Leita í fréttum mbl.is

Skákţáttur Morgunblađsins: Nansý Davíđsdóttir Norđurlandameistari stúlkna

NMGirls2014LastDay 015Nansý Davíđsdóttir vann gullverđlaun í yngsta aldursflokki á Norđurlandamóti stúlkna á Bifröst um síđustu helgi. Nansý hlaut 4 ˝ vinning af fimm mögulegum en hún vann helsta keppinaut sinn í c-flokki mótsins međ svörtu í nćstsíđustu umferđ. Íslendingar voru nálćgt ţví ađ hreppa einnig gulliđ í b-flokki og segja má ađ einungis tćknileg atriđi viđ jafntefliskröfu hafi komiđ í veg fyrir ađ Sóley Lind Pálsdóttir myndi sigra ţar en í úrslitaskák hennar í fjórđu umferđ kom sama stađan upp ţrisvar, en Sóley ógilti kröfuna međ ţví ađ leika fyrst og krefjast síđan jafnteflis en reglur FIDE gera ráđ fyrir ađ fyrst sé leikur skráđur, klukkan stöđvuđ og síđan kallađ á dómara. En Sóley Lind tefldi skák mótsins í 2. umferđ en međal áhorfenda ađ ţeirri viđureign var Illugi Gunnarsson menntamálráđherra sem kom á laugardagsmorguninn til ađ heilsa upp á keppendur:

Sóley Lind Pálsdótir - Brandy Paltzer (Svíţjóđ)

Sikleyjarvörn

1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 Rc6 7. Rb3 g6 8. Be2 Bg7 9. Dd2 Be6 10. f3 O-O 11. O-O-O Re5 12. Bh6 Bxh6?!

Ţađ er alltaf varasamt ađ taka strax á h6. Ţar er drottningin stórhćttuleg en hvítur hefur sparađ sér tíma miđađ viđ ţekkt afbrigđi međ ţví ađ stađsetja biskupinn á e2 en ekki b3.

13. Dxh6 Hc8 14. h4 Dc7?

Annar slakur leikur. Fórnin á c3, 14. ... Hxc3! 15. bxc3 Dc7 er eina leiđin til ađ skapa mótspil.

15. h5 Rxh5 16. g4 Rf6 17. Hh2!

Útsmoginn leikur sem villir sýn á ađalhluverki hróksins sem er ađ valda c2-peđiđ!

17. ... Hfd8 18. g5 Rh5 19. f4 Rg4 20. Bxg4 Bxg4 21. Rd5 Dd7

Meira viđnám, veitti 21. ... Dc4 en eftir 22. Rxe7+ Kh8 23. He1! stendur hvítur til vinnings. En nú kemur glćsileg leikflétta.

gbesbq9s.jpg22. Hxh5! Bxh5 23. Rf6+! exf6 24. gxf6 Hxc2+ 25. Kb1! Hc1+ 26. Hxc1 De8 27. Dg7 mát.

Hjörvar efstur á Wow air-mótinu

Hjörvar Steinn Grétarsson hefur unniđ allar skákir sínar á Wow air-móti Taflfélags Reykjavíkur. Hann vann Hannes Hlífar Stefánsson í 4. umferđ og hefur vinningsforskot á nćsta mann sem er Dagur Arngrímsson. Ţeir tefla saman í fimmtu umferđ. Allar líkur benda til ţess ađ Hjörvar komist upp fyrir Hannes Hlífar og Héđin Steingrímsson á nćsta stigalista FIDE. Skák Hjörvars og Hannesar lauk eftir ađeins 25 leiki en baneitrađur 20. leikur Hjörvars gerđi í raun út um tafliđ:

Hjörvar Steinn Grétarsson - Hannes Hlífar Stefánsson

Drottningarindversk vörn

1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 Bb4 4. Bd2 Bxd2 5. Rbxd2 d5 6. g3 O-O 7. Bg2 c6 8. O-O Rbd7 9. Dc2 b6 10. e4 Rxe4 11. Rxe4 dxe4 12. Dxe4 Bb7 13. Hfd1 Dc7 14. Re5 Rxe5 15. Dxe5 Hac8 16. c5 Hfd8 17. b4 Ba6 18. Hac1 Bb5 19. De3 a5 20. d5

gbesbqa4.jpg20. ... bxc5 21. dxe6 cxb4 22. Bh3 Hb8 23. e7 Hxd1 24. Hxd1 c5 25. Df4!

- og Hannes gafst upp.

Enn sigrar Magnús Carlsen

Skákheimurinn rak upp stór augu ţegar Magnús Carlsen tapađi tveim skákum í röđ í fyrri helmingi minningarmótsins um Vugar Gashimov í Aserbaídsjan. En í seinni hlutanum vann hann strax tvćr skákir međ svörtu og knésetti helsta keppinaut sinn, Ítalann Caruana, í lokaumferđinni:

Lokaniđurstađan: 1. Magnús Carlsen 6 ˝ v. (af 10) 2. Caruana 5 ˝ v. 3.-5. Karjakin, Nakamura og Radjabov 5 v. 6. Mamedyarov 3 v.

Helgi Ólafsson helol@simnet.is

----------------------------------------------

Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.  

Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 4. maí 2014

Skákţćttir Morgunblađsins


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 21
  • Sl. viku: 110
  • Frá upphafi: 8778414

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 89
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband