Leita í fréttum mbl.is

Wow air stórmótiđ hófst í gćr

Wow air mótiđ - Vormót Taflfélags Reykjavíkur hófst í gćrkvöldi í skákhöll félagsins ađ Faxafeni 12.  Mótiđ er nú haldiđ í fyrsta sinn og keppt er í tveimur stigaflokkum, A flokki fyrir skákmenn yfir 2200 elo skákstig og B flokki fyrir skákmenn á bilinu 2000-2199 elo.  Ţađ má međ sanni segja ađ mótinu hafi veriđ tekiđ opnum örmum ţví margir af okkar sterkustu skákmönnum taka ţátt og gera Wow air mótiđ ađ einu sterkasta skákmóti hér innanlands í háa herrans tíđ. 

Alls taka 22 skákmenn ţátt í A flokknum en međal ţátttakenda ţar eru sex stórmeistarar, ţeirra á međal fyrsti stórmeistari Íslands Friđrik Ólafsson, margfaldur Íslandmeistari í skák Hannes Hlífar Stefánsson og nýjasti stórmeistarinn okkar, Hjörvar Steinn Grétarsson.   Ţrír alţjóđlegir og fjórir Fide meistarar eru einnig međal ţátttakenda ásamt tveimur af okkar efnilegustu skákmönnum sem var bođiđ ađ taka ţátt í flokknum, en ţađ eru ţeir Oliver Aron Jóhannesson og Dagur Ragnarsson.  Ţeir fá hér frábćrt tćkifćri til ađ spreyta sig gegn sterkustu skákmönnum landsins.   

 

Í B flokknum tefla 16 skákmenn.  Stigahćstur er Hrafn Loftsson en međal annarra keppenda má nefna skákmeistara Taflfélags Reykjavíkur Kjartan Maack og ungstirniđ Vignir Vatnar Stefánsson.  Flokkurinn er góđ blanda af "gömlum refum" og ungum og upprennandi skákmönnum sem fá nú dýrmćta reynslu, og vćntanlega helling af stigum í sarpinn.

Eftir ađ Björn Jónsson formađur Taflfélags Reykjavíkur hafđi sett mótiđ og leikiđ fyrsta leiknum í skák stórmeistarans Hannesar Hlífars Stefánssonar og Ţorvarđar Ólafssonar hófst taflmennskan og var hart barist.  Í A flokki var mikiđ um óvćnt úrslit, og fóru ungu bođsgestirnir ţar hamförum.  Tveir Fide meistarar lágu ţá í valnum en Oliver Aron (2115) sigrađi ţá óvćnt Sigurbjörn Björnsson (2360) međan Dagur Ragnarsson (2105) vann Guđmund Gíslason (2314).   Ţá náđi Sigurđur Páll Steindórsson (2215) góđu jafntefli gegn stórmeistaranum Ţresti Ţórhallssyni (2435).  Ţá má nefna ađ alţjóđlegi meistarinn Sćvar Bjarnarson (2101) sem lćtur sig aldrei vanta á skákmót sigrađi Jónas Ţorvaldsson (2286).  Önnur úrslit voru nokkuđ eftir bókinni, en töluvert var um yfirsetur í fyrstu umferđ, en tvćr slíkar eru leyfđar í ţessu sjö umferđa móti.

 

Í B flokki voru úrslitin nokkuđ eftir bókinni, en ţó má nefna góđ jafntefli hjá Jóhanni Helga Sigurđssyni (2029) gegn Hrafni Loftssyni (2184) og Birki Karli Sigurđssyni (1738) gegn Arnaldi Loftssyni (2078).  Ungstirniđ Vignir Vatnar Stefánsson (1844) gerđi jafntefli viđ Kjartan Maack (2121) en ţađ er löngu hćtt ađ koma mönnum á óvart ţótt ţessi ellefu ára drengur nái góđum úrslitum gegn sér miklu stigahćrri andstćđingum.

Önnur umferđ Wow air mótsins fer fram nćstkomandi mánudagskvöld, en ţá munu mćtast međal annarra Fidemeistarinn Ingvar Ţór Jóhannesson og stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Oliver Aron Jóhannesson og Ţröstur Ţórhallsson mun tefla viđ Lenku Ptacnikovu.

 

Gestir eru velkomnir á ţetta stórmót í Faxafeni 12 og viđ hlökkum til ađ sjá ykkur!


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 124
  • Frá upphafi: 8778207

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 83
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband