Leita í fréttum mbl.is

Dagur í 4-manna úrslit í kvöld

dagur_vegas.jpgDagur Arngrímsson gerđi sér lítiđ fyrir og komst í 4-manna úrslit á Milljónamótinu í Las Vegas í sínum flokki. Dagur stóđ sig vel í opnum flokki og var á međal 7 keppenda í stigaflokknum 2350-2499 sem fengu 4 vinninga. Einn keppandi varđ ofar og fór beint í lokaúrslitin en ţessir sjö ţurftu ađ keppa innbyrđis um ţrjú laus sćti í lokaúrslitunum.

Samkvćmt upplýsingum frá Hermanni Ađalsteinssyni vann Dagur tvćr af ţremur 15-míntúna skákum og vann svo tvćr hrađskákir og tryggđi sig áfram. Ţeta milljónamót hefur gert margt gott en upplýsingaflćđi er ekki eitt af ţeim. Nánast er vonlaust ađ fylgjast međ öđrum flokkum en efsta flokknum sem sýndur er í beinni útsendingu. Mjög stór mínús í kladdann ađ geta hvorki notađ heimasíđuna, twitter né chess-results til ađ miđla upplýsingum til fólks sem vill fylgjast međ.

Dagur er ţví öruggur međ ađ fá allavega 5.000 dollara í verđlaun en hann er međ stigahćrri mönnum í ţessum úrslitum og miđađ viđ undankeppnina er hann til alls líklegur og gćti komiđ heim međ 40.000 dollara ef allt gengur ađ óskum!

Beinar útsendingar af skákunum virđast ekki í bođi en bein útsending ţar sem skákir í efsta flokki eru skýrđar má nálgast á millionairechess.com og chess24.com. Vonandi verđur eitthvađ hćgt ađ fylgjast međ en fókusinn virđist nánast eingöngu á opna flokkinn.

 

Viđbót (bćtum hér viđ lýsingu Björns Ţorfinnssonar á gćrdeginum):

"Ótrúlegur Dagur í gćr! Međ ţví ađ ná jafntefli međ epískri baráttu gegn GM Matamoros ţá komst Dagur Arngrímsson í sjö manna bráđabanakeppni um ţátttökurétt í Million Dollar Monday (í flokki 2350-2499). Dregiđ var í tvo hópa (4 manna og 3 manna) og teflt lítiđ mót, allir viđ alla. Efstu menn í hvorum hópi tryggđu sér ţáttökurétt en annađ sćti myndi ţýđa annan bráđabana gegn ţeim sem lenti í öđru sćti í hinum hópnum. Andstćđingur Dags í fyrstu umferđ áttađi sig ekki á ţví ađ hann hefđi komist í úrslit og mćtti ekki til leiks (sem í sjálfu sér er rosalegt). Nćsta skák var hrikalega spennandi og var gegn IM Mandizha frá Zimbabwe. Ţađ hallađi á Dag til ađ byrja međ en hann sneri svo skákinni sér í hag í lokin og vann frábćran sigur. Í síđustu skákinni dugđi Degi jafntefli gegn bandarískum IM og var á góđri leiđ međ ađ sigla ţví í hús ţegar katastrófa átti sér stađ og hann lék af sér skákinni í einum leik. Hrikalegt ađ sjá og ţađ fór um okkur alla Íslendinganna. Ţađ ţýddi ađeins eitt, meiri taugaspennu. Ţá var bara ađ bíta í skjaldarrendur og fara í gegnum annan bráđabana. Andstćđingurinn var strembinn, bandarískt barn međ 2380 af kínverskum ćttum. Minni menn hefđu bugast eftir afleikinn í síđustu skák en Dagur mćtti ţvílíkt ákveđinn til leiks og gjörsamlega jarđađi piltinn 2-0 í hrađskákinni. Million Dollar Monday it is! Úrslitin byrja kl.18 á íslenskum tíma, fylgist međ!"


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 7
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 112
  • Frá upphafi: 8778416

Annađ

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 90
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband