4.7.2013 | 07:00
Meistari hernađarlegrar áhćttu - Leonid Stein
Gunnar Finnlaugsson
Meistari hernađarlegrar áhćttu - Leonid Stein
Fyrstu árin

David Bronstein kom í hans stađ eftir talsverđar vangaveltur innan FIDE.
Innrás nasistanna rak fjölskyldu Steins (eldri systur og foreldra) á flótta til Uzbekistan áriđ 1941. Heimilisfađirinn og fyrirvinnan lést ţar. Eftir heimsstyrjöldina flutti móđirin međ börnin til borgarinnar Lvov, nálćgt landamćrum Úkraínu og Póllands.
Snemma kom í ljós ađ drengurinn var ljóngáfađur, stálminnugur og međ frjótt ímyndunarafl. Hann lćrđi ađ tefla tíu ára og varđ snemma bestur međal sinna jafnaldra. Eins og fleiri ungir iđkendur skákarinnar tefldi hann hratt og djarft.
Drengnum til happs var útgáfa bókarinnar Modern Chess Openings á ţví herrans ári 1949. Höfundur bókarinnar var hinn ţekkti skákmeistari Alexey Sokolsky (1908-1967) og var bókin gefin út í Lvov. Bók ţessi varđ brátt byrjanabiblía sovéskra skákmanna. Unglingurinn Leonid tileinkađi sér fljótt ţann fróđleik sem ţessi ágćta bók hafđi ađ geyma. En hann var lítt hrifinn af skákbókum á ţessum árum og var ekki iđinn viđ ađ kynna sér skákfrćđin.
Nćsta stóra skref fram á viđ fyrir skólaţreyttan ungan mann var ţegar hann var kvaddur til herţjónustu haustiđ 1953. Ţar lćrđi hann stundvísi, sjálfsaga og einbeitingu. Sem betur fer var lítiđ um ađ vera hjá sovéska hernum á ţessum árum og gat Leonid ţess vegna snúiđ sér ađ ţví ađ vera herforingi hvítra og svartra á reitunum 64.
Lćrifeđur
Sokolsky var fyrsta fyrirmynd og skákkennari hins unga manns. En fyrsti ţjálfari hans í Lvov var Rafael Gorenstein.
Skáksnillingurinn Efim Geller bjó í Kiev höfuđborg Úkraínu og var tćpum tíu árum eldri en Stein. Hann kenndi Stein undirstöđuatriđin í Spánska leiknum og í hinni margslungnu Kóngsindversku vörn.
Hápunktarnir
Stein vann meistaramót USSR alls ţrisvar sinnum, fyrst í Leningrad 1963, síđan í Tallin 1965 og loks í Tbilisi 1966. Meistaramót Sovétríkjanna á ţessum tíma voru mun jafnsterkari en millisvćđamótin međ um 20 ţátttakendum og stóđu yfir í meir en mánuđ. Mótin fóru oftast fram í lok ársins og oftar en ekki var teflt bćđi um jól og áramót. Fyrir ţessu eru ađ minnsta kosti tvćr ástćđur. Kommúnistar voru ekki miklir vinir kirkjunnar og auk ţess eru jólin ţar austur frá mun seinni á ferđinni en hjá okkur á vesturlöndum.
Á ţessum ţremur mótum tefldi Stein alls 58 skákir, vann 24 og tapađi ađeins fjórum skákum.
Í Leningrad 1963 komst hann seint í gang eins og oftar en eftir sigurinn í níundu umferđ fór vélin i gang.
Stein varđ jafn Spassky og Holmov og vann aukakeppnina í Moskvu 1964.
Nćsti meistaratitill kom 1965. Sá sigur gaf honum farseđil á Ólympíuskákmótiđ í Havannah 1966 og Millisvćđamótiđ í Sousse í Túnis 1967. Eftir tíu umferđir var Polugajevski efstur međ 8 af 10, en Stein hafđi ađeins 6,5 vinninga. Hann vann Polu međ svörtu í spennandi skák í elleftu umferđ.
Ţriđji og síđasti sigurinn kom síđan í Tbilisi ári seinna. Alldrei ţessu vant fékk hann 2,5 vinninga í ţrem fyrstu umferđunum. Í fjórđu umferđ tapađi hann fyrir Geller, sem hann tapađi oft fyrir. Hann komst í gang aftur, og vann međal annars stutta skák gegn Bronstein og vann meistaramót Sovétríkjanna í ţriđja sinn á fjórum árum! Ţessi sigur gaf honum ţátttökurétt á Millisvćđamótiđ í Sousse á ţví herrans ári 1967.
Ađrir hápunktar eru sigrar á Stórmeistaramótinu í Moskvu 1967 (fimmtíu ára afmćli októberbyltingarinnar). Og minningarmóti Alekhine 1971 á sama stađ (skipt fyrsta sćti međ Karpov).
Á fyrrnefnda mótinu tefldi Stein ađ eigin sögn sína bestu skák á ferlinum gegn Keres, sem fylgir ţessu greinarkorni.
Á síđarnefnda mótinu tefldi Friđrik og var tilgangur ferđarinnar ađ sannfćra Spassky og ađra Rússa um ađ besti stađur fyrir fyrirhugađ einvígi Spasskys og Fischers vćri Reykjavík!
Bent Larsen hafnađi bođum um ađ tefla í USSR vegna ţess ađ verđlaunaféđ var borgađ í rúblum og ekki var hćgt ađ skipta í nothćfan gjaldmiđil á vesturlöndum.
Andstreymi á millisvćđamótum
Fyrsta millisvćđamótiđ sem Stein tefldi í var í Stokkhólmi 1962. Keppendur voru 23 og Stein dró númer eitt. Hann sat ţví yfir í fyrstu umferđ. Stein var ţá lítt ţekktur á vesturlöndum og einungis alţjóđlegur meistari. Ţess ber ađ geta ađ Fischer var ekki viđstaddur ţegar dregiđ var um töfluröđ.
Eftir fyrstu umferđ bankađi Fischer á dyr hjá kunningja sínum Geller og vildi tefla hrađskák. Stein var ţar í heimsókn hjá vini sínum. Geller vildi ekki tefla en benti á Stein sem var mikill hrađskákmađur. Fischer tók drćmt í ţá áskorun en sagđi síđan ađ ţá vildi hann tefla upp á peninga. Stein var ekki vanur ađ tefla hrađskák um peninga en sćttist ţó á ađ setja 10 sćnskar krónur í pottinn.
-Ef ţú vinnur tvćr af fimm er potturinn ţinn sagđi Fischer.
Svipur Bobbys breyttist heldur betur ţegar Stein vann tvćr fyrstu skákirnar og Geller var ađ springa úr hlátri. Eftir ţessa međferđ bauđ Fischer enga forgjöf!
Í hinni frábćru bók Friđriks Viđ skákborđiđ í aldarfjórđung á blađsíđu 104 má lesa um síđustu umferđina í Stokkhólmi. Stein sat eftir međ sárt enniđ ţví hann komst ekki áfram vegna ţess ađ einungis ţrír skákmenn frá sama landi gátu komist áfram. Regla FIDE um ađ hámark fimm af átta í áskorendamóti gćtu veriđ frá sama landi kom í veg fyrir ađ Stein kćmist áfram. Annars var hćtta á ađ allir keppendur kćmu frá USSR, svo miklir voru yfirburđir Sovétmanna á ţessum tíma.
Eftir aukakeppni viđ Gligoric og Benkö endađi Stein í sjötta sćti og fékk nafnbótina Stórmeistari í skák. Eins og menn muna vann Fischer međ yfirburđum.
Nćsta millisvćđamót hjá Stein var í Amsterdam 1964. Ţar fékk Larsen sitt gegnumbrot og deildi efsta sćtinu međ Spassky, Smyslov og Tal. Stein missti aftur af lestinni og varđ í fimmta sćti. Hefđi reglan um takmarkađan fjölda frá sama landi ekki veriđ í gildi hefđi Larsen orđiđ eini skákmađurinn utan Sovétríkjanna í áskorendaeinvígunum 1965.
Larsen skrifađi ađ Stein tefldi glćsilega og hratt, en vćri stundum kćrulaus. Engin skýring fékkst á fjarveru Fischers.
Ţriđja og síđasta tilraun Steins var á millisvćđamótinu í Sousse í Túnis 1967. Ţegar Fisher fór heim ţrátt fyrir örugga forystu hafđi hann unniđ Stein í frćgri skák. Stein hafnađi ađ lokum í sjötta til áttunda sćti.
Ólympíuskákmót
Stein tefldi í sveit USSR sem fyrsti varamađur í Tel-Aviv og hlaut 8,5 vinninga í ţrettán skákum.
Hann var einnig međ á hinu tilkomumikla Ólympíuskákmóti á Kúbu 1966, ţá á fjórđa borđi. Hann fékk 7,5 af 12.
Stein var ţá skákmeistari Sovétríkjanna og Fischer skákmeistari Bandaríkjanna. Fischer vildi ólmur tefla einvígi viđ Stein og ţađ strax ađ loknu Ólympíumótinu. Stein sagist verđa ađ fara heim og tefla á meistaramóti USSR sem ţá var svćđamót. Fischer sagđi ţá viđ blađamenn ađ svo virtist sem sovétmenn vildu ekki tefla viđ sig!
V. Reykjavíkurskákmótiđ 1972Mótiđ fór fram snemma árs og var vel skipađ. Skákmenn af minni kynslóđ minnast mótsins vegna ótrúlegs lokaspretts Friđriks. Stein tefldi á Íslandi í fyrsta og síđasta sinn.Í byrjun móts gerđi Stein mörg frekar stutt jafntefli. Ástćđan kom í ljós upp úr miđju móti ţegar Stein tefldi til síđasta blóđdropa gegn Friđrik, ţótt stađan gćfi vart tilefni til ţess.
Ţá spurđi Friđrik hvers vegna hann hefđi gert svo mörg snemmborin jafntefli, -til ţess ađ komast í bíó. Ţví tefldirđu ţá til ţrautar gegn mér spyr Friđrik, -búinn ađ sjá allar myndirnar!
Á mótinu tefldu tveir ungir menn um tvítugt sem áttu eftir ađ gera garđinn frćgan. Ţetta voru ţeir félagar Ulf Andersson og Jan Timman. Eina tapskák Stein var gegn góđkunningja mínum Ulf Andersson. Á ţessum árum tefldi hann djarft og vann góđa skák gegn Stein, sem fylgir ţessum línum.
Andersson tefldi 1.e4! og vann snaggaralega. Hann komst ţó ađ ţví ađ ţrautseiga hans og endataflstćkni naut sín betur í rólegum stöđum og ađ minnsta kosti tveir ţriđja skáka hans međ hvítu hafa hafist á 1.Rf3. Skákstíl Ulfs má líkja viđ stíl tennisstjörnurnar Björn Borg, sem ávallt beiđ eftir mistökum andstćđingsins og fór aldrei í sókn fyrr en andstćđingurinn var varnarlaus.
Ulf Andersson - Leonid Stein
Reykjavík 1972
1.e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 d6 6. Bc4 1972 tefldi Andersson eins og Fischer! 6.- Db6 7. Rb3 e6 8. O-O Be7 9. Be3 Dc7 10. f4 a6 11. Bd3 b5 12. a4 Mun algengara er 12.Df3 12.- b4 13. Rb1 a5 14. R1d2 O-O 15. De2 e5 16. f5 d5 17. g4 dxe4 18. Rxe4 Rd5 19. f6! gxf6 20. Bh6 Hd8 21. Hf3 Rf4? 22. Hxf4! Hxd3 23. cxd3 Be6 24. Rxf6 Bxf6 25. Hxf6 Bxb3 26. Hc1 Bd5 27. Df2 He8 28. Hc5 Be6 29. Dh4 Kh8 30. Hf2! Svartur gaf
Best skák Steins á ţessu móti er án efa gegn Guđmundi Sigurjónssyni. Ţá skák er ađ finna međ skýringum í mjög svo athyglisverđri bók Eduard Gufelds um Stein. Stuđst er viđ skýringar Gufelds.
Guđmundur Sigurjónsson - Leonid Stein
Reykjavík 1972
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. f4 Bregđur út af alfaraleiđ. Algengari leiđir eru 6.Bg5, 6.Be2, Bc4 og 6.Be36.-Rbd7 6.-Rc6 er afleikur vegna 7.Rxc6 bxc6 8.e5! međ yfirburđum fyrir hvítan 7. Rf3 Leiktap. Betra var 7.Bc4! 7.-e6 8. Bd3 Be7 9. O-O Rc5! 10. Kh1 O-O 11. a4 b6 Vegna kraftlausrar taflmennsku hvíts hefur svartur jafnađ tafliđ og vel ţađ. 12. b4? Skárra var 12.e5. Svartur nćr nú yfirhöndinni 13.- Rxd3 13. cxd3 Bb7 14. Be3 Hc8 15. Db3 d5! Dćmigert gegnumbrot 16. e5 d4! Stórsnjall leikur. Ef hvítur leikur 17.exf6 vinnur svartur manninn aftur međ 17.-Bxf6 17. Rxd4 Lakara var 17.Bxd4? Bxf3 18.exf6 Bxf6! 19.Bxf6 Dxf6
17... Rg4 18. Bg1 Rxh2! Glćsilegt. Snilldin byggist á ţví ađ riddarinn á c3 er ekki nćgilega valdađur. Eftir 19.Kxh2 kemur 19.-Bxb4 međ máthótun á h4 19. Hfc1?! 19.Hfd1 var skárri leikur 19.-Rg4 20. Re4 Bxb4! Svartur vinnur peđ og hefur ţar ađ auki lakari stöđu. Úrvinnslan vefst ekki fyrir Stein. 21. Rg5 Dd5 22. Re4 Dxb3 23. Rxb3 Bxe4 24. dxe4 b5 25. axb5 axb5 26. g3 h5 27. Kg2 Bc3 28. Hab1 Hfd8 29. Hc2 Hc4 30. Kf3 Bxe5 31. Hxc4 bxc4 32. Ra5 Hd3 33. Kg2 Hd2 34. Kf3 Bd4 35. Bxd4 Hd3 36. Kg2 Hxd4 37. e5 Hd2 Hvítur gaf
Tvćr góđar vinningsskákir Steins í Moskvu
Meistaramót USSR í Moskvu 1961 vannst af Petrosian. Ţetta var eina tapskák sigurvegara mótsins. Hetja okkar - Leonid Stein - tók ţátt í fyrsta sinn og lenti í ţriđja sćti og fékk ţátttökurétt á millisvćđamótinu 1962.
Leonid Stein - Tigran PetrosianMoskva 1961
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 c5 5. a3 Bxc3 6. bxc3 Re7 7. Dg4 Viđ sem erum komir til vits og ára leikum hér hinn hćgverska leik 7.Rf3 7.-Rf5 Petro reynir ađ lćgja öldurnar međ ţessum gamla leik. Bćđi 7.-O-O og ekki síst 7.-Dc7 eru algengari leikir 8. Bd3 h5 9. Df4 Rc6 Hér var 9.Dh4 taliđ sterkast framhald svarts. En Petro vill ekki tefla lítiđ eitt lakara endatafl viđ nýliđann, sem var ţekktur fyrir skort á ţolinmćđi. 10. Re2 Rce7 11. Rg3 Rg6? Eđlilegra var ađ undirbúa langa hrókun međ 11.-Bd7 eđa 11.-c4 12. Dd2 Bd7 13. Hb1! Nú yrđi 13.-Dc7 svarađ međ 14.Dg5 13.- Hb8 14. O-O c4 15. Be2 Rxg3 Eftir 15.-h4 16.Rxf5 exf5 17.Bf3 Be6 18.a4! hefur hvítur yfirburđastöđu
16. fxg3! Opnar f línuna og hótar jafnframt 17.h4 og 18.Dd1 međ peđsvinningi h4 17. Bg4! Ţessi biskup leikur ađalhlutverkiđ í lokasenu ţessarar skákar.17.-hxg3 18. hxg3 De7 19. a4! Bxa4 20. Ha1 b5 21. Ba3 Dd7 22. Hf2 Hb7 23. Haf1 Dd8 Svo virđist sem svartur hafi valdađ allt. 23.-Dc8 leiđir ekki til betra lífs vegna 24.Dg5! međ hótun um fórn á g6. Ekki gekk heldur 23.-Rf8 vegna 24.Hxf7 Dxf7 25. Hxf7 Hxf7 26. Bxf8. Biskup svarts er heldur betur utangátta á a4.
24. Dd1! Ţessi hćgverski leikur hótar 25.Bxe6! fxe6 26.Dg4 Hh6 25. Bc1 Hh7 26. Bxe6! Svartur gafst upp. Hrífandi og lćrdómsrík skák.
Lenoid Stein -Paul Keres
Moskva 1961
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. O-O Rxe4 Opna afbrigđiđ í Spánska leiknum, Larsen tefldi ţessa byrjun á tímabili og skrifađi bćkling um afbrigđiđ 6. d4 b5 7. Bb3 d5 8. dxe5 Be6 9. c3 Algengast, en einnig er hćgt ađ leika 9.Rbd2, 9.De2 og 9.Be3 9.-Bc5 Enn er algengast leiđin valin. Ađrir valkostir eru 9.-Be7 og 9.-Rc5 10. Rbd2 O-O 11. Bc2 f5 Gamall leikur. Hvassast er 11.-Rxf2 og rólegra er 11.-Bf5 12. Rb3 Bb6 13. Rfd4! Betra en 13.a4, sem lengi var álitin besti leikur hvíts í stöđunni 13.- Rxd4 14. Rxd4 Eftir 14.cxd4 a5 hefur svartur mótspil á drottningarvćngnum Dd7 15. f3 Rc5 16. Kh1! "Ţvílík dýpt og innsći í leyndardóma stöđunnar" skrifađi Vasjukov í mótsblađiđ. Fjarlćgir kónginn úr skálínunni. Leikurinn gefur hvítum líka möguleika á ađ leika Hg1 og g2-g3 16.-Rb7? Keres missir ţolinmćđina og vill leika c7-c5 sem fyrst. Betra var 16.-Hae8 17. Be3! c5 18. Rxe6 Dxe6 19. a4!! Stórsnjall leikur. Flestir hefđu leikiđ 19.f4 án mikillar umhugsunar. Ef 19.-Dxe5
ţá 20.He1! Dd6 21.axb5 axb5 22.Hxa8 Hxa8 23.Bxf5 og biskupar hvíts verđa mjög virkir 20. Ra5 20. Bf2! Kh8 21. He1 Svartur hefur engar bćtur fyrir slćma stöđu manna sinna. Úrsvinnsla Stein er óađfinnanleg 21.-Ha7 22. De2! b4 23. cxb4 cxb4 24. Bxb6 Dxb6 25. Had1 Dc5 26. Bd3! Db6 27. Bb1 Dc6 28. Dd2! Dxa4 29. Dxd5 Rc6 30. Bxf5! Skemmtileg leikflétta. Hvorki 30.-Hxf5 Dd8 eđa 30.-Re7 31.Dc5! var teflandi. 30.-Db5 31. Dd6 Stein velur styđstu leiđina í tímahrakinu 31.-Db8 32. Dxc6 Hxf5 33. e6 He7 34. Hd7 He8 35. Hb7 Dc8 36. Hc7 Db8 37. Dd7 Hg5 38. f4 Hg6 39. f5 Hg5 40. f6! Og Keres gafst upp
Heimildir;
1 Leonid Stein Master of Risk Stragety. Höfundar Eduardo Gufeld og Efim Lazarev. Gefin út 2001 í Davenport USA.
2. Grein í New in Chess númer 2 1995. Höfundar Adrian Mikhalchisbin og Viktor Kart
3. Chess Assistant 11. Rússneskt skákforrit međ miljónum skáka og vélina Rybka4.
Lundi Svíţjóđ í júní 2013
Flokkur: Spil og leikir | Breytt 3.7.2013 kl. 23:22 | Facebook
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 3
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 110
- Frá upphafi: 8778234
Annađ
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 79
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.