Leita í fréttum mbl.is

Skákţáttur Morgunblađsins: Rétt ákvörđun í miđtaflinu

Dagur ArngrímssonŢessa dagana hafa skákunnendur á Íslandi getađ fylgst međ tveimur mótum samtímis ţar sem íslenskir skákmenn hafa látiđ til sín taka. Guđmundur Kjartansson og Héđinn Steingrímsson héldu til Andorra eftir ađ hafa teflt í námunda viđ Pýrenea-fjöllin fyrr í mánuđinum og stór hópur íslenskra skákmanna teflir á skákhátíđinni í Pardubice í Tékklandi. Í Andorra er Guđmundur Kjartansson ađeins ˝ vinningi á eftir efstu mönnum međ 4 vinninga ađ loknum fimm umferđum og situr í 7.-19. sćti af 178 keppendum, Héđinn er međ 3 ˝ vinning og er sem stendur í 20.-42. sćti. Tefldar verđa níu umferđir.


Í Pardubice tefla tólf Íslendingar í fjórum flokkum. Í A-flokki ţar sem 238 skákmenn hófu keppni er Hannes Hlífar međ 4 ˝ vinning af sex mögulegum og er í 8.-23. sćti, Hjörvar Steinn Grétarsson er međ 4 vinninga í 24.-55. sćti og Dagur Arngrímsson hefur hlotiđ 3 ˝ vinning og er í 56.-98. sćti. Í B-flokki vekur athygli frábćr frammistađa Mikhaels Jóhanns Karlssonar sem er međ 4 vinninga af fimm. Dagur Ragnarsson er međ 3 ˝ vinning en ţeir eru báđir ađ ná árangri langt umfram reiknuđ elo-stig. Nökkvi Sverrisson og Jón Trausti Harđarson standa sig einnig vel, en yngri skákmenn eru ađ heyja sér mikilsverđa reynslu í D-flokknum: Dawid Kolka, Felix Steinţórsson og Heimir Páll Ragnarsson. Steinţór, fađir Felix sem er fararstjóri piltanna, situr einn í E-flokki og hefur stađiđ sig merkilega vel.

Dagur Arngrímsson hefur veriđ duglegur ađ tefla undanfariđ. Bestur var hann á Íslandsmótinu í fyrra. Hann getur greinilega bćtt sig í endatöflum ţví í 3. umferđ missti hann auđunna stöđu gegn Aseranum Mirzoev niđur í jafntefli; bćtti ţađ upp međ góđum sigri yfir Hvít-Rússanum Stupak strax í nćstu umferđ.

Dagur Arngrímsson - Kiril Stupak

Bogo-indversk vörn

1. d4 e6 2. c4 Bb4+ 3. Bd2 a5 4. Rc3 Rf6 5. Dc2 d6 6. Rf3 Rc6 7. a3 Bxc3 8. Bxc3 De7 9. e4 e5 10. d5 Rb8 11. Bd3 a4 12. c5 O-O 13. Hc1 Bg4 14. cxd6 cxd6 15. Rd2 Rh5 16. Rc4 Rf4 17. Bf1!

Ţetta kostar allt tíma en liđsafli svarts hrekst undan í nćstu leikjum.

17. ... b5 18. Re3 Bd7 19. g3 Rh5 20. Be2 Rf6 21 O-O He8 22. Bd3 Ra6 23. f4!

Blćs til sóknar.

23. ... exf4 24. Hxf4 Rh5 25. Hh4 g6 26. Df2 Rc5 27. Bc2 Dg5 28. Hf1 f6 29. Bd2 De5 30. Bc3 Dg5

Hér er komiđ gott dćmi um vandann viđ ákvarđanatöku í miđtafli. Ađ Dagur skyldi endurtaka leiki benti til ţess ađ hann vćri ekki viss í sinni sök en ađ hrókurinn sé enn á a8 bendir til ţess ađ stöđuuppbygging svarts hafi mislukkast. Ég fylgdist međ skákinni á netinu: ađ fórna skiptamun međ 31. Hxh5 blasti viđ. Framhaldiđ gćti orđiđ 31. ... gxh5 32. Bxf6 Dh6 (32. ... Dg6 33. e5! o.s.frv.) 33. Bc3 Hf8 34. Rf5 Bxf5 35. exf5 Hae8 og nú má svara 36. f6 međ 36. .... De3, engan rakinn vinning ađ finna ţarna. En Dagur fann lausnina og sparađi púđriđ.

31. Rg2! Hf8 32. g4!

Svartur á ekkert svar viđ ţessari einföldu leikfléttu, 32. ... Rg7 er vitanlega svarađ međ 33. Bxf6 og vinnur.

32. ... Bxg4 33. Bd2! De5 34. Hxg4 Dxb2 35. Bb4 Hac8 36. Re3 De5 37. Rf5 Kh8 38. Rd4!

Ţessi riddari er á leiđinni til c6 og gerir ţar út um allar vonir um mótspil.

38. ... f5 39. Rc6 Dg7 40. exf5 Rf6 41. Bc3

- og svartur gafst upp.

Helgi Ólafsson helol@simnet.is

----------------------------------------------

Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.  

Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 28. júlí 2013

Skákţćttir Morgunblađsins


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 8
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 122
  • Frá upphafi: 8778443

Annađ

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 96
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband