Leita í fréttum mbl.is

Fjölmenni á glćsilegri skákhátíđ í Laugardalshöll

Hátt í ţúsund manns hafa sótt viđburđi á vegum skákhátíđar, sem stendur nú yfir í Laugardalshöll, í tilefni af ţví ađ fjörutíu ár eru liđin frá heimsmeistaraeinvígi Boris Spassky og Robert Fischer, sem fram fór í Reykjavík sumariđ 1972.  Á málţingi, sem haldiđ var í tengslum viđ mótiđ, var rćtt um ađ standa mćtti betur ađ ţví ađ minna á einvígiđ og nýta ţađ betur í ţágu ferđaţjónustu, t.d. međ varanlegri sýningu eđa gerđ minnismerkis.

Skákhátíđin hófst međ málţingi ţar sem fjallađ var um einvígiđ frá ýmsum hliđum. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi og formađur undirbúningsnefndar skákhátíđarinnar, benti á ađ skákeinvígi Fischer og Spassky vćri án efa frćgasta skákkeppni allra tíma og ţví vćri eđlilegt ađ tala um ţađ sem einvígi aldarinnar. Hann sagđi ađ fram komin gagnrýni um ađ nýta ţyrfti betur ţau tćkifćri sem felast í ţví ađ borgin hafi hýst slíkan heimsviđburđ, vćri réttmćt. ,,Ađilar í ferđaţjónustu hafa t.d. bent á ađ fátt minni á heimsmeistaraeinvígiđ 1972 og ađ ţađ muni tvímćlalaust styrkja Reykjavík sem ferđamannaborg ef bćtt verđur úr ţví. Nú stendur yfir tímabundin sýning í Ţjóđminjasafninu á munum, sem tengjast einvíginu. Rétt er ađ taka til skođunar hugmyndir um ađ koma sýningunni fyrir á varanlegum stađ, sem og hugmyndir um minnismerki. Öflugt skákstarf međal yngstu kynslóđarinnar er ţó eflaust besta minnismerki um einvígi aldarinnar sem völ er á," sagđi Kjartan.

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráđherra, hrósađi starfi skákhreyfingarinnar og sagđi á döfinni ađ skipa starfshóp á vegum ráđuneytisins til ađ fara yfir og meta skákkennslu í grunnskólum međ ţađ ađ markmiđi ađ efla skákstarf enn frekar međal yngstu kynslóđarinnar. ,,Viđ viljum útbreiđa skákíţróttina enn frekar en međ henni fá börn hugarró til einbeitingar nú á tímum mikils áreitis. Ţá erum viđ tilbúin til samstarfs viđ Reykjavíkurborg og skákhreyfinguna um ađ gera sýninguna um heimsmeistaraeinvígiđ 1972 varanlega međ einhverjum hćtti," sagđi Katrín.

Eric Green, stađgengill sendiherra Bandaríkjanna, fjallađi um mikilvćgi einvígis aldarinnar međ tilliti til Kalda stríđsins og stöđunnar í alţjóđamálum á áttunda áratugnum. Hann fjallađi einnig um persónuleika keppendanna og benti á ađ móđir Fischer hefđi veriđ kommúnisti og virk í pólitísku starfi. Hún hefđi síđan yfirgefiđ Fischer ţegar hann var sextán ára. ,,Ţađ hafđi mikil áhrif á hann og hefur ef til vill mótađ afstöđu hans til Sovétríkjanna. Ţađ má á margan hátt segja ađ kalt stríđ hafi geisađ í fjölskyldu hans."

Andrei Melnikov, sendiráđsritari í rússneska sendiráđinu, fjallađi um samskipti keppendanna og ţá hluti sem ţeir áttu ţrátt fyrir allt sameiginlega. Fischer vildi upphaflega tefla í Júgóslavíu enda naut hann mikilla vinsćlda ţar en Spassky fékk á endanum ađ ráđa ţví ađ Ísland varđ fyrir valinu. Tuttugu árum síđar tefldu ţeir aftur í Júgóslavíu og í kjölfariđ gat Fischer ekki snúiđ aftur til Bandaríkjanna. Ţađ var ţví sama hvađ Fischer langađi til ađ tefla í Belgrad, alltaf endađi hann á Íslandi," sagđi Melnikov.

Melnikov benti einnig á ađ margar myndir hefđu birst af Fischer í rússneskum blöđum í tengslum viđ heimsmeistaraeinvígiđ og brátt hefđi hárklipping Fischer orđiđ mjög vinsćl í Sovétríkjunum. ,,Algengt var ađ mćđur kćmu međ syni sína til rakarans og bćđu um ađ ţeir fengju Fischer-klippingu," sagđi Melnikov.

Friđrik Ólafsson stórmeistari sagđi ađ heimsmeistaraeinvígiđ hefđi veriđ ćvintýri sem aldrei mćtti gleymast. ,,Ţarna er deig sem ţarf ađ móta og gera meira úr," sagđi Friđrik.

Friđrik hafđi margvísleg kynni af báđum keppendum.  Rifjađi hann upp ýmsar sögur í tengslum viđ ţađ en tók sérstaklega fram ađ hann hefđi kosiđ ađ leiđa hjá sér öll ágreiningsmál, sem kćmu upp á milli Fischer og Spassky í einvíginu.  

Helgi Ólafsson stórmeistari fjallađi um ţau áhrif sem heimsmeistaraeinvígiđ hafđi á skákíţróttina víđa um heim. ,,Áhugi á skák jókst mjög í kjölfariđ og víđa varđ skáksprenging," sagđi Helgi.

Helgi sagđist oft hafa velt persónuleika Fischer fyrir sér og hvađ hann hefđi haft umfram ađra, sem gerđi hann ađ heimsmeistara. Niđurstađan vćri sú ađ Fischer varđ ,,harđhaus," afar harđur í horn ađ taka og sást stundum ekki fyrir, eins og sumar persónur í Íslendingasögunum sem brá hvorki viđ sár né bana.

Helgi sagđi ađ Íslendingar hefđu veriđ heppnir ađ fá heimsmeistaraeinvígiđ 1972 upp í hendurnar, margar tilviljanir hefđu ţar komiđ saman. ,,Ţađ er mikilvćgt ađ viđ Íslendingar minnum á mikilvćgi einvígisins og vinnum betur úr ţví á nćstu árum," sagđi Helgi.

Óttarr Ólafur Proppé, borgarfulltrúi og stjórnaformađur Skákakademíu Reykjavíkur, ţakkađi fyrir gott málţing og sagđi ađ ţar hefđi komiđ fram međ skýrum hćtti hve mikil áhrif ţađ hefđi haft á alţjóđamálin, skákíţróttina og Íslendinga sem unga og nýsjálfstćđa ţjóđ á ţessum tíma. Skákhátíđin vćri ánćgjuleg áminning um einvígiđ og hvatning til Reykjavíkurborgar og skákhreyfingarinnar ađ festa minningu ţess og skáklíf í borginni enn frekar í sessi.

Ađ málţingi loknu hófst risaskákmót í Laugardalshöll ţar sem um ţrjú hundruđ keppendur skráđu sig til leiks. Jón Gnarr, borgarstjóri, setti mótiđ međ orđunum "Skák er töff". Tefldar voru sex umferđir ađ viđstöddum fjölda ţátttakenda. Er taliđ ađ keppendur og gestir skákhátíđar hafi veriđ á milli 7-800 manns.  

Sigurvegarar flokkanna:

  • 1.-2. bekkur: Joshua Davíđsson
  • 3.-4. bekkur: Vignir Vatnar Stefánsson
  • 5.-6. bekkur: Hilmir Freyr Heimisson
  • 7.-10. bekkur: Oliver Aron Jóhannsson
  • Heiđursflokkur: Jóhann Örn Sigurjónsson
Myndir vćntanlegar síđar sem og nánari úrslit

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 87
  • Frá upphafi: 8778242

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 64
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband