Leita í fréttum mbl.is

Íslandsmót skákfélaga: Pistlar frá Fjölni og SA

Tveir pistlar frá formönnum félaga hafa veriđ birtir ađ loknum fyrri hlutanum. Ţađ er ţau félög sem best stóđu sig miđađ viđ ţađ sem gera mátt ráđ fyrir fyrirfram í efstu deild, ţ.e. SA og Fjölnir.

Pistil Áskels Arnar, formanns SA, má finna á heimasíđu SA.

Pistill Helga Árnarsonar, formanns Fjölnis, fylgir hér ađ neđan.

Fjölnismenn flugu upp yfir fallsćtin í fyrri umferđ Íslandsmótsins

Viss tímamót urđu í sögu Íslandsmóts félagsliđa um liđna helgi ţegar liđum í 1. deild var fjölgađ úr 8 í 10. Tefldar voru 5 viđureignir í hverri umferđ. Skákdeild Fjölnis hafđi endurheimt sćti sitt í 1. deild eftir ađeins árs viđveru í 2. deild.

Nú á 10. starfsári skákdeildarinnar eru markmiđ stofnenda deildarinnar ađ rćtast svo um munar međ sýnilegum árangri kröftugs starfs á barna-og unglingastigi. Helmingur liđsmanna A sveitar Fjölnis eru uppaldir Fjölnisunglingar sem gefst tćkifćri á ađ tefla gegn hinum bestu og ţeir láta ekki bjóđa sér ţađ sćti tvisvar heldur sanna rćkilega styrkleika sinn viđ fyrstu reynslu. Öll ţessi 10 ár hefur einn eđa fleiri Fjölniskrakki teflt međ A sveit Fjölnis á Íslandsmótum, Landsmótum UMFÍ og Hrađskákkeppni taflfélaga.

 

Eftir fyrri hluta Íslandsmótsins í Rimaskóla um liđna helgi má segja ađ Fjölnissveitin hafi blásiđ rćkilega á spár liđsstjóra og ritstjóra www.skak.is um fall sveitarinnar niđur í 2. deild. Kemur ţar helst til frábćr frammistađa "ungu ljónanna" Dags Ragnarssonar, Olivers Arons Jóhannessonar (taplaus) og Jóns Trausta Harđarsonar sem allir hlutu 60% vinningshlutfall í 5 skákum. Ţeir tefldu upp fyrir sig nánast allar skákirnar. Ljónin ungu tefldu af miklum krafti allan tímann og hefur ţétt keppnisdagskrá ţessa árs ábyggilega hjálpađ til, ţví ađ taflmennska ţeirra varđ kröftugari međ hverri umferđ. Ég veit ađ ţessi heilaga ţrenning ásamt Degi Andra Friđgeirssyni, sem nú er mćttur ađ nýju til liđs viđ Fjölni eftir ţriggja ára Noregsdvöl, hafi stođliđ senunni frá stórmeistarahóp efstu liđa.

Ţađ hefur líka reynst uppörvandi og hvetjandi fyrir unga skákmenn Fjölnis ađ hafa leiđandi í sínum sveitum erlenda skákmenn. Skákdeild Fjölnis hefur undantekningarlítiđ fengiđ til liđs viđ sig skemmtilega baráttuskákmenn og međal ţeirra er tvímćlalaust Ţjóđverjinn Thomas Henrichs (2476) sem átti mjög góđa helgi í Rimaskóla,  vann 4 skákir í röđ eftir ađ lúta í gras fyrir TV stórmeistaranum Eduardas Rozentalis (2616) í 1.umferđ. Sigurskák Thomasar gegn "Bolvíkingnum" og Grafarvogsbúanum Braga Ţorfinnssyni var sérstaklega glćsileg og hlýtur sú skák ađ hafa veriđ ein sú skemmtilegasta á mótinu og áhugaverđ fyrir alla skákáhugamenn ađ skođa. Í sveit Fjölnis var einnig annar erlendur skákmađur ađ ţessu sinni, Floris van Assendeflt (2383) ađ nafni, frá Haag. Ţví miđur urđu honum nokkuđ mislagđar hendur í skákum sínum en skák hans viđ Nils Grandelius (2547) í viđureigninni viđ TV í fyrstu umferđ var afar skemmtileg. Bréfskákmeistarinn Jón Árni Halldórsson er traustur liđsmađur og einstakur liđsfélagi sem okkur Fjölnismönnum ţykir gott ađ hafa í sveitinni. Jón Árni var á 3. borđi og átti viđ mun stigahćrri skákmenn ađ stríđa. Hann tapađi ţó slysalega í síđustu umferđ fyrir Kjartani Maack eftir besttefldu skákina sína. Sama átti viđ um Erling Ţorsteinsson sem tefldi viđ "ofurefli" í meirihluta skákanna. Hann tefldi sína bestu skák á móti Gumma Gísla í 4.umferđ og var međ hann lengst af undir. En Erlingi varđ illilega á í messunni undir lok skákarinnar og tapađi henni. Fjölnismenn unnu viđureignir sínar viđ b sveitir GM Hellis og TR en töpuđu fyrir TV, TB og SA. Sveitin er međ 19,5 vinning af 40 mögulegum.

Skákdeild Fjölnis er í 7. sćti 1. deildar ţegar ađ mótiđ er rúmlega hálfnađ. Sveitin virđist nokkuđ örugg um ađ halda sćti sínu en álíka fjarlćg ţví ađ ná verđlaunasćti. Fjölnismenn mega vel viđ una og framganga ungu ljónanna sem hafa notiđ leiđsagnar Helga Ólafssonar, Davíđs Kjartanssonar, Hjörvars Steins, Héđins ofl. í gegnum árin er uppörvandi fyrir framtíđ skákarinnar á Íslandi.

B og C sveitir Fjölnis tefldu í 4. deild og nýttu fjölda ungra skákmanna til ađ tefla ţessar keppnisskákir sem er ţeim öllum mikilvćg og góđ reynsla. Frammistađa Jóhanns Arnar Finnssonar (1433) var mjög góđ en ţessi 13 ára Rimaskólastrákur tapađi engri skák og vann sigur m.a á 1750 stiga manni. Hörđur Aron Hauksson sem lítiđ hefur teflt frá ţví hann útskrifađist frá Rimaskóla áriđ 2009 tefldi líka mjög vel á 1. borđi og ćtti ţessi frammistađa ađ virka hvetjandi á hann viđ ađ stúdera og tefla meira í nćstu framtíđ. Skákdrottningarnar Hrund og Nansý stóđu fyrir sínu og á neđstu borđum í C sveit voru nokkrir ungir skákmenn ađ tefla sínar fyrstu keppnisskákir. Ţeir áttu ţađ allir sameiginlegt ađ vinna a.m.k. eina skák sem er ađeins byrjunin á ţví sem koma skal ađ feta í fótspor ţeirra fjölmörgu barna og unglinga sem náđ hafa góđum árangri innan rađa Fjölnis. Íslandsmót skákfélaga er ávallt mikil skákhátíđ ţar sem ţátttakendur skapa stemmninguna međ fjölbreytileika sínum í aldri, háttum og hćfni. Einkunnarorđ skákhreyfingarinnar "Viđ erum ein fjölskylda" eiga vel viđ á Íslandsmóti félagsliđa.

Helgi Árnason formađur skákdeildar Fjölnis


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 9
  • Sl. sólarhring: 21
  • Sl. viku: 105
  • Frá upphafi: 8778345

Annađ

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 79
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband