Leita í fréttum mbl.is

EM í Prag: dagur 2 - pistill frá Stefáni Bergssyni

 

EM hópurinn í Prag
Ţegar ţetta er ritađ er um klukkutímí í ađra umferđ. Fyrsta umferđin fór ágćtlega. Vignir vann nokkuđ örugglega eftir ađ hafa tekiđ óţarfa áhćttu í byrjuninni, en hann er seigur varnarskákmađur og eftir ađ hafa hrundiđ sókn Skotans var hann međ mun betri stöđu. Góđur sigur hjá Vigni sem teflir í dag gegn Rússa.

 

Stefán stúderar međ Vigni og HilmiHilmir Freyr tefldi 4 tíma baráttuskák gegn Rússa međ tćp 2000 stig. Snemma tafls fór Hilmir út úr byrjuninni og lék h5 sem hann fylgdi eftir međ Rg4 og geymdi kónginn á f8. Hann hélt sókninni áfram og sá hver er vildi ađ Rússinn var orđinn mjög stressađur. Hann lék ţó nákvćmum varnarleikjum og var stađan lengi afar dýnamísk. Í tímahraki beggja áttađi Hilmir sig á ţví ađ á EM er greint á milli manna og drengja, dúndrađi sér á hlýrabolinn og bombađi e4-e3 á Rússann; lék peđinu ofan í ţrćlvaldađan reit og opnađi fyrir biskup á b7. Áfram hélt Hilmir ađ hóta og pressa og ađ lokum ţrálék Rússinn í stöđu sem var eitthvađ betri á hann, en hann hafđi fengiđ nóg af eilífum hótunum svarts, hristi höfuđiđ og gekk í burtu. Frábćrt jafntefli hjá Hilmi og bestu úrslit 1. umferđar.  Hilmir fćr í dag stigahćsta keppanda flokksins og er nokkuđ vel undirbúinn fyrir nimzo-inverska vörn, en fjölmargar skákir eru í beisnum međ ţessum Grikkja.

Jón Kristinn tefldi međ hvítu gegn mun stigahćrri Pólverja og drap of snemma tafls á d5 í slavneskri vörn. Svartur fékk betra nokkuđ snemma og klárađi međ laglegri fléttu. Eftir skákina fórum viđ Jón yfir hana og rćddum um ađ ţađ vćri ekki endilega svo gott ađ drepa á d5 međ hvítu í slavneskri vörn.

Oliver tefldi mjög vel framan af í gćr gegn Dananum, og fékk í raun unniđ tafl. Daninn barđist ţó vel og eftir 2 slćma leiki hjá Oliver var stađan orđin jöfn og ţráleikiđ í stöđu sem erfitt var ađ komast í gegnum. Viđ Oliver fórum vel yfir ţađ eftir skákina ađ í svona stöđum ţar sem nóg er af tíma á borđinu, snýst leiđin ađ sigrinum mikiđ um ađ laga kallana sína og hafa ákveđiđ tak á stöđunni, Oliver flýtti sér hins vegar of mikiđ sem gaf andstćđingnum gagnfćri sem hann nýtti sér.

Dagur tefldi gegn gríđar sterkum Króata međ 2200 stig. Dagur barđist vel og hafđi sín fćri, en smá ónákvćmni í miđtaflinu gaf Króatanum alla stöđuna. Engu ađ síđur fín skák gegn sterkum andstćđing.

Í dag tefla drengirnir allir gegn sterkum andstćđingum en eru vel undirbúnir og munu berjast, ţađ er ljóst.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Sunnudagsmorgun (dagur 3):

Gćrdagurinn fór ágćtlega; góđir sigrar hjá Vigni og Degi gegn mun stigahćrri andstćđingum. Sérstaklega var gaman ađ fylgjast međ Degi yfirspila andstćđing sinn í miđtaflinu. Vignir vann skákina á sínum styrkleikum, var ţolinmóđur í miđtaflinu, passađi sig á hćttum andstćđingsins og vann hann svo í endataflinu. Jón Kristinn og Oliver áttu báđir slćmar dag, en ţó ber ađ hrósa Jóni fyrir mikla baráttu og var hann ekki langt frá jafntefli. Oliver barđist einnig fram í rauđan dauđann. Hilmir Freyr fór of geyst í sókn gegn stigahćsta andstćđingnum sem nýtti sér ţađ um leiđ. Mjög sterkur ţessi 12ára Grikki sem hefur í sumar veriđ ađ leggja nokkra FM og IM í sterkum mótum.

Ég er nokkuđ ánćgđur međ hópinn ađ loknum ţessum fyrstu 2 umferđum. Menn eru ađ leggja sig fram og berjast, bera enga virđingu fyrir stigahćrri andstćđingum.

Ţriđja umferđin hefst á eftir klukkan ţrjú. Hér er glampandi sól og hópurinn á leiđ í tennis áđur en stúderingar hefjast.

Mig langar ađ lokum ađ ţakka öllum sem komu ađ Skákhátíđ Skákakademíunnar á Menningarnótt. Svakalega gaman ađ skođa myndirnar.

Stefán Bergsson.

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 97
  • Frá upphafi: 8778337

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 71
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband