Leita í fréttum mbl.is

Einvígi um Íslandsmeistaratitilinn í kvöld kl. 18 - Björn með stórmeistaraáfanga

Björn ÞorfinnssonÞað urðu miklar sviptingar í lokaumferð Íslandsmótsins í skák í dag. Hannes Hlífar Stefánsson, sem hafði vinningsforskot fyrir hana, tapaði fyrir Héðni Steingrímssyni eftir að hafa leikið af sér manni. Á nánast sama augnabliki vann Björn Þorfinnsson Braga bróður sinn.

Hannes og Björn urðu efstir og jafnir með 8 vinninga og munu há einvígi með atskákfyrirkomulagi sem hefst kl. 18 í kvöld í Turninum Borgartúni. Áhorfendur velkomnir.

Þess fyrir utan náði Björn sínum fyrsta stórmeistaraáfanga með sigrinum í dag!

Fyrirkomulag úrslitakeppninnar er sem hér segir:

Tefldar verði tvær atskákir (25+10). Verði keppendur enn jafnir þá styttist tíminn (10+10) og svo enn í (5+3). Verði enn jafnt verður tefld Armageddon-skák, hrein úrslitaskák (hvítur með 5 mínútur og svartur með 4 mínútur - ein sekúnda bætist við á leik hjá báðum eftir 60 leiki).



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 13
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 101
  • Frá upphafi: 8778268

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 77
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband