21.4.2012 | 20:24
Ingvar Örn skákmeistari Suđurlands
Ţađ voru 22 keppendur sem tóku holla og mannbćtandi skákiđkun fram yfir sólarsleikjur og ađra óáran í dag. Flestir keppendur frá Skákfélagi Selfoss og nágrennis og Eyjapeyjar síđan venju samkvćmt međ vaskan hóp valinkunnra skákjöfra. Borgarbörnin áttu einnig sína fulltrúa sem og einstaka Sunnlendingur héđan og ţađan. Suđurnesin áttu sinn fulltrúa í Sigurđi H. Jónssyni sem alltaf hefur tekiđ ţátt frá ţví ađ mótiđ var endurvakiđ fyrir fjórum árum.
Fyrirfram mátti búast viđ ţví ađ Ţeir feđgar Sverrir og Nökkvi ásamt Páli Leó myndu berjast um sigurinn, einnig var ljóst ađ á eftir ţeim kćmi síđan nokkuđ mikill fjöldi skákmanna sem gćti vel blandađ sér í toppbaráttuna, sú varđ einnig niđurstađan
Fyrir mót spáđu spakir menn ţví ađ mótiđ myndi vinnast á 5,5 vinningum, sú varđ einnig niđurstađan.
Í fyrstu umferđ var međal annars tvöfaldur öfugur feđgaslagur ţar sem feđgarnir Sverrir og Nökkvi mćttu ţeim feđgum Kjartani og Degi, sá yngri á móti ţeim eldri, Eyjapeyjarnir höfđu báđir sigur. Á sama tíma gerđi Páll Leó jafntefli viđ Grantas og Laugvetningurinn Emil vann góđan sigur á sjómanninum síkáta Ţórarni Inga.
Í nćstu umferđ unnu ţeir eyjafeđgar sínar skákir og gerđu síđan jafntefli í innbyrđirs viđureign í 3.umferđ. Emil og Páll Leó unnu einnig örugglega í 2. og 3.umferđ ţar sem Emil vann góđan sigur á Ingvari Erni sem reyndar átti eftir ađ láta ađ sér kveđa síđar í mótinu, ţetta ţýddi ađ Emil var orđinn einn efstur ađ loknum ţremur umferđum.
Fjórđa umferđin var spennandi eins og allar sem ţar á eftir komu, Sverri og Emil gerđu jafntefli á međan Páll Leó vann Nökkva, Jón Trausti stimplađi sig inn i baráttu efstu mann međ góđum sigri á Erlingi Jenssyni, hiđ sama gerđi Kjartan Másson međ sigri á Úlfhéđni. Á fimmta borđi vann Grantas síđan atskákmeistara SSON Ingimund og Ingvar vann hrađskákmeistara sama félags, Magnús Matt.
Stađan ađ loknum 4 umferđum:
Name | Rtg | Pts |
Sigurđarson Emil | 1821 | 3˝ |
Jónsson Páll Leó | 2043 | 3˝ |
Unnarsson Sverrir | 1907 | 3 |
Jón Trausti Harđarson | 1773 | 3 |
Kjartan Másson | 1715 | 3 |
Sverrisson Nökkvi | 1968 | 2˝ |
Grantas Grigoranas | 1729 | 2˝ |
Ingvar Örn Birgisson | 1767 | 2˝ |
Sigurđur H. Jónsson | 1746 | 2˝ |
Úlfhéđinn Sigurmundsson | 1770 | 2 |
Erlingur Jensson | 1750 | 2 |
Erlingur Atli Pálmarsson | 1405 | 2 |
Dagur Kjartansson | 1652 | 2 |
Ingimundur Sigurmundsson | 1791 | 1˝ |
Ingibjörg Edda Birgisdóttir | 1564 | 1˝ |
Magnús Matthíasson | 1616 | 1˝ |
Birkir Karl Sigurđsson | 1810 | 1˝ |
Gauti Páll Jónsson | 1410 | 1 |
Ţórainn Ingi Ólafsson | 1621 | 1 |
Michael Starosta | 0 | 1 |
Jakob Alexander Petersen | 1185 | 1 |
Arnar Erlingsson | 0 | 0 |
Í 5.umferđ vann Páll Leó Emil og Sverrir vann Jón Trausta á međan Ingvar hafđi góđan sigur á Kjartani og Nökkvi vann Kasparovbanann Grantas.
Sjötta umferđin og sú nćstsíđasta, óhćtt ađ segja ađ taugar hafi veriđ ţandar til hins ítrasta, á efstu ţremur borđum unnust sigrar međ svörtu mönnunum, Sverrir, Nökkvi og Ingvar Örn unnu Pál Leó, Emil og Sigurđ. Á fjórđa og fimmta borđi gerđu borgarfeđgar úti um vonir Jóns Trausta og Erlings Atla. Línur farnar ađ skýrast fyrir síđustu umferđ.
Stađan fyrir síđustu umferđ:
Rank | Name | Rtg | Pts |
1 | Unnarsson Sverrir | 1907 | 5 |
2 | Sverrisson Nökkvi | 1968 | 4˝ |
3 | Jónsson Páll Leó | 2043 | 4˝ |
4 | Ingvar Örn Birgisson | 1767 | 4˝ |
5 | Kjartan Másson | 1715 | 4 |
6 | Dagur Kjartansson | 1652 | 4 |
7 | Sigurđarson Emil | 1821 | 3˝ |
8 | Sigurđur H. Jónsson | 1746 | 3˝ |
9 | Ingimundur Sigurmundsson | 1791 | 3˝ |
10 | Jón Trausti Harđarson | 1773 | 3 |
11 | Ingibjörg Edda Birgisdóttir | 1564 | 3 |
12 | Erlingur Atli Pálmarsson | 1405 | 3 |
13 | Michael Starosta | 0 | 3 |
14 | Grantas Grigoranas | 1729 | 2˝ |
15 | Birkir Karl Sigurđsson | 1810 | 2˝ |
16 | Magnús Matthíasson | 1616 | 2˝ |
17 | Erlingur Jensson | 1750 | 2 |
18 | Úlfhéđinn Sigurmundsson | 1770 | 2 |
19 | Ţórainn Ingi Ólafsson | 1621 | 2 |
20 | Jakob Alexander Petersen | 1185 | 2 |
21 | Gauti Páll Jónsson | 1410 | 1˝ |
22 | Arnar Erlingsson | 0 | 0 |
Í síđustu umferđ mćttust Sverrir og Ingvar Örn ţar sem Ingvar tefldi gríđarlega vel og uppskar öruggan sigur, Páll Leó vann Kjartan og Nökkvi vann Dag, á fjórđa borđi gerđu Ingimundur og Emil jafntefli.
Ţví var stađan sú ađ ţrír voru efstir og jafnir međ 5,5 vinninga, Nökkvi, Páll Leó og Ingvar Örn. Hrađskák átti ađ skera úr um Suđurlandsmeistaratitilinn!
Dregiđ um töfluröđ, tefld skildi tvöföld umferđ um titilinn, til ađ gera langa sögu stutta var ţađ Ingvar Örn sem tefldi hrađskákina af feiknaröryggi, hann vann fyrstu 3 skákirnar, ţar međ gaf Páll Leó sínar tvćr síđustu ţannig ađ Ingvar fékk 4 vinninga, Nökkvi 2 og Páll Leó engan.
Ingvar Örn svo sannarlega verđugur Suđurlandsmeistari, tefldi af ótrúlegri yfirvegun, stáltaugar í bland viđ mikla skákkunnáttu, banvćn blanda, til hamingju Ingvar Örn!
Flokkur: Spil og leikir | Facebook
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 13
- Sl. sólarhring: 18
- Sl. viku: 116
- Frá upphafi: 8778371
Annađ
- Innlit í dag: 11
- Innlit sl. viku: 88
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 10
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.