Leita í fréttum mbl.is

Héðinn vann í næstsíðustu umferð

HéðinnStórmeistarinn Héðinn Steingrímsson (2544) vann spænska alþjóðlega meistarann Rufino Giminez (2359) í níundu og næstsíðustu umferð alþjóðlega mótsins í Benasque á Spáni sem fram fór í dag. Guðmundur Kjartansson (2444) tapaði hins vegar fyrir spænska stórmeistaranum Julen Luis Arizmendi Martinez (2580).

Héðinn hefur 6,5 vinning og er í 16.-36. sæti en Guðmundur hefur 6 vinninga og er í 37.-76. sæti. Stórmeistararnir Eduardo Iturriizaga (2642), Venúsela, og Maxim Rodshtein (2641), Ísrael, eru efstir með 8 vinninga.

Í lokaumferðinni, sem fram fer í fyrramálið, teflir Héðinn við bandaríska alþjóðlega meistarann Daniel Naroditsky (2486) en Guðmundur við finnska stórmeistarann Heikki Westerinen (2283). 

Þátt í mótinu taka 428 skákmenn frá 37 löndum. Þar af eru 36 stórmeistarar og 25 alþjóðlegir meistarar. Héðinn er nr. 15 í stigaröð keppenda en Guðmundur er nr. 44. Tíu skákir eru sýndar beint í hverri umferð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 13
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 120
  • Frá upphafi: 8778222

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 81
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband