Leita í fréttum mbl.is

Gallerý Skák: Gunnar Birgisson á sigurbraut

Gunnar Birgisson sigrihrósandi eina ferđina enn...Kapptefliđ um Taflkóng Friđriks hélt áfram í Gallerý Skák í vikunni sem leiđ. Var ţetta annađ mótiđ af fjórum í mótaröđinni.  Fjölmargir skákáráttuhaldnir og áhćttusćknir einstaklingar á öllum aldri tóku ţátt.

Segja má ađ um sé ađ rćđa eins konar "persónulegaraunhćfnistöđumatsskákgetuprófraun" sem sýnir  ađ mótinu loknu hver er einna bestur og snjallastur ađ međaltali  "taflsístöđumflóknum". Jafnframt er almenn skákgeta allra ţátttakenda sett undir mćliker og reiknuđ til Grand Prix stiga.   Hér nćgir ţví ekki ađ vera í einstöku banastuđi eđa eitt gott dagsform, heldur verđa menn ađ sýna samfellda öfluga, haldgóđa og innihaldsríka skákgetu, til ađ sigra eđa komast á pall.  Góđ skákleikni og keppnisreynsla spila hér ađ sjálfsögđu stóra rullu fyrir utan snilligáfuna, sjálfan X-faktorinn. 

Ađ ţessu sinni var ţađ  verkfrćđingurinn  Gunnar I. Birgisson, hinn brosmildi eitilharđi Guđfinnur leggur ţriđja Gunnarinn röđ ....baráttumađur, sem međ skipulagsgáfu sinni á taflborđinu bar sigur úr bítum međ 8.5 vinningi ađ 11 mögulegum og uppskar 10 GP-stig til viđbótar sínum 4 í fyrsta mótinu sem Harvey Georgsson vann, en hann var ekki međ ađ ţessu sinni.  Guđfinnur Kjartansson varđ í öđru sćti eftir ađ hafa leitt mótiđ fram ađ síđustu umferđ, ţegar hann beiđ lćgri hlut fyrir Jon Olav, Norđmanninum slynga sem orđinn er hálfur Íslendingur.  

Fyrir lokaumferđina stóđu leikar svo ađ Guđfinni nćgđi jafntefli til sigurs í mótinu, en ţađ fór á annan veg, ţví Gunnar Ingi vann Stefán Ţormar, Hellisheiđarséniiđ sjálft,  í hnífjöfnu endatafli á ţrautseigunni einni saman í skák sem flestir töldu ađ vćri dautt jafntefli.   Í umferđunum á undan hafđi Guđfinnur afrekađ ţađ sem seint verđur eftir leikiđ  ađ vinna ţrjá "Gunnarra" í röđ, ţá Gunna Gunn, Gunnar Birgis og Gunnar Skarpa, sem allir urđu ađ lúta í gras fyrir honum ađ ţessu sinni og báru vart sitt bar eftir ţađ. 

Gerđ verđur kvikmynd um mótaröđina, hrakfarir sumra og sigurgöngu annarra,  á vegum GussFilms Inc. sem frumsýnd verđur í Bíó-Paradís međ vorinu eđa á YouTube. Stórslysamynd sem enginn má missa af.  

Ađ öđru leyti vísast til međf.  vettvangsmyndir og mótstöflu yfir leikslokin sem segir reyndar fátt af vopnaviđskiptunum, ţar sem stórsóknir sumra runnu út í sandinn eđa óvćnt  mannstöp settu strik í reikninginn. Eins má segja ađ  skyndileg glámskyggni hafi valdiđ ţar nokkru um, illskeyttur kvilli, sem ekki er hćgt ađ láta bólusetja sig viđ.  Hvort ţađ dugi ađ fara í augasteinaskipti hjá Sjónlagi í Glćsibć sem sumir höfđu á orđi  skal ósagt látiđ.    Nokkrir kóngar urđu einnig bráđkvaddir í hita leiksins.         

Mótaröđin heldur áfram ţegar degi hallar fimmtudaginn 7. febrúar. Allir velkomnir til tafls óháđ ţátttöku í kappteflinu, heldur einungis til ađ spreyta sig og sjá ađra. 

 

2013 Skák janúarlok

 

ESE- Skákţankar 7/13 - 060213


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 95
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 72
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband