Flest bendir til ţess ađ Hannes Hlífar Stefánsson nái ađ landa sínum tólfta Íslandsmeistaratitli á Opna Íslandsmótinu sem lýkur um helgina í Turninum viđ Borgartún. Stađa efstu manna eftir 8. umferđ:1.Hannes Hlífar Stefánsson 7 ˝ v. (af 8) 2. Björn Ţorfinnsson 6 ˝ v. 3.-5. Hjörvar Steinn Grétarsson, Bragi Ţorfinnsson og Héđinn Steingrímsson 6 v.
Hart er barist um Íslandsmeistaratitil kvenna en ţćr efstu voru Lenka Ptacnikova, Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir, Elsa María Krístínardóttir og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, allar međ 4 ˝ v.
Mót ţetta fer fram viđ ţćr óvenjulegu ađstćđur ađ teflt er á 20. hćđ međ útsýni yfir fjallahringinn og borgarlandiđ, yfirbragđ ţess er hrátt međ létt blúsađa" New York vöruhúss-stemningu svífandi yfir vötnum í ópússuđu rými; ţó lýsing geti varla talist góđ og kliđur berist frá ađliggjandi sal sem hýsir Birnu-kaffi" hafa keppendur ekki kvartađ mikiđ; einna helst ađ einhverjir séu ađ agnúast út í skákstjórana en ţeir er nú ýmsu vanir. Ýmis óvćnt úrslit hafa séđ dagsins ljós, Héđinn Steingrímsson féll á tíma í flókinni stöđu gegn Bandaríkjamanninum Michael Grove í 2. umferđ og Bragi Ţorfinnsson tapađi fyrir Lofti Baldvinssyni, sem í engu samhengi viđ slćma byrjun og erfitt miđtafl, hristi fram úr erminni magnađa leikfléttu sem leiddi til máts. Viđureignir sem flokka má undir uppgjör okkar bestu manna eru of fáar ađ mati undirritađs og enginn skákmađur hefur náđ árangri yfir 2500 elo-stig nema Hannes Hlífar, sem hlaut 50% vinningshlutfall á mótinu í fyrra, en nú blćs byrlegar fyrir honum og árangur hans er uppá 2729 elo-stig.
Sama dag og mótiđ hófst steig Björn Ţorfinnsson upp úr flensu sem herjađ hafđi á alla fjölskylduna og hóf ađ vinna hverja skákina á fćtur annarri. Eftir flćkjur og furđur sat hann uppi međ gjörtapađ tafl gegn Hjörvari Steini Grétarssyni í 5. umferđ, en sneri taflinu viđ í tímahraki Hjörvars og vann! Síđan lagđi hann Henrik Danielsen ađ velli međ tilţrifum. Í 7. umferđ tapađi hann fyrir Hannesi Hlífari í 7. umferđ en svarađi međ ţví ađ vinna Guđmund Kjartansson í 8. umferđ:
Henrik Danielsen - Björn Ţorfinnsson
Reti-byrjun
1. Rf3 Rf6 2. g3 d5 3. Bg2 c6 4. b3 g6 5. Bb2 Bg7 6. O-O O-O 7. c4 He8 8. d4 Re4 9. Rc3 Rxc3 10. Bxc3 Be6 11. c5!?
Lokar taflinu en skarpara var 11. Rg5.
11. ... Rd7 12. b4 Bg4 13. Dd2 Bxf3 14. Bxf3 e5 15. e3 exd4 16. Bxd4
Var ekki eđlilegra ađ halda biskupaparinu međ 16. exd4 ţó svarti hafi ágćtt tafl eftir 16. ... Rf6 eđa 16. ... Rf8.
16. ... Bxd4 17. Dxd4 Re5 18. Bg2 Df6 19. Kh1 Df5
Einn vandi hvítu stöđunnar varđar ađgang riddarans ađ c4-reitnum.
20. Had1 Dh5 21. h3 a6 22. Hb1 g5 23. g4?!
Ţessi og nćstu leikir Henriks virka ráđleysislegir. Eđlilegra var 23. f4 gxf4 24. exf4 Rg4 25. Hf3 eins og Houdini" stingur uppá.
23. ...Dh4 24. Kg1 Rg6 25. a4 h5 26. Hbd1 He6 27. f4?
Ekki rétta augnablikiđ fyrir ţessa framrás, best var 27. gxh5 Dxh5 28. Dg4 o.s.frv.
27. ... gxf4 28. exf4 He2! 29. gxh5 Dg3 30. Hf2 Rh4!
Vinnur, 31. Hxe2 er svarađ međ 31. ... Rf3+ og drottningin fellur.
31. Kf1 Rf5! 32. Hxe2 Rxd4 33. Hxd4 Dc3 34. Hed2 He8
- og hvítur gafst upp. Hann gat barist áfram međ 35. b5 en stađan er tiltölulega vonlaus.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is----------------------------------------------
Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.
Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 9. júní 2013
Meginflokkur: Spil og leikir | Aukaflokkur: Skákţćttir Morgunblađsins | Breytt 9.6.2013 kl. 17:46 | Facebook
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 88
- Frá upphafi: 0
Annađ
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 66
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.