Leita í fréttum mbl.is

"Stóri slagur" - Sumarmót viđ Selvatn

Stóri slagur   Sumarmót viđ Selvatn 2012   ese 43Ţann 16. ágúst  sl. var haldiđ fjölmennt bođsmót í Skákseli viđ Selvatn (viđ Nesjavallaveg ofan Geitháls) á vegum GALLERÝ SKÁKAR,  í samvinnu viđ  KR og RIDDARANN. Var ţetta í 6. sinn sem slíkt sumarhátíđarskákmót er haldiđ ţar međ viđhafnarsniđi og veislukvöldverđi.

Tafliđ hófst kl. 17 og stóđ langt fram eftir kvöldi. Tefldar voru 11 umferđir međ 10 mínútna umhugsunartíma. Keppendur voru 39 talsins, flestir af eldri kynslóđinni, margir hverjir illa haldnir af "skákáráttupersónustreituröskun" eđa skákdellu sem svo er kölluđ og  láta aldrei gott skáktćkifćri framhjá sér fara,  nema fjarvera eđa önnur lögleg forföll hindri ţátttöku.  Fjórir fyrrv. sigurvegarar ţessa móts voru međal ţáttakenda, ţeir Gunni Gunni (2008), Jóhann Örn (2009),  Harvey (2010) og Jón Ţ. Ţór Stóri slagur   Sumarmót viđ Selvatn 2012   ese 25(2011).

Ađ venju var hart barist fyrir hverjum vinningi og ţađ svo ađ einn keppandinn fékk afar slćmt tilfelli af svokallađri "áfalla- og mótlćtisstreituröskun"  vegna slćms gengis eftir ađ hafa tapađ 5 skákum í röđ í byrjun móts, hćtti keppni og hvarf á braut tapsár eftir 6 skákir međ hálfan vinning. 

Eftir langa og stranga taflmennsku urđu úrslit ţau ađ ađ hinn góđ- og gamalkunni skákmađur Bragi Halldórsson stóđ einn uppi sem sćll sigurvegari međ 9 vinninga. Síđan komu ţrír valinkunnir meistarar, ţeir Gunnar Kr. Gunnarsson, Jón G. Friđjónsson og  Gunnar Birgisson, allir međ átta.  Júlíus Stóri slagur   Sumarmót viđ Selvatn 2012   ese 48Friđjónsson og Harvey Georgsson urđu í 5-6. sćti međ 7.5 v. og síđan Ţór Valtýsson í 7. sćti međ 7 v.  Eftir ţađ fór ađ teygjast úr lestinni sbr. međf. mótstöflu, allir fyrir utan einn uppskáru ţó eitthvađ fyrir utan mikla ánćgju og gleđi af samverunni úti í guđgrćnni náttúrunni á einum heitasta degi sumarsins viđ fjallavatniđ fagurblátt, snćđandi krćsingar.

Keppnin var reyndar mjög tvísýn og spennandi og ýmis úrslit komu á óvart og logandi spenna í lofti eins og međf. myndalbúm sýnir glögglega. Gerđur var góđur rómur af mótshaldinu ţrátt fyrir óvćnt og tíđ eigendaskipti á gjörunnum skákum sem settu stórt strik í reikninginn hjá sumum. Er ţar helst um ađ kenna svokallađri "kvíđahliđrunarstreituröskun" eđa "fyrirvinningsspennu" sem stundum slćr sér niđur ţegar  keppandi eru kominn međ unniđ tafl.  

Mótstjóri var Einar S. Einarsson og skákstjóri Guđfinnur R. Kjartansson, gest- og gleđigjafi.

Ađalstyrktarađilar mótsins voru: 

Lögmenn Austurstrćti, Toppfiskur, Eldhús Sćlkerans og Urđur bókaútgáfa.

Meira á www.galleryskak.net

Myndaalbúm (ESE)

Mótstaflan:

 

IMG 7240

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 95
  • Frá upphafi: 8778326

Annađ

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 69
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband