Leita í fréttum mbl.is

Skákţáttur Morgunblađsins: Nansý Norđurlandameistari - Jóhanna fékk silfurverđlaun

Glćsilegur hópurÍslensku keppendurnir sem tóku ţátt í Norđurlandamóti stúlkna sem fram fór í Svíţjóđ um síđustu helgi stóđu sig vel. Nansý Davíđsdóttir varđ Norđurlandameistari í aldursflokki C sem var skipađur keppendum 12 ára og yngri og Jóhann Björg Jóhannsdóttir hlaut silfriđ í A-flokki, 17 - 20 ára en hún hefđi unniđ sinn flokk međ sigri í lokaumferđinni en varđ ađ láta sér lynda jafntefli í skákinni viđ Hrund Hauksdóttir. Jóhanna og Hrund hafa báđar unniđ ţetta mót og einnig Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir. Nansý hlaut silfurverđlaun á opna Norđurlandamótinu sem fram fór á Bifröst í febrúar sl. og hefur átt sćti í hinni sigursćlu sveit Rimaskóla undanfarin misseri. Engum blöđum er um ţađ ađ fletta ađ skákstyrk og almennri ţátttöku stúlkna hér á landi hefur stóraukist undanfarin ár. Ađrir keppendur Íslands voru Sóley Lind Pálsdóttir og Svandís Rós Ríkharđsdóttir en fararstjóri og liđsstjóri hópsins var Davíđ Ólafsson sem er landsliđsţjálfari kvenna. Styrkur Nansýar liggur ekki síst í góđum skilningi á stöđuuppbyggingu og vinnubrögđ hennar eru öguđ; hún rasar ekki um ráđ fram, hefur gott taktískt auga og grípur tćkifćrin ţegar ţau gefast eins og sést í eftirfarandi skák sem tefld var í 4. umferđ:

NM stúlkna 2013:

Nansý Davíđsdóttir - Regina Forsa (Noregur)

Sikileyjarvörn

1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 a6 5. Rc3 b5 6. a3 Bb7 7. Be2 Be7 8. O-O d6 9. f4 Rd7 10. Kh1 Rgf6 11. Bf3 Dc7 12. f5 e5 13. Rb3 O-O 14. De1 Hac8 15. Dg3 Kh8 16. Bg5 Hce8 17. Had1 Dc4

Svartur hefur gott tafl eftir t.d. 17. .. Rb6.

18. Ra5! Dc7 19. Rxb7 Dxb7 20. Rd5 Rxd5 21. Hxd5 Bxg5 22. Dxg5 Dc6 23. Hd2 g6

Og hér gat svartur haldiđ vel í horfinu međ 23. .... Rf6.

24. Hfd1 Rc5 25. Df6+ Kg8 26. Hxd6 Db7 27. Dh4 Hc8 28. fxg6 fxg6

g4pqlaps.jpg- Sjá stöđumynd -

29. b4! Ra4 30. Hd7

- hótar drottningunni og 31. Dxh7 mát. Svartur gafst upp.

Hannes efstur á Skákţingi Norđlendinga - Stefán Norđurlandsmeistari

Hannes Hlífar Stefánsson brá sér norđur í land og tefldi sem „gestur" á Skákţingi Norđlendinga sem fram fór á Akureyri. Tefldar voru at-skákir og kappskákir en mikill stigamunur var međ Hannesi og öđrum keppendum og kom ţví ekki á óvart ađ hann vann auđveldan sigur á mótinu í hópi. Sigurinn var ţó ekki auđveldari en svo, ađ hann tapađi kappskák sinni í lokaumferđinni fyrir Stefáni Bergssyni sem fyrir vikiđ varđ Norđurlandsmeistari og skaut aftur fyrir sig helstu keppinautum sínum međal Norđlendinga. Lokastađa efstu manna:

1. Hannes Hlífar Stefánsson 6 v. (af 7) 2. Ţorvarđur Ólafsson 5 ˝ v. 3. - 4. Sverrir Örn Björnsson og Stefán Bergsson 5 v. Keppendur voru 20.

Friđrik teflir á minningarmóti um Jón Ingimarsson

Friđrik Ólafssoni er međal ţátttakenda á minningarmóti um Jón Ingimarsson verkalýđsfrömuđ og skákmeistara sem fram fer um helgina í Alţýđuhúsinu viđ Skipagötu. Skákfélag Akureyrar og verkalýđsfélagiđ Eining-Iđja eru mótshaldarar en tefldar verđa 10 mínútna skákir. Jón fćddist 8. febrúar 1913 og var mikilvirkur í félagsmálum skákarinnar nyrđra og einnig innan SÍ ţar sem hann var gerđur ađ heiđursfélaga. Keppendur verđa 44 talsins og sonur Jóns, Ingimar, er skráđur til leiks. Friđrik og Ingimar tefldu báđir á Skákţingi Íslands áriđ 1957 sem fram fór á Akureyri.

Helgi Ólafsson helol@simnet.is

----------------------------------------------

Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.  

Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 28. apríl 2013.

Skákţćttir Morgunblađsins


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 92
  • Frá upphafi: 8778323

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband