Leita í fréttum mbl.is

Bobby Fischer kemur heim: Útgáfuhóf í Iđnó í hádegi á föstudag

Bobby%20Fischer%20Comes%20HomeHelgi Ólafsson stórmeistari í skák og náinn vinur Bobby Fischer heimsmeistara í skák hefur sent frá sér bók um kynni sín af bandaríska snillingnum sem varđ íslenskur ríkisborgari og dó í Reykjavík fyrir fjórum árum. Útgáfu bókar Helga verđur fagnađ í Iđnó föstudaginn 4. maí, milli klukkan 12 og 13.

Bobby Fischer comes home - The Final Years in Iceland, a Saga of Friendship and Lost Illusions er heiti bókarinnar sem hollenska útgáfufyrirtćkiđ New in Chess hefur gefiđ út eftir Helga Ólafsson. Bókin fjallar um síđustu ár Bobby Fischers á Íslandi en hann lést í ársbyrjun 2008.

Helgi Ólafsson, sem sex sinnum hampađi Íslandsmeistaratitlinum í skák, tók virkan ţátt í baráttunni fyrir lausn Fischers
úr japönsku fangelsi og kynntist heimsmeistaranum vel eftir ađ Fischer kom til Reykjavíkur sem íslenskur ríkisborgari í mars 2005.

Helgi fjallar ennfremur um feril Fischers á árunum kringum 1970 og leitast viđ ađ fanga stemmningu ,,einvígis aldarinnar" sem fram fór
í Laugardalshöll sumariđ 1972 og vakti heimsathygli en ţar lagđi Fischer Boris Spasskí ađ velli, varđ heimsmeistari og rauf ţar áratuga einokun Sovétmanna á skáksviđinu. Ýmsar kunnar persónur koma viđ sögu í bók Helga, og atburđir Íslandssögunnar, t.a.m.eldgosiđ í Vestmannaeyjum 1973, fléttast inn i frásögnina. Eftir standa nokkrar áleitnar spurningar um líf ţessa sérstćđa manns sem afsalađi sér bandarísku ríkisfangi og dó íslenskur ríkisborgari.

Skáksamband Íslands og Skákakademía Reykjavíkur standa í sameiningu ađ útgáfuhófinu í Iđnó. Gunnar Björnsson forseti SÍ stjórnar ţinginu en setningarávarp flytur Guđni Ágústsson fv. ráđherra, sem m.a. hefur beitt sér fyrir ţví ađ skáksetur verđi sett á laggirnar til ađ minnast einvígis aldarinnar á Íslandi.
Helgi Ólafsson mun segja frá tilurđ bókarinnar og kynnum sínum af Bobby Fischer, sem ađ margra áliti er sterkasti skákmađur allra tíma.

Bođiđ verđur uppá ljúffenga súpu og brauđ fyrir 1400 krónur. Gestir eru hvattir til ađ mćta tímanlega.

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ég hlakka til ađ sjá kaflann um gyđingahatur (sjálfhatur) Fischers, sem litađi nú mest hans síđustu ár í Japan og á Íslandi. Ţađ hlýtur ţví ađ vera stór kafli ef bók ţessi á ađ hafa einhvern trúverđugleika sagnfrćđilega séđ.

Fischer hélt úti síđu í Japan međ hjálp konunnar sem fékk alla peningana hans, ţar sem ósómanum var dćlt út. Ríkissaksóknari neitađi ađ lögsćkja manninn, ţótt heimildir vćru fyrir ţví í lögum!

Simon Wiesenthal Center var sagt ađ fara norđur og niđur ţegar ţeir gerđu athugasemdir viđ ađ Fischer fengi óáreittur ađ spređa sora huga síns, sem hafđi heltekiđ hann, í stađ leikja og stađa í hinum göfuga leik sem skáklistin er.

Nú er ađ sjá hvort bók Helga er sagnfrćđirit eđa lofsöngur?

Rétt er ţađ ekki ađ hann hafi afsalađ sér Bandarískum ríkisborgararétti. Hann tók íslenskan, eftir ađ vegabréf hans bandarískt hafđi veriđ afturkallađ og hann var eftirlýstur í BNA.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 3.5.2012 kl. 03:50

2 identicon

Ég held nú ađ ţađ sé einfaldara og nćr efninu ađ spyrja um "vináttu" ţessara tveggja manna.

Mig minnir nú ađ Helgi hafi veriđ einn af ţeim sem lentu upp á kant viđ Fischer og sem sá gamli vildi ekkert međ hafa.

Garđar Serrisson er ţví miđur ekki lengur til frásagnar um ţađ.

Vonandi er ekki annađ í ţessari bók í samrćmi viđ ţessa "sögu um vináttu"!

Torfi Stefánsson (IP-tala skráđ) 3.5.2012 kl. 08:29

3 identicon

Torfi,

hvađ áttu viđ međ

,,Garđar Sverrisson er ţví miđur ekki lengur til frásagnar um ţađ" ??

Ég held ađ hann hljóti ađ vera til frásagnar um ţađ sem honum finnst frásagnarvert.

Rétt eins og ţú sjálfur.  

Páll (IP-tala skráđ) 3.5.2012 kl. 09:19

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 88
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband