Leita í fréttum mbl.is

Skákćvintýriđ í Stykkishólmi heppnađist mjög vel

IMG 1521Ţađ voru um 60 krakkar á grunnskólaaldri sem skráđu sig til leiks á Skákmót Árnamessu sem haldiđ var í 4. sinn í grunnskólanum í Stykkishólmi. Tefldar voru sjö umferđir međ sjö mínútna umhugsunartíma. Ţađ kom ekki á óvart ađ langstigahćsti ţátttakandinn, Oliver Aron Jóhannesson frá Fjölni, ynni mótiđ en sigurinn reyndist honum auđveldur. Greinilegt ađ drengurinn er í fantaformi og hefur notađ veturinn vel viđ stúderingar og taflmennsku.

Í öđru sćti varđ Dawid Kolka frá Helli og tapađi hann IMG 1540ađeins fyrir Oliver Aroni í nćstsíđustu umferđ. Jafnir í 3.-4. sćti komu Fjölnisstrákarnir frá Rimaskóla Kristófer Jóel, bróđir Olivers og Jóhann Arnar Finnsson međ 5,5 vinninga. Allir ţessir fjórir efstu tefldu í efri flokki mótsins. Sigurvegari yngri flokks varđ Haukastrákurinn úr Hraunvallaskóla Brynjar Bjarkason međ 5 vinninga. Hann reyndist hćrri á stigum en ţeir Guđmundur Agnar Bragason TR, Felix Steinţórsson Helli, Kristófer Halldór Kjartansson Fjölni og Helgi Svanberg Jónsson Haukum sem allir fengu líka 5 vinninga. 

Aldrei hefur veriđ meiri ţátttaka í flokki Snćfellinga á Skákmóti Árnamessu en núna og ţar varđi Kristinn Hrafnsson Snćfellsbć titil sinn frá síđasta Árnamessumóti. Kristinn hlaut 5 vinninga eftir sigur á félaga sínum Helga Sigtryggssyni í lokaumferđinni. Í 3. sćti í flokki Snćfellinga varđ Hólmarinn Ellert Ţór Hermundarson međ 3 vinninga. 

IMG 1542Skákdrottningar mótsins urđu ţćr bekkjarsystur úr Rimaskóla Ásdís Birna Ţórarinsdóttir og Tinna Sif Ađalsteinsdóttir báđar í Fjölni en ţćr stóđu sig mjög vel og fengu 4,5 vinninga. Ţćr stöllur ásamt Kristni í Snćfellsbć reyndust líka efst stigalausra á mótinu. Stefán Orri Davíđsson hlaut viđurkenningu fyrir ađ vera yngsti skákmađur mótsins en Stefán Orri sem er í 1. bekk Ölduselsskóla gerđi sér lítiđ fyrir og hlaut 4 vinninga og varđ í 18.  sćti mótsins, einu sćti ofar en bróđir sinn Óskar Víkingur. Mótiđ heppnađist einstaklega vel og ţátttakendur voru til mikillar fyrirmyndar allir sem einn. Vinningar og happadrćttisvinningar glöddu alla sem ţá hrepptu en rúmlega 2/3 ţátttakenda fóru út međ verđlaun sem öll voru mjög áhugaverđ. Bođiđ var upp á rútuferđ frá Reykjavík ţar sem súpermömmurnar Dóra og Ţóra sáu um fararstjórn. Veitingar voru í bođi fyrir mót og í skákhléi. Páll Sigurđsson var skákstjóri og mótstjóri var Helgi Árnason formađur skákdeildar Fjölnis en deildin sá um alla framkvćmd mótsins líkt og áđur.IMG 1492

Heiđursgestur mótsins var Lárus Ástmar Hannesson forseti bćjarstjórnar Stykkishólmsbćjar sem bauđ skákmeistarana velkomna í Hólminn, minntist Árna Helgasonar heiđursborgara Stykkishólms og bindindisfrömuđar og lék fyrsta leikinn fyrir Heiđrúnu Önnu Hauksdóttur Fjölni.

Lokastöđu mótsins má nálgast á Chess-Results.

Myndaalbúm (HÁ)

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 14
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 121
  • Frá upphafi: 8778223

Annađ

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 82
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband