwegian in trouble now. #ReykjavikOpen #c24live pic.twitter.com/lKcfdkXVAp
Tarjei J. Svensen (@TarjeiJS) March 12, 2015
Okkar menn áttu jafnframt erfitt uppdráttar gegn ţeim sterkustu, en GM Héđinn Steingrímsson (2530) tapađi fyrir stigahćsta manni mótsins, GM Shakhriyar Mamedyarov (2756). Ţá tapađi stórmeistarinn Stefán Kristjánsson fyrir GM David Navara (2736) í gríđarlega flókinni skák ţar sem báđir áttu sénsa. David Navara mćtti í myndver og skýrđi skákina fyrir Fionu Steil-Antoni og heimsbyggđinni allri í ítarlegu innslagi.
David sló á létta strengi í viđtalinu og sagđi eftirfarandi sem varđ Tístheimi ađ yrkisefni:
There's a Miss Tactics and a Miss Strategy. David Navara: "There should also be a Miss Calculation." http://t.co/2psh9VgMkv #ReykjavikOpen
ChessVibes (@ChessVibes) March 12, 2015
Viđtaliđ viđ David hefst eftir 19 mínútur og 20 sekúndur (19:25:00)
GM Hjörvar Steinn Grétarsson
Okkar menn áttu margir góđar skákir. Einhvers stađar verđur ađ byrja og liggur beinast viđ ađ hefja leikinn á 100% mönnunum. Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2554) fékk ákjósanlega sóknarstöđu og lét ekki bjóđa sér ţađ tvisvar.
Í 14. leik lék Hjörvar g5 og hvítur var svo gott sem varnarlaus gegn liđsafla svarts. Góđur sigur hjá Hjörvari sem er međ fullt hús og eđli máls skv. í hópi efstu manna.
It seems to me that the young Abdumalik thinks that "giving the stare" is her last option in this position. She may be right. #ReykjavikOpen
Tarjei J. Svensen (@TarjeiJS) March 12, 2015
IM Jón Viktor Gunnarsson
IM Jón Viktor Gunnarsson (2443) er í hörku formi ţessa dagana og blés til sóknar gegn stórmeistaranum Gawain Jones (2642). Glöggir lesendur muna vafalaust ađ Jón gerđi jafntefli viđ GM David Navara (2736) í 3. umferđ í gćr.
32..e4
Frá upphafi var ljóst ađ Jón Viktor ćtlađi sér ađ sćkja fast ađ Gawain. Eftir nokkuđ ţunga sókn virtist sem ró vćri ađ fćrast yfir og niđurstađan yrđi jafntefli. Jón var ţó ekki alveg tilbúinn ađ samţykkja ţađ og fórnađi peđi til ađ virkja biskupinn sinn.
38.. exd3
Eftir 38. leik hvíts virtist sem svo ađ ţráskák yrđi niđurstađan, stađan var ađ vísu afar flókin, en varla fyrir hvern sem er ađ sjá í gegnum allar flćkjurnar. Jón Viktor lét ţađ sem vind um eyru ţjóta og drap á d3 og hótar ađ vekja upp drottningu í framhaldinu.
Áfram var skákađ og virtist fátt koma í veg fyrir jafntefli Ţá varđ Gawain á ađ gera mistök, hann lék 43. Kh3 og leyfđi skák međ drottningu á h6. Hví er ţađ mikilvćgt jú, ţađ valdar f8, reitinn sem hvítur ţarf ađ geta notađ til ađ ţráskáka (ţráleika). Mögulega hefđi svartur unniđ ţrátt fyrir ţessi mistök, en greinarhöfundur viđurkennir fúslega ađ skilja ekkert í stöđunni fram ađ ţessu.
- Dxd4
Nú er fátt um fína drćtti. Svartur á leik og lék Dxg6 skák. Hvítur á tvo möguleika, 47. Kg3 sem tapar samstundis eftir Dh4+! Eđa 47. Kh3. Sá síđarnefndi varđ fyrir valinu en hann tapar líka. 47.. Dh7 skák og hvítur verđur ađ fara međ kónginn til baka á g2 (48. Kg2), í ţeim tilgangi einum ađ fá 48.. Dc2 á borđiđ og svartur hótar ađ vekja upp drottningu međ skák.
48..Dc2
Hvítur reyndi 49. De5+ í ţeirri von ađ svartur félli í gildruna 49.. Bc7 50. De8# - Svartur hins vegar vék sér undan međ 49..Ka8 og ţar međ var niđurstađan ljós.
GM Gawain Jones 0-1 IM Jón Viktor Gunnarsson!
Jón Kristinn Ţorgeirsson
Fjölmargir íslendingar áttu góđar skákir í umferđinni. Jón Kristinn Ţorgeirsson (2177) var ekki í vandrćđum međ svart gegn GM Sahaj Grover (2519) og gerđi jafntefli.
- Einar Valdimarsson (1889) lagđi svíann Magnus Wahlbom (2278)
- Dagur Kjartansson (1756) vann Bart Stam (1972)
- Óskar Víkingur Davíđsson (1454) vann Jack Van Zyl-Rudd (1648)
- Og Aron Thor Mai (1320) vann Mikhail Kruglyak (1775) !
Jafntefli viđ sterka andstćđinga eru líka merki um framfarir okkar fólk átti slatta af ţeim:
- Veronika Steinun Magnúsdóttir (1571) gerđi jafntefli viđ Harald Haraldsson (1948)
- Heimir Páll Ragnarsson (1497) gerđi jafntefli viđ David Kenney (1885)
- Birgir Örn Steingrímsson (1669) gerđi jafntefli viđ Otto Milvang (1872)
Íslendingar áttu ađ sjálfsögđu fleiri vinningsskákir, en árangur ţeirra er tíundađur í viđhengdu skjali neđst í fréttinni og hér.
Óvćnt úrslit
- IM Nico Georgiadis (2468) ˝ ˝ GM Erwin L´ami (2605)
- GM Gawain C B Jones (2642) 0-1 IM Jón Viktor Gunnarsson (2443)
- GM Eric Hansen (2566) ˝ ˝ IM Tania Sachdev (2404)
- WGM Sarasadat Khademalsharieh (2357) ˝ ˝ GM Hannes Hlífar Stefánsson (2560)
- GM Zbigniew Pakleza (2498) ˝ ˝ FM Einar Hjalti Jensson (2390)
- IM Guđmundur Kjartansson (2491) ˝ ˝ FM Kazim Gulamali (2350)
- GM Sahaj Grover (2519) ˝ ˝ Jón Kristinn Ţorgeirsson (2177)
- Alan M Byron (2172) ˝ ˝ GM Luis Galego (2462)
- IM Marc Esserman (2426) ˝ ˝ Ludo Tolhuizen (2123)
- Jón Trausti Harđarson (2170) ˝ ˝ IM Alina L´ami (2393)
- IM Dagur Arngrímsson (2366) ˝ ˝ Henrik Carlsen (1986)
- Johan Sigerman (2123) ˝ ˝ IM David H. Cumings (2345)
- Eivind Olav Risting (2100) ˝ ˝ FM Jonas Rosner (2324)
- Grant W Bucher (2087) 1-0 FM Guđmundur Stefán Gíslason (2321)
- Gregory Lux (2065) ˝ ˝ Philipp Hitzler (2315)
- Alberto Prieto (2045) 1-0 FM Sebastian Mihajlov (2308)
- Einar Valdimarsson (1889) 1-0 Magnus Wahlbom (2278)
- Lopez Jaime Martinez (2044) ˝ ˝ FM Ahmad Siar Wahedi (2287)
- Baldur Teodor Petersson (1951) ˝ ˝ IM Petter Haugli (2247)
- Jón Árni Halldórsson (2150) ˝ ˝ Eric De Winter (1776)
- FM Bjerke Richard (2180) ˝ ˝ Michael Marshall (1844)
- Bragi Halldórsson (2140) 0-1 Figuero Fernando Arroyo (1835)
- Dustin Tennessee Opasiak (1781) 1-0 Ţór Már Valtýsson (1974)
- Peter Sebastian Stuhr (1973) 0-1 Bartoz Miszkielo (1694)
- Dagur Kjartansson (1756) 1-0 Bart Stam (1972)
- Haraldur Haraldsson (1948) ˝ ˝ Veronika Steinun Magnúsdóttir (1571)
- Oystein Edbardsen (1662) ˝ ˝ Kris Klausen (1937)
- Ralph P Palmeri (1642) 1-0 Bjarne Undheim (1926)
- Heimir Páll Ragnarsson (1497) ˝ ˝ David Kenney (1885)
- Birgir Örn Steingrímsson (1669) ˝ ˝ Otto Milvang (1872)
- Mikhail Kruglyak (1775) 0-1 Aron Thor Mai (1320)
- Óskar Víkingur Davíđsson (1454) 1-0 Jack Van Zyl-Rudd (1648)
Pörun í 5. umferđ
Pörun í 5. Umferđ liggur fyrir og býđur upp á skákveislu á morgun. Helstu viđureignir verđa:
Smella á mynd til ađ stćkka
Flokkur: Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 00:46 | Facebook
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 2
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 87
- Frá upphafi: 8778242
Annađ
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 64
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.