28.1.2013 | 22:35
KR-pistill: Stefán Þormar vann síðast
Það er jafnan líf og fjör í Frostaskjólinu og heitt í kolunum þegar gengið er til „burtreiða" á mánudagskvöldum. Þar skiptast menn á hrósa sigri - vera öðrum snjallari.
Það ber til nokkurrar nýlundu að nú er farið að gera heimildarmyndir um skákmótin og atganginn þar til kynningar fyrir komandi kynslóðir eins og sjá má á meðfylgjandi hreyfimynd úr smiðju Guss-Films Inc. Áður hefur verið verið gert frægt myndband um skákofsann sem þar geysar, sem fengið hefur alþjóðlega kynningu á ChessCafé og sjá má á heimasíðu klúbbsins og á Youtube með því að slá inn ChessFury.
http://www.youtube.com/watch?v=m85AC7HLuCA
Það var enginn annar en Stefán Þormar Guðmundsson, hinn fágaði og trausti skákkappi (hellisheiðarséníð sjálft), sem bar sigurorð af öðrum á mánudaginn var, sérstaklega GunnaGunn, sem selur sig jafnan dýrt þrátt fyrir háan aldur og fyrri störf. Báðir luku keppni með 9.5 vinningi af 13 mögulegum en séníið hafði sigurinn á 3 stigum.
Vikuna á undan var það Ingimar Jónsson, sem var allra snjallastur með 10. 5 vinning en Jón G. Friðjónsson kom næstur með 10v. Vikuna þar áður (7. Jan.) tillti einn þessara mörgu herskáu Gunnarra sér á toppinn með 10.5 vinningi ásamt Gunnari I. Birgissyni, sem segir gottaðbúaíkópavogi. Var þar um að ræða skákvíkinginn Gunnar Frey Rúnarsson, sem marði nafna sinn á stigum með 1.5 hundraðasta, sem jafngildir broti úr sekúndu á skíðamóti.
Vegna hins glæsilega sigurs Íslands í IceSave-skákinni fyrir EFTA-dómstólnum í dag fer etv. vel á því að birta hér stutt myndskeið úr öðru hnitnu videó-i frá Guss-Films, sem tekið var í garðveislu KR við Selvatn fyrir tveimur árum, þar sem Jónas Elíasson, prófessor og skákunnandi dregur dár af Gordon Brown, fyrrv. forsætisráðherra Bretlands í skorinorðri stöku sem sýnir vel hvaða hug Íslendingar bera til hans.
Meira á heimasíðunni kr.is (skák)
ESE- Skákþankar 28.1.13Flokkur: Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 22:40 | Facebook
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.7.): 16
- Sl. sólarhring: 28
- Sl. viku: 140
- Frá upphafi: 8779000
Annað
- Innlit í dag: 15
- Innlit sl. viku: 112
- Gestir í dag: 14
- IP-tölur í dag: 13
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.