Leita í fréttum mbl.is

Guðmundur og Birkir Karl unnu í dag - Björn í beinni á morgun

Guðmundur GíslaGuðmundur Gíslason (2318) og Birkir Karl Sigurðsson (1649) unnu báðir í áttundu og næstsíðustu umferð b-flokks London Chess Club sem fram fór í dag.  Björn Þorfinnsson tapaði fyrir indverska alþjóðlega meistaranum Sahaj Grover (2515) og Bjarni Jens Kristnsson (2045) tapaði einnig.  Björn og Guðmundur mæta enskum landsliðsmönnum á morgun.  Björn teflir við Gawain Jones (2635) en Guðmundur teflir við Nicholas Pert (2563).  Skák Björns verður sýnd beint á vefsíðu mótsins. 

Björn hefur 6 vinninga og er í 6.-16. sæti, Guðmundur hefur 5,5 vinning og er í 17.-36. sæti og Bjarni Jens og Birkir Karl hafa 3,5 vinning og eru í 129.-163. sæti.

Indverski stórmeistarinn Abhjeet Gupta (2640) er efstur með 7 vinninga.  Í 2.-5. sæti með 6,5 vinning eru Grover og Englendingarnir;  Peter Wells (2492), Keith Arkell (2418), Jovanka Houska (2415) og Jones.

231 skákmaður tekur þátt í b-flokknum og þar á meðal 11 stórmeistarar og 22 alþjóðlegir meistarar.  Björn er nr. 22 í styrkleikaröð keppenda, Guðmundur nr. 35, Bjarni Jens nr. 120 og Birkir Karl nr. 220.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.9.): 9
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 166
  • Frá upphafi: 8780472

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 88
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband