Leita í fréttum mbl.is

,,Sitt er hvort gćfa eđa gjörvileikur"

103_9610
Sigurđur Ingi Jóhannsson,  Sjávarútvegs- og landbúnađar-ráđherra og Umhverfis- og auđlinda-ráđherra, flutti snjalla tölu viđ opnun á Fischer-setrinu á Selfossi. Rćđa Sigurđar fer hér á eftir:
 
Ţeir voru miklir menn Grettir sterki Ásmundarson og Bobby skákmeistari Fischer.

Ţeir fćddust í sitt hvorri heimsálfunni og um ţúsund ár skildu ţá ađ í aldri. Í fljótu bragđi er ekki ađ sjá ađ ţeir hafi átt margt sameiginlegt – en ţó.

103_9584
Í Grettissögu kemur fyrst fyrir - en síđar ţekkt - alţekkt íslenskt spakmćli: „Sitt er hvort gćfa eđa gjörvileikur“. Međ nokkru sanni tel ég ađ heimfćra megi ţessa speki upp á ţá báđa. Afliđ skorti ţá ekki, hvorn á sinn hátt - bardagamenn voru ţeir ţar sem annar beitti skarpri hugsun en hinn lét höndina ráđa. Báđir voru ţeir útlćgir gerđir – báđir áttu sína Gláma ađ glíma viđ – og báđir áttu trausta vini.

103_9582
Mér er ţađ sönn ánćgja af fá ađ segja nokkur orđ er Fischers setur er opnađ hér á Selfossi; - setur eđa stađur til heiđurs og til minningar um ţann skáksnilling sem viđ Íslendingar kynntumst fyrst ađ ráđi eftir ađ hann gjörsigrađi FIDE heimsmeistarann Boris Spasskíj í Laugardalshöllinni í Reykjavík, 1. september 1972. Einvígi ţeirra er öllum sem ţađ muna ógleymanlegt og hefur ađ sönnu veriđ nefnt „Einvígi aldarinnar“.

103_9580
Yfirburđir Fischers og saga hans í heimi skáklistarinnar heillađi fólkiđ, en ţađ var ekki síđur hin sérstaka framkoma hans sem vakti athygli. Okkur Íslendingum fannst viđ ţá strax eignast hlutdeild í honum og vorum stolt af sigrinum. Ţá spillti ekki er hann valdi velţekktan og glćsilegan rokksnilling sér til halds og trausts – eins konar lífvörđ sem hann fól líf sitt og heilsu á međan á einvíginu stóđ. En ţar komu fleiri ađ – hópur skákmanna og ađdáenda sem stóđ međ honum alla tíđ – hverju svo sem á gekk og veitti ekki af – líf Fischers var nefnilega ekki eilífur dans á rósum.

103_9598
Í Brennu-Njálssögu er ađ finna máltćkiđ; „Ber er hver ađ baki nema sér bróđur eigi“ – og íslenski vinahópurinn stóđ svo sannarlega ađ baki Fischers; fylgdist međ afrekum hans og studdi hann í vanda – ef mér leyfist ađ orđa ţađ svo; héldu verndarhendi yfir honum. Ég leyfi mér ađ fullyrđa ađ ef ţessi hópur hefđi ekki veriđ til stađar, vćrum viđ ekki hér í dag ađ heiđra minningu Bobby Fischers og ţví síđur ađ opna sérstakt setur í hans nafni. Ţrátt fyrri styrkleika sinn á sviđi skáklistarinnar ţarfnađist hann vina. Síđustu orđ Bobby Fischers munu hafa veriđ: „Ekkert linar ţjáningar eins og mannleg snerting.“

103_9613
Orđsnillingurinn og Nóbelsskáldiđ okkar Halldór Laxnes segir svo um vináttuna í sinni frćgu bók, Gerplu:

„Sannast mála er ađ eingi vinátta er betur fest en sú er tveir menn eru slíkir kappar ađ hvorugur ţar til hins ađ leita í nokkru efni, uns annar er fallinn; mun ţá hinn fara og hefna hans“.

Ţađ er ekki mikill vandi ađ heimfćra ţessi orđ upp á hina tryggu vini Fischers á Íslandi.

103_9596
Sannarlega var Fischer fallinn – útlćgur orđinn frá sínu heimalandi og viđ ţađ ađ týnast og gleymast umheiminum ţegar vinahópurinn vígvćddist íslensku ríkisborgarabréfi Fischer til handa og hélt til hans í útlegđinni.

Ţetta björgunarafrek var ekki unniđ í skjóli myrkurs – heimsbyggđin fylgdist međ.

103_9623
Ţađ merkilega var ađ ţrátt fyrir ađ allur heimurinn – ţar međ taldar stórţjóđirnar, vissu af ógćfu Fischers, útlegđ hans og einangrun hans létu ţćr sér fátt um finnast – hinn mikli snillingur var óalandi og óferjandi í margra augum fyrir ţađ eitt ađ virđa ekki bann viđ ađ tefla vegna refsiađgerđa stjórnmálamanna gegn ákveđnu landi. Ţađ fannst okkar snillingi langt til seilst á taflborđi stjórnmálanna og tefldi en missti viđ ţađ öll sín réttindi – eigur gerđar upptćkar og hann eftirlýstur af heimalandinu og í framhaldi ţessa beiđ hans fangelsi í fjarlćgu landi.

103_9643
Viđ Íslendingar, höfum sem ađrar ţjóđir, átt okkar sérstćđu snillinga og má nefna einn til sögunnar; Sölva Helgason eđa Sólon Íslandus. Á hans dögum var samtíđin ekki tilbúin ađ taka ţeim manni sem skyldi; listamanni sem eflaust hefur veriđ veikur á geđi og kaus fremur fangelsi, opinberar hýđingar og ađra niđurlćgingu en ađ fórna frelsinu og eigin listsköpun.

Um hann orti Bólu- Hjálmar eftir ađ ţeir sátu saman ađ spjalli eina nótt.

Heimspekingur hér kom einn í húsgangsklćđum,

međ gleraugu hann gekk á skíđum,

gćfuleysiđ féll ađ síđum.

103_9617
Já svona var stađa Fishers og útlitiđ ekki gott. Vinahópurinn íslenski gat ekki horft upp á ţetta ađgerđarlaus og hóf sína baráttu viđ ótal kerfi og ađrar hindranir, stađráđinn í bjarga sínum manni – snillingi međ sérstaka hugsun.

Ţeim tókst međ dyggum stuđningi helstu forystumanna ţjóđarinnar og sjálfs Alţingis ađ leysa upp stöđuna og finna leiki til sigurs og bjarga snillingnum úr vanda sem honum var óleysanleg ţraut. Skákborđ lífsins var nefnilega allt annađ og mun flóknara fyrir Bobby Fischer en ţetta međ svörtu og hvítu mönnunum. Og til Íslands kom hópurinn međ hinn nýja ríkisborgara – heim til ţess lands sem Fischer kaus sitt nýja föđurland.

Ágćta samkoma.

103_9652
Ég ćtla mér ekki ađ rekja ćviferil skáksnillingsins Robert James Fischer eins og hann hét fullu nafni og var fćddur í Chicago 9. mars 1943. Hér eru ađrir staddir betur fćrari en ég um ţá hluti. Ađeins vildi ég nefna ađ hann lést í Reykjavík fyrr en flesta grunađi ţann 17. janúar 2008.

103_9577
Síđan eru liđin 5 ár og nú er veriđ ađ opna setur honum til heiđurs – ţađ er vel.

Fischerssetri er ekki í kot vísađ hér á Selfossi – fćr inni í Gamla bankanum sem á sína sögu. Hingađ kom húsiđ vestan úr Búđardal og eftir ađ hafa veriđ endurreist, var ţađ ađsetur Landsbanka Íslands á Selfossi í fjölda ára. Og ţar sem viđ erum ađ minnast heimsţekkts manns má nefna ađ í húsinu gisti Danakonungur ásamt sínu fríđa föruneyti 1921.

103_9593
Hér í Fischerssetrinu verđur sögđ saga ţessa sérstćđa snillings og til sýnis verđa munir og myndir sem tengjast skákmeistaranum. Án efa á eftir ađ bćtast í safniđ eftir ţví sem árin líđa. Eitt og annađ á eftir ađ koma í dagsins ljós og gott ađ vita til ţess ađ nú er hćgt ađ vísa slíku á ákveđinn stađ.

Og saga Fischers verđur ekki sögđ nema hćgt sé ađ setjast viđ taflborđ og heygja einvígi međ hugann ađ vopni. Hér verđur ađstađa til slíks og annađ ţađ sem skáklistinni tilheyrir. Og hver veit nema skáksnillingurinn sé ţá nćrri ţótt í öđrum heimi sé. Hann kaus sér hinsta legstađ ađ Laugardćlum - skamman veg hér frá.

103_9579
Hingađ eiga eftir ađ koma ferđamenn og ađrir gestir til ađ forvitnast og frćđast um ţennan meistara skáklistarinnar. Viđ skulum hafa ţađ í huga ađ eftir ţví sem árin líđa og sú kynslóđ kveđur sem ţekkti Fischer, hefđi minning hans smám saman dofnađ og jafnvel horfiđ ef ekkert hefđi veriđ ađ gert.

Ţessi stađur sem tileinkađur er snillingnum spornar gegn ţeirri hnignun og međ hjálp Fischerssetursins mun minning Íslendingsins Bobby Fischers lifa um ókomin ár.

Öllum ţeim fjölmörgu sem ađ stofnun Fischerssetursins hafa komiđ vil ég fćra ţakkir og er mér nćr ađ halda ađ ţar tali ég fyrir hönd íslensku ţjóđarinnar.

Fjölmargir hafa lagt hönd á plóginn og erfitt ađ tiltaka einn sérstakan, má ţó nefna skákmanninn Gunnar Finnlaugsson í Lundi í Svíţjóđ og athafnakonuna Aldísi Sigfúsdóttur verkfrćđing á Selfossi.

Góđir gestir.

Megi Fischerssetur ná markmiđum sínum og megi ţađ verđa öllum ţeim til sóma sem ađ standa.
 

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 22
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 129
  • Frá upphafi: 8778231

Annađ

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 88
  • Gestir í dag: 17
  • IP-tölur í dag: 17

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband