20.7.2014 | 16:15
Frode Urkedal skákmeistari Noregs
Alþjóðlegi skákmeistarinn (2487) varð í gær skákmeistari Noregs í annað sinn. Hinn 21 árs, Fróði, sem mun leiða b-lið Norðmanna á Ólympíuskákmótinu, hlaut 7 vinninga í 9 skákum. Ungir og efnilegir skákmenn settu lit sinn á mótið en hinn 15 ára Aryan Tari (2391), sem einnig teflir í b-liði Norðmanna, varð annar. Erik Fossan (2362) varð þriðji.
Um 500 manns tóku þátt í Meistaramóti Noregs sem er hefðbundin þátttaka á mótinu. Meistaramótið í Noregi er mikil hátíð þar sem teflt er í júlí ár hvert. Skákmennirnir sem taka þátt taka sér vikufrí og leigja sér hótelherbergi í viðkomandi bæjarfélagi til að taka þátt í mótinu en á bakvið þetta fyrirkomulag er áratuga hefð. Tímasetningar og staðsetningar á mótunum eru ákveðnar með tveggja ára fyrirkomulagi og samhliða mótinu fer fram aðalfundur norska skáksambandsins.
Jöran Aulin-Jansson, var endurkjörinn forseti norska skáksambandsins, en hann hefur gefið út að eftir þetta tímabil hætti hann. Jansson, sem er 53 ára, tók þátt í sínu 41. meistaramóti í röð! Hann á samt ekki metið því annar keppandi hefur teflt í 43 mót í röð!
Mótið nú markaði tímamót því Skáksamband Noregs fagnaði 100 ára afmæli í ár. Nánar tiltekið í dag, 20. júlí!
Magnus Carlsen, sá sér ekki fært um að taka þátt í hátíðarhöldunum, en hann er í Frakklandi að lýsa Tour to France fyrir norska sjónvarpsáhorfendur. Foreldrar hans, Henrik og Sigrun, voru hins vegar meðal gesta.
Flokkur: Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 16:16 | Facebook
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.7.): 1
- Sl. sólarhring: 23
- Sl. viku: 127
- Frá upphafi: 8779007
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 102
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.