Leita í fréttum mbl.is

Taflfélag Reykjavíkur - Fyrir alla alltaf

Taflfélag Reykjavíkur er elsta, stćrsta og öflugasta skákfélag ţjóđarinnar.  Í meira en heila öld hefur ţađ aliđ af sér marga af bestu skákmönnum Íslands og séđ skákáhugamönnum fyrir fjöldanum öllum af skemmtilegum skákmótum og viđburđum ţeim tengdum.  Ţađ er ekki á ađra starfsemi félagsins hallađ ađ segja ađ flaggskip ţess hafi veriđ barna- og unglingastarfiđ sem í gegnum tíđina hefur veriđ vel stundađ af skákţyrstum börnum og unglingum.  Frá upphafi hefur kennsla og ţjálfum í barnastarfinu veriđ ókeypis og félagsgjöld fyrir börn eru engin.

Taflfélag Reykjavíkur leggur metnađ sinn í ađ vera međ faglegt starf fyrir alla, hvort sem ţeir eru félagsmenn eđa utan ţess.  Í mótahaldi félagsins er reynt ađ koma til móts viđ óskir og ţarfir sem breiđasta hóps skákmanna ţannig ađ allir geti fundiđ eitthvađ viđ sitt hćfi. Skákţing Reykjavíkur og Haustmót félagsins eru tvímćlalaust flaggskipin í mótahaldi ţess en bćđi hafa ţau veriđ haldin í áttatíu ár og nćstkomandi haust mun Taflfélag Reykjavíkur einmitt fagna 80 ára afmćli Haustmótsins.

Of langt mál vćri hér ađ telja upp öll ţau mót sem félagiđ hefur haldiđ í gegnum tíđina en á međal ţeirra er mikill fjöldi barna- og unglingamóta, hvort heldur sem er liđa- eđa einstaklingskeppnni skólamóta, Reykjavíkur- eđa félagsmeistarakeppni.  Mörg mótanna hafa fest sig í sessi međan önnur eru haldin í stakkt skipti vegna sérstaks tilefnis.  Skákmót öđlinga er gott dćmi um mótahald sem hefur heppnast vel en öđlingamótiđ hefur veriđ haldiđ ár hvert í árarađir og er ćtlađ ţeim hópi skákmanna sem kominn er á fimmtugsaldurinn.

„Tvíburi" öđlingamótsins, Vetrarmót öđlinga, er gott dćmi um vilja Taflfélags Reykjavíkur til ađ koma til móts viđ óskir skákiđkenda. Vetrarmótiđ hefur nú veriđ haldiđ í ţrjú ár viđ góđan orđstír eftir ađ ţađ var prufukeyrt í ljósi ţess ađ fyrirkomulag ađ hafa umferđir einu sinni í viku er vinsćlt međal skákmanna.  Alltaf má ţó breyta og bćta og hér má velta fyrir sér hvort ţörf sé á tveimur samskonar mótum í annars ţéttri mótadagskrá félagsins.

Í gegnum árin hefur Taflfélag Reykjavíkur reglulega stađiđ fyrir stórum skákviđburđum og má ţar nefna alţjóđlegt stórmeistaramót sem félagiđ hélt síđastliđiđ haust en ţar tóku ţátt sterkir erlendir ofurstórmeistarar ásamt nokkrum af sterkustu skákmönnum ţjóđarinnar.

Undanfarna mánuđi hefur starf félagsins veriđ fyrirferđarmikiđ í íslensku skáklífi og ţađ verđur ekkert lát á ţví á nćstunni.  Hiđ mikla og góđa starf gćti ekki fariđ fram ef ekki vćri fyrir öfluga bakhjarla, dyggra félagsmanna og mikillar ástundunar allra skákmanna á viđburđum félagsins.  Fyrir ţennan stuđning kunna forsvarsmenn Taflfélags Reykjavíkur miklar ţakkir og munu svo sannarlega halda áfram á sömu braut.  Lítum nú rétt sem snöggvast á komandi viđburđi og stiklum á stóru hvađ TR-ingar hafa brasađ síđastliđnar vikur.

Áriđ hófst međ metţátttöku í Skákţingi Reykjavíkur ţar sem hátt í 80 keppendur spreyttu sig en mótiđ var nú haldiđ í 83. sinn.  Jón Viktor Gunnarsson og Einar Hjalti Jensson höfđu nokkra yfirburđi í vel mönnuđu móti og komu jafnir í mark og eftir stigaútreikning var ljóst ađ Jón Viktor er Skákmeistari Reykjavíkur 2014.  Guđmundur Gíslason sigrađi síđan á Hrađskákmótinu í kjölfariđ en Róbert Lagerman er Hrađskákmeistari Reykjavíkur 2014.

Rimaskóli fór međ sigur úr býtum á Reykjavíkurmóti grunnskólasveita en skólinn hefur veriđ einráđur á mótinu undanfarin ár.  Félagiđ stóđ síđan fyrir Skákkeppni vinnustađa sem er fjáröflunarmót fyrir starf félagsins og sigrađi liđ frá Actavis en ţetta var í ţriđja sinn sem mótiđ er haldiđ.  Ţá var komiđ ađ Barna- og unglingameistaramót Reykjavíkur ţar sem Vignir Vatnar Stefánsson og Veronika Steinunn Magnúsdóttir stóđu sig best og bera ţví Reykjavíkurmeistaratitlana nćsta áriđ.

Ţá má ekki gleyma árangri Vignis Vatnars á Norđurlandamótinu í skólaskák ţar sem hann hlaut silfurverđlaun en hann var ríkjandi norđurlandameistari í sínum aldursflokki.

Sem fyrr voru TR-ingar fjölmennir í seinni hluta Íslandsmóts skákfélaga sem fór fram dagana 27. febrúar - 1. mars en félagiđ sendi fimm liđ til leiks, ţar af tvćr barna- og unglingasveitir.  Tugir dyggra liđsmanna félagsins mćttu galvaskir til leiks og héldu upp merkjum ţess í harđri keppni.  Ađ ţessu sinni var gengiđ brösugt en Taflfélag Reykjavíkur hefur ekki veriđ tilbúiđ í ţau fjárútlát sem hefur ţurft til ađ halda sér á toppnum í Íslandsmótinu undanfarin ár.

A-sveit félagsins hafnađi um miđbik fyrstu deildar en B-sveitin féll niđur í ađra deild.  C-sveitin var nálćgt toppnum í ţriđju deildinni og lauk keppni í 4. sćti án ţess ţó ađ ná neinni raunverulegri toppbaráttu.  Ţá er félagiđ afar stolt af unglingasveitunum sem báđar stóđu sig međ sóma í fjórđu deildinni og komu hnífjafnar í mark í 6.-7. sćti en um tíma var A-sveitin í toppbaráttunni.  Ţađ er raunar svo ađ félagiđ gćti sent mun fleiri barnasveitir til leiks en ţađ ţarf ađ hafa í huga ađ stór hluti ţessa aldurshóps er ađ stíga sín allra fyrstu skref í skákinni.

Nýveriđ var fyrirkomulagi Íslandsmóts skákfélaga breytt en hér skal ekki fariđ nánar út í ţćr breytingar eđa hvort ţćr hafi heppnast eđa ekki.  Ţađ er ţó ljóst ađ meta ţarf vandlega ávinninginn af ţessum breytingum gegn ókostunum sem vissulega eru nokkrir.

Á dögunum lauk hinu glćsilega Opna alţjóđlega Reykjavíkurskákmóti sem Skáksamband Íslands heldur ár hvert en mótiđ átti nú 50 ára afmćli og var í tilefni ţess sérlega veglegt.  Ţátttökumet var slegiđ og nálgast keppendafjöldinn nú hrađbyri 300 markiđ.  Liđsmenn Taflfélags Reykjavíkur létu sig ekki vanta frekar en fyrri daginn og voru alţjóđlegu meistararnir Guđmundur Kjartansson og Daninn Simon Bekker-Jensen ţeirra stigahćstir.  Simon var hársbreidd frá ţví ađ ná áfanga ađ stórmeistaratitli og raunar var hann líka nálćgt ţví í Íslandsmóti skákfélaga svo ţađ virđist eingöngu tímaspursmál hvenćr áfanginn dettur í hús.

Sérlega ánćgjulegt var ađ fylgjast međ gengi krakkanna úr TR sem öll stóđu sig međ miklum sóma og bćttu ţarna dýrmćtri reynslu í sarpinn.  Ţađ er athyglisvert ađ flest ţeirra stóđu sig mun betur en skákstig ţeirra segja til um og má ţar til dćmis nefna hinn ellefu ára Vigni Vatnar Stefánsson sem hlaut önnur verđlaun fyrir bestan árangur miđađ viđ eigin skákstig.  Vignir hćkkar mikiđ á stigum (55) en Gauti Páll Jónsson (41) og Bárđur Örn Birkisson (28) nćldu sér einnig í góđan stigagróđa.

Eins og komiđ hefur fram heldur veislan áfram hjá Taflfélagi Reykjavíkur ţví framundan eru fjölmargir viđburđir en fyrst skal nefna hinar sívinsćlu laugardagsćfingar félagsins ţar sem kennsla og ţjálfun skákkrakkanna fer fram.  Ćfingarnar fara fram alla laugardaga yfir vetrartímann og eru í höndum ţrautreyndra kennara sem notast viđ nýtt og glćsilegt kennsluefni.  Algjör sprenging hefur orđiđ í ađsókn á ćfingarnar og nýveriđ mćttu hvorki fleiri né fćrri en á sjöunda tug barna sem heyrir til eindćma hin síđari ár.

Sem ţakklćtisvott fyrir ţessa miklu ásókn í barnaćfingarnar ćtlar félagiđ ađ halda glćsilega mótasyrpu fyrir krakka á grunnskólaaldri í kringum páskana í samstarfi viđ Nóa Síríus.  Ţrjú mót verđa haldin, 30. mars, 6. apríl og 13. apríl, og eru vegleg verđlaun í bođi, međal annars í formi ljúffengra páskaeggja frá Nóa Síríus.

Undanfarin misseri hefur WOW air komiđ inn sem öflugur bakhjarl Taflfélags Reykjavíkur og í ljósi ţess góđa samstarfs ákvađ félagiđ ađ stofna til nýs og glćsilegs móts sem ber titilinn WOW air mótiđ - Vormót Taflfélags Reykjavíkur.  Er ţetta enn eitt djásniđ í fórum félagsins ţar sem komiđ er til móts viđ ţarfir skákmanna og fyllt er upp í eyđur sem eru til stađar í íslensku mótahaldi.

Sérkenni Vormótsins mun vera ţađ ađ ţađ er eingöngu opiđ ţeim skákmönnum sem hafa a.m.k. 2000 Elo stig en keppt verđur í tveimur lokuđum flokkum; annarsvegar skákmenn međ 2000 stig og meira, hinsvegar skákmenn međ 2200 stig eđa meira eđa hafa titil ađ bera. Nokkur sćti í báđum flokkum verđa síđan í bođi fyrir skákmenn sem ekki uppfylla skilyrđin en hafa sýnt miklar framfarir undanfarin misseri. Er ţađ von félagsins ađ ţetta mót festist í sessi um ókomna tíđ. Samhliđa WOW air mótinu mun síđan hiđ rótgróna Skákmót öđlinga fara fram og ekkert er ţví til fyrirstöđu ađ sömu keppendur taki ţátt í báđum mótum uppfylli ţeir öll skilyrđin.

Síđast en ekki síst skal nefna til leiks Skemmtikvöld TR sem verđur haldiđ í samstarfi viđ Billiard barinn föstudagskvöldiđ 28. mars.  Ţar verđur mikiđ um ađ vera en stćrsti viđburđurinn verđur vafalítiđ fyrsta Íslandsmótiđ í Fischer random og ljóst er ađ margir munu keppast viđ ađ ná fyrsta Íslandsmeistaratitlinum.  Sem fyrr reynir félagiđ međ viđburđum sínum ađ ná til allra hópa međ ţví ađ vera međ mót opin öllum sem og mót ţar sem uppfylla ţarf ákveđin skilyrđi til ţátttöku og ađ ţessu sinni verđur 20 ára aldurstakmark á skemmtikvöldiđ.

Hér hefur ekki allt veriđ upp taliđ í starfi félagsins enda er ţađ nánast óvinnandi vegur heldur er markmiđiđ frekar ađ benda skákáhugamönnum á hvađ Taflfélag Reykjavíkur ađhefst og hefur upp á ađ bjóđa.  Fréttir af starfi félagsins eru birtar á vef félagsins,www.taflfelag.is, og ávallt má senda fyrirspurnir á taflfelag@taflfelag.isţar sem ţeim er svarađ fljótt og vel.

Taflfélag Reykjavíkur hefur veriđ til stađar í heila öld fyrir alla sem  hafa svo gaman ađ skáklistinni og ţađ verđur áfram til stađar fyrir ykkur í meira en heila öld í viđbót.  Ađsetur félagsins er í Skákhöllinni ađ Faxafeni 12 og ţađ eru allir velkomnir.  Alltaf.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 15
  • Sl. sólarhring: 20
  • Sl. viku: 101
  • Frá upphafi: 8778287

Annađ

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 79
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband