Gríđarlega spenna var fyrir lokaumferđ Norđurlandamótsins í skólaskák sem lauk á sunnudaginn. Dagur Ragnarsson hlaut gulliđ eftir afar spennandi lokabaráttu í a-flokki. Baráttan var ekki síđur spennandi í b-flokki en ţar hlaut Jón Kristinn silfriđ eftir magnađa lokaumferđ. Óskar Víkingur Davíđsson náđi svo silfrinu í e-flokki flokki međ afar góđri skák. Almennt gekk vel hjá íslensku keppendum og koma alls 148 skákstig inn í íslenskt skákstigahagkerfi eftir mótiđ.
A-flokkur
Dagur var efstur ásamt hinum sćnska Loar Olund fyrir lokaumferđina. Dagur tefldi viđ Mikael Jóhann en hinn sćnski tefldi viđ Danann Rasmus Thorgeirsson. Samkvćmt útreikningum okkar benti flest til ađ hinn sćnski myndi hljóta gulliđ eftir stigaútreikning yrđu ţeir jafnir ađ vinningum.
Dagur fékk fljótt betra gegn Mikka og vann góđan sigur en Svíinn ólundarlegi lenti í ákveđnum vandrćđum. Ţó kom ađ ţví ađ ţví ađ á einum punkti gat hann nánast gert út um skákina. Honum yfirsást vinningsleikurinn, fórnađi ţess í stađ manni fyrir sókn en tapađi. Ţađ var mikiđ fagnađ ţar sem íslensku keppendurnir komu saman saman og mćlt međ ţví ađ Rasmus ţessi fengi orđu!
Svíinn Olund var fremur ófarsćll á mótinu og tapađi niđur unnum stöđum. Hann tók tapinu í lokaumferđinni međ mikilli ólund og var alveg brjál ađ lokinni skák. Sló sjálfan sig hreinlega utan undir og sparkađi í vegg. Var hann meir og minna kallađur "ólundin" af Íslendingunum, sem minnir ef til vill á ţegar Indónesískur skákmađur var kallađur "ótuktin" hér í den.
Frábćr árangur hjá Degi sem var ađeins sjötti í stigaröđ keppenda og hćkkar um 92 stig fyrir frammistöđuna! Árangur hans á Skákţingi Reykjavíkur og Nóa Síríus-mótinu er greinilega engin tilviljun og sjálfsagt hjálpar ţađ mikiđ til ađ koma sjóđheitur frá ţessum tveimur af helstu lykilmótum íslensks skáklífs. Hugarfar Dags er til mikillar eftirbreytni, en ţađ er einfaldlega hugarfar sigurvegarans!
Mikael Jóhann hlaut 3 vinninga og endađi í sjötta sćti. Tefldi um ţađ bil á pari miđađ viđ skákstig. Útsjónarsemi hans í jafnteflisskákinni gegn Olund var frábćr. Síđasta mót Mikka á NM en hann var á elsta aldursári. Verđur sárt saknađ enda frábćr félagi.
B-flokkur
Spennan í b-flokkinum var gríđarleg. Lars Oskar Hauge, hinn norski, var efstur fyrir lokaumferđina međ 4,5 vinning en Jón Kristinn og Oliver voru međ vinningi minna.
Jón Kristinn fékk verra tafl en eins og svo oft áđur snéri hann taflinu sér í vil og hafđi góđan sigur.
Oliver hafđi hvítt gegn Hauge og tefldu ţeir afar flókna skák. Oliver virtist hafa mjög vćnlegt tafl og ef hann hefđi unniđ hefđu ţeir orđiđ allir ţrír orđiđ efstir. Hauge lagđi hins vegar djöfullega gildru fyrir Oliver sem uggđi ekki ađ sér og vann međ útsmoginni drottningarfórn.
Ţađ var smá huggun harmi gegn ađ Hauge hefđi samt náđ gullinu eftir stigaútreikning ţótt Oliver hefđi unniđ skákina.
Jokkó varđ annar međ 4,5 vinning en Oliver endađi í fjórđa sćti međ 3,5 vinning. Sannarlega góđur árangur hjá ţessum efnilegu skákmönnum sem verđur afar gaman ađ fylgjast međ á nćstu árum.
C-flokkur.
Björn Hólm vann öruggan sigur í lokaumferđinni og endađi međ 3,5 vinning og í sjötta sćti. Ţađ er afar góđur árangur hjá skákmanni á sínu fyrsta NM. Eins og tvíburabróđir sinn hefur Björn veriđ í mikilli framför síđustu misserin og á enn eftir ađ eflast. Í senn vandađur og taktískur skákmađur. Hilmir Freyr bjargađi gjörtapađri stöđu í jafntefli og endađi međ 1 vinning. Góđ barátta hjá Hilmi en ţegar svo illa gengur eins og gekk hjá Hilmi geta menn auđveldlega lyppast niđur. Hann stóđ hins vegar í lappirnar og gat gengiđ beinn í baki frá mótinu. Hann getur hins vegar miklu miklu meira en hann sýndi og vonandi búinn ađ tefla sig í gang fyrir Reykjavíkurskákmótiđ. Hilmi er sérstaklega ţakkađ fyrir framlag sitt í fótboltamótinu ţar sem hann var yfirburđamađur.
D-flokkur
Vignir tapađi fyrir sigurvegara flokksins í lokaumferđinni. Komst aldrei almennilega í takt í skákinni en sýndi ţó fína baráttu.
Micha lék af sér manni og tapađi örugglega. Báđir fengu ţeir 3 vinninga. Ţeir félagarnir enduđu í 6. og 7. umferđ.
Vignir getur meira en hann sýndi enda veriđ á palli á NM síđustu ţrjú árin. Flokkurinn var ţó afar ţéttur núna og andstćđingar hans einfaldlega sterkir skákmenn. Vignir er afar taktískur skákmađur og ţarf ef til vill ađ reyna ađ komast í taktískari stöđur út úr byrjununum. Micha er á gríđarlegri uppleiđ í skákinni og sýndi fína endataflstakta. Hann ţarf ţó ađ slípast nokkuđ til. Sérstaklega skemmtilegur piltur sem brosir viđ hvert tćkifćri.
E-flokkur
Óskar Víkingur vann góđan sigur í lokaumferđinni ţar sem hann sýndi afburđaskilning á endatafli. Hlaut 4 vinninga og annađ sćtiđ stađreynd. Glćsilegt hjá Óskari sem á enn eitt ár eftir í flokknum.
Róbert Luu hlaut 2,5 vinninga og endađi í áttunda sćti. Róberti vantar smá reynslu en er mjög vandađan skákstíl og á örugglega oft eftir ađ tefla fyrir Íslands hönd.
Árangurinn
Árangurinn var heilt yfir ágćtur. 33 vinningar af 60 mögulegum og 148 stig í plús segja margt um ţađ!
Ekki tókst samt ađ verja gulliđ sem fór í hendur Dana. Ţađ er samt engu ađ síđur nokkuđ merkilegt ađ sjö af tíu keppendum Íslands eiga eitt ár til góđa í sínum flokki - sem segir ađ viđ ćttum ađ geta komiđ afar sterkir til leiks ađ ári!
Lokahófiđ
Í lok mótsins var haldin lokaathöfn. Fćreyingarnir buđu upp á ljúffengt nautakjöt og ís í eftirrétt. Sjónvarpiđ (Kringvarpiđ) mćtti á stađinn og tók m.a. viđtal viđ Dag Ragnarsson sem sýnt var í sjónvarpinu í kvöld. Tengil frá umfjölluninni má finna hér.
Í lokahófinu var bođiđ upp á fćreyska ţjóđdansa og tókum viđ Erla mamma Óskars Víkings, Micha og Óskar Víkingur ţátt í ţeim.
Rúnar Berg kom og kíkti á okkur og gaf ráđ viđ stúderingar. Rúnar sćkir sjóinn frá Klakksvík um ţessar mundir.
Mótshaldiđ var flott hjá Fćreyingum. Bođiđ upp á fínar ađstćđur og allar skákir mótsins sýndar beint. Hluti Íslendinganna bjuggu viđ fínan kost í einbýlishúsi rétt hjá hótelinu á međan ađrir bjuggu ţar.
Vinum vorum Fćreyingum fćri ég miklar ţakkir fyrir flott mótshald. Íslensku keppendum ţakka ég skemmtilega helgi. Hópurinn sem fór út samanstendur af flottum strákum sem standa saman allir sem einn og stóđu ţétt viđ bak hvers annars. Ţađ er alls ekki sjálfsagt ađ hópur tíu ungmenna á mismunandi aldri passi jafnvel saman og ekkert vesen á einum eđa neinum.
Eldri drengjunum má sérstaklega hrósa fyrir faglega og metnađarfulla nálgun viđ skákina.
Gunnar Björnsson
Flokkur: Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 17:45 | Facebook
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 88
- Frá upphafi: 0
Annađ
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 66
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.