Leita í fréttum mbl.is

Gunnar Freyr sigraði á Vin-Open

063Tuttugu og tveir þátttakendur skráðiu sig til leiks á Vin-Open í gær. Margir góðir gestir kíktu inn, m.a. forvígismenn Skáksambands Íslands og Skákakademíunnar sem hafa í nógu að snúast þessa dagana.

Íslandsvinurinn og stórmeistarinn Ivan Sokolov heimsótti Vin og tefldi upphitunarskák við 1.borðs mann Vinjargengisins, Hauk Angantýsson.  Sokolov hafði sigur á endanum en það var ekkert gefið eftir.

Þá voru tefldar sex umferðir með sjö mínútna umhugsunartíma, undir 075styrkri stjórn fyrirliðans Hrannars Jónssonar.  Eftir fjórðu umferð var hlé gert  enda eplakaka og ís sem  biðu í eldhúsinu, svona til að róa fólk niður.

Eftir baráttuna var ljóst að Gunnar Freyr Rúnarsson, Víkingaklúbbsformaður, hafði sigrað með 6 vinninga.  Efstu menn hlutu bókavinninga og svo var happadrætti þannig að flestir fóru þvílíkt sáttir heim.

1.       Gunnar Freyr Rúnars     6

2.        Omar Salama                  5

3.         Vigfús Vigfússon            4,5

4.         Jorge Fonseca                4

5.          Hrannar Jónsson          4 

6.         Hörður Garðarsson       4

7.         Emil Sigurðarson           4

8.         Ingi Tandri Traustas      3,5

9.         Thomas Wasenaus       3,5

Aðrir komu í humátt á eftir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 12
  • Sl. sólarhring: 36
  • Sl. viku: 142
  • Frá upphafi: 8778500

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 100
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband