11.3.2015 | 23:16
Reykjavíkurskákmótiđ: Jón Viktor međ jafntefli viđ David Navara - Tveir íslendingar međ fullt hús
Ţriđja umferđ Reykjavíkurmótsins, sem var ađ ljúka, var afar spennandi.
Norđmađurinn og Fidemeistarinn Lars Oskar Hauge (2380) er ađ öđrum ólöstuđum mađur umferđarinnar, en hann lagđi stórmeistarann Allan Stig Rasmussen (2532) í ađeins 19 leikjum! Fullyrt er ađ slíkt gerist ekki á hverjum degi ţegar um svo sterka skákmenn er ađ rćđa.
Lars Oskar mćtti í myndver og fór yfir skákina međ Fionu Steil-Antoni Yfirferđin hefst eftir tvo klukkutíma og 24 mínútur (02:24:00)
Frćndur okkar norđmenn fjölmenntu til leiks í Reykjavíkurskákmótinu, en hópur ţeirra telur alls 33 skákmenn. Ţrír ţeirra, ţ.m.t. Lars Oskar sem nefndur var ađ ofan, eru enn međ fullt hús eftir ţrjár umferđir. Athygli vekur ađ norđmađur nr. 2 John Ludvig Hammer (2651) er ekki á međal ţeirra.
What a start for the Norwegian teenagers in #ReykjavikOpen! IM A. Tari (15): 3/3 FM L.O Hauge (16): 3/3 FM J-S Christiansen (16): 3/3
Tarjei J. Svensen (@TarjeiJS) March 11, 2015
Mađur dagsins er hins vegar augljóslega Fidemeistarinn Daniel L Bisby (2321) frá Englandi. Í fyrri umferđ dagsins lagđi hann stórmeistarann Sergei Movsesian (2665) og í seinni umferđ dagsins vann hann aftur stórmeistara, í ţađ skiptiđ Axel Rombaldoni (2488) frá Ítalíu.
What a day for Daniel Bisby at #ReykjavikOpen!!! Crushing GMs Movsesian and Rombaldoni on the same day! #greatplay http://t.co/6ACKXj0ZJz
Dusan Chess (@DusanChess) March 11, 2015
Watching teammate Dan Bisby crush everyone at #ReykjavikOpen - will this be a repeat of last year? 3/3 then 3/6? Let's hope not! #fingersxd
Sabrina Chevannes (@SChevannes) March 11, 2015
Alţjóđameistarinn Jón Viktor Gunnarsson (2433), sem jafnframt er skákmeistari Reykjavíkur, átti góđa skák í umferđinni, en hann var međ hvítt gegn tékkanum og stórmeistaranum David Navara (2736). Sá síđarnefndi reiknast međ 2751 Elo-stig á lifandi stigalista og er sem stendur 14. stigahćsti skákmađur heims skv. vefsíđunni 2700.com. Skákin var afar spennandi og lengi vel mátti vart á milli sjá hvor stćđi betur. Jón Viktor náđi hagstćđum uppskiptum í miđtaflinu og var peđi yfir í endatafli. Ţví miđur er ţađ heilagur sannleikur ađ endatöfl međ peđ yfir eru jafntefli (og peđ undir töpuđ ) og lauk skákinni međ jafntefli. Hetjuleg barátta hjá nýkrýndum Reykjavíkurmeistara.
Stađan:
Fjórtán skákmenn eru efstir og jafnir međ fullt hús og ţar af eru tveir íslendingar: stórmeistararnir Héđinn Steingrímsson og Hjörvar Steinn Grétarsson. Fjölmargir íslendingar koma í humátt á eftir međ 2,5 vinninga. Nánar er hćgt ađ glöggva sig á stöđunni hér (íslendingar sérstaklega merktir)
Árangur íslendinga er svo tíundađur í viđhengdu skjali neđst í fréttinni.
Líkt og áđur var nóg af óvćntum úrslitum. Okkar menn létu sitt ekki eftir liggja og náđu margir afar hagstćđum úrslitum. Ţorsteinn Magnússon (1301) vann líklega stćrsta sigur umferđarinnar ţegar hann lagđi norđmanninn William Olsen (1716) 415 stiga munur ţar, takk fyrir!
Hilmir Freyr Heimisson (1861) lagđi Fidemeistarann Richard Bjerke (2180); Mikael Jóhann Karlsson, Jóhann Ingvarsson og Örn Leó Jóhannsson náđu allir jafnteflum viđ alţjóđameistara; Ţá gerđi IM Bragi Ţorfinnsson jafntefli viđ GM Nils Grandelius (2603) frá Svíţjóđ.
Ţá náđu Guđmundur Kristinn Lee, Birkir Karl Sigurđsson og Hjálmar Rafn Sigurvaldason allir hagstćđum úrslitum.
Óvćnt úrslit:
- IM Jón Viktor Gunnarsson (2433) ˝ ˝ GM David Navara (2736)
- IM Bragi Ţorfinnsson (2429) ˝ ˝ GM Nils Grandelius (2603)
- IM Marin Daniel Pulvett (2434) ˝ ˝ GM Gawain C B Jones (2642)
- FM Einar Hjalti Jensson ˝ ˝ GM Sabino Brunello (2540)
- FM Lars Oskar Hauge (2380) 1-0 GM Allan Stig Rasmussen (2532)
- GM Henrik Danielsen (2514) 0-1 WGM Zhansaya Abdumalik (2379)
- GM Pouya Idani (2496) 0-1 FM Johan-Sebastian Christiansen (2351)
- GM Axel Rombaldoni (2488) 0-1 FM Daniel L Bisby (2321)
- IM Vladimir Poley (2269) 1-0 IM Vladimir Hamitevici (2450)
- IM Cristina-Adela Foisor (2349) ˝ ˝ Mikael Jóhann Karlsson (2138)
- IM Justin Sarkar (2376) ˝ ˝ Jóhann Ingvarsson (2135)
- IM Justin Sakar (2376) ˝ ˝ Örn Leó Jóhannsson (2107)
- Henrik Carlsen (1986) 1-0 Dagur Ragnarsson (2347)
- IM Petter Haugli (2247) ˝ ˝ Niels Erik Andersen (1900)
- Martin Sandberg (1889) ˝ ˝ Ţorvarđur Fannar Ólafsson (2230)
- Hilmir Freyr Heimisson (1861) 1-0 FM Richard Bjerke (2180)
- Ben Simpson 1-0 Bragi Halldórsson (2140)
- Páll G Jónsson (1833) 1-0 Gonzalez Alfonso Gonzales (2122)
- Erlingur Ţorsteinsson (2119) ˝ ˝ Bárđur Örn Birkisson (1839)
- Gylfi Ţórhallsson (2084) 0-1 Flemming Borg (1828)
- Eduardo Ribeiro Machado (1818) ˝ ˝ Jens Erik Kofoed Hald (2069)
- David Miller (2066) ˝ ˝ Arnt-Ole Johansen (1819)
- Guđmundur Kristinn Lee (1676) ˝ ˝ Lopez Janie Martinez (2044)
- Matthew Lunn (2034) ˝ ˝ Birkir Karl Sigurđsson (1767)
- Mykhaylo Kravchuck (1475) ˝ ˝ Brandur Hojgaard (1787)
- Hjálmar Sigurvaldason (1450) 1-0 Mikhail Kruglyak (1775)
- Adrian Starosciak (1304) 1-0 Karl Egill Steingrímsson (1720)
- William Olsen (1716) 0-1 Ţorsteinn Magnússon (1301)
Pörun 4. umferđar
Pörun 4. umferđar liggur fyrir og má skođa hér (íslendingar sérstaklega merktir)
Helstu viđureignir verđa:
Athygli er vakin á ţví ađ 4. Umferđ hefst kl. 17 á morgun, ekki kl. 15 eins og annars vćri.
Flokkur: Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 23:52 | Facebook
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 2
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 87
- Frá upphafi: 8778242
Annađ
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 64
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Flottur ţessi norski strákur, Aryan Tari. Ađeins 15 ára (fćddur 1999) og er ţegar kominn međ yfir 2500 skákstig. Vann Dag Arngríms mjög sannfćrandi og yfirvegađ í gćr.
Vel ţess virđi ađ skođa ţá skák sérstaklega, ekki síst hversu auđveldlega honum tókst ađ verjast ţráskákarmöguleikum Dags.
Torfi Stefánsson (IP-tala skráđ) 12.3.2015 kl. 06:36
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.