Leita í fréttum mbl.is

Stórmeistaramót Taflfélags Reykjavíkur hófst í dag

Klukkan fimm í dag hófst sterkasta skákmót sem haldiđ hefur veriđ á Íslandi í árarađir, lokađ tíu manna alţjóđlegt stórmeistaramót Taflfélags Reykjavíkur.  Ţađ var formađur T.R., Björn Jónsson, sem hóf dagskrána međ beittri setningarrćđu en Björn á veg og vanda af mótinu og hefur sannarlega lyft grettistaki í ađdraganda ţess.

Í rćđu sinni vék Björn međal annars máli sínu ađ ţví hversu sárlega slík alţjóđleg mót hefur vantađ í íslenskt mótahald undanfarin ár. Hann benti á ađ skákmenn margir hverjir hafi réttilega bent á ţessa stađreynd í gegnum tíđina en lítiđ hafi veriđ ađ gert og ţegar hugmyndir hafi veriđ viđrađar á ađalfundum forystu skákhreyfingarinnar hafi undirtektir veriđ drćmar.

Í rćđu formanns kom aukreitis fram hversu kjöriđ tćkifćri mót sem ţetta er fyrir innlenda skákmenn ađ spreyta sig gegn fyrnasterkum erlendum skákmeisturum og ná sér ţannig í dýrmćta reynslu ađ ógleymdum möguleikanum á ađ vinna sér inn áfanga ađ stórmeistaratitili eđa alţjóđlegum meistaratitli.  Skortur á alţjóđlegum mótum innanlands gerir íslenskum skákmönnum mjög erfitt um viđ ađ nćla sér í umrćdda titla.

Formađurinn fór yfir hiđ öfluga barna- og unglingastarf félagsins en uppgangur ţess hefur sjaldan veriđ eins mikill og ţessi misserin. Yngstu iđkendur félagsins munu ekki fara á mis viđ komu erlendu meistaranna ţví á međal hliđarviđburđa međfram ađalmótinu er fjöltefli úkraínska ofurstórmeistarans Mikhailo Oleksienko (2608)  viđ nemendur Taflfélags Reykjavíkur.

 

Ţví nćst kynnti Björn keppendurna tíu til leiks áđur en Illugi Gunnarsson menntamálaráđherra steig í pontu og hélt stutta tölu.  Ţví nćst var mótiđ formlega sett og menntamálaráđherra lék fyrsta leiknum í viđureign úkraínska ofurstórmeistarans Sergey Fedorchuk (2656) og alţjóđlega meistarans Arnars E. Gunnarssonar (2441).

Ţađ má međ sanni segja ađ Arnar, sem snýr nú aftur eftir alltof langt hlé frá kappskákmótum, hafi fengiđ ćriđ verkefni ţegar hann settist anspćnis úkraínska skákmeistaranum í hlutverki svörtu mannanna. Fedorchuk hefur nefnilega áberandi gott vinningshlutfall međ hvítu, svo gott ađ sjaldgćft er ađ sjá slíkt hlutfall hjá skákmönnum.  Af tćplega 530 skákum sem skráđar eru á Fedorchuk samkvćmt vef Fide hefur hann sigrađ í 64% ţeirra og ađeins tapađ 6%.

 

Tefldur var ítalskur leikur og svo fór ađ Arnar játađi sig sigrađan eftir 37 leiki en Fedorchuk hafđi frumkvćđi alla skákina og líklega hefur Arnar teflt full rólega gegn hinum fyrnasterka Sergey.  Nćststigahćsti keppandi mótsins, úkraínski ofurstórmeistarinn Mikhailo Oleksienko (2608) mátti hafa sig allan viđ ţegar hann sigrađi Fide meistarann Sigurbjörn Björnsson (2395) en Sigurbjörn hefur veriđ í töluverđri framför síđastliđin 2-3 ár.

Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2501) vann síđan nokkuđ öruggan sigur á fćreyska alţjóđlega meistaranum Helga Dam Ziska (2485) og enn og aftur sýndi Henrik međ sínum sérstaka skákstíl hversu sterkur hann er í skákum sem einkennast af stöđubaráttu.  Alţjóđlegu meistarinn Guđmundur Kjartansson (2447) laut í gras fyrir danska alţjóđlega meistaranum Simon Bekker-Jensen (2420) og ţá gerđu Ţorvarđur Fannar Ólafsson (2266) og alţjóđlegi meistarinn Bragi Ţorfinnsson (2483) jafntefli í mikilli baráttuskák.

 

Önnur umferđ fer fram á morgun miđvikudag og hefst kl. 15 en ţá mćtast m.a. Bragi og Oleksienko sem og Henrik og Fedorchuk.  Teflt er í húsnćđi Taflfélags Reykjavíkur viđ bestu ađstćđur.  Hćgt er ađ fylgjast međ öllum viđureignunum á stóru tjaldi og ţá eru skákskýringar á skákstađ en međal skákskýrenda má nefna stórmeistarana Jón L. Árnason og Ţröst Ţórhallsson.  Ţađ eru ţví kjörađstćđur fyrir áhorfendur en ađgangur er ókeypis.  Ţá er vert ađ nefna sérlega glćsilegar veitingar sem í bođi eru en viđ setningu mótsins er ekki orđum aukiđ ađ tala um hlađborđ af dýrindis tertum og međlćti.

Texti og myndir af heimasíđu TR.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 18
  • Sl. sólarhring: 19
  • Sl. viku: 111
  • Frá upphafi: 8778409

Annađ

  • Innlit í dag: 16
  • Innlit sl. viku: 93
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband