13.11.2011 | 21:00
Lokapistill frá EM landsliđa
Stórsigur á Skotum
Hjörvar fékk tvöfaldan stórmeistaraáfanga
Helgi fékk silfurverđlaun
Efstir Norđurlandanna
Lokaumferđin
Ţađ gekk allt upp hjá íslenska liđinu í níundu og síđustu umferđ EM landsliđa sem fram fór í Porto Carras í Grikklandi í fyrradag. Ísland vann stórsigur á Skotum, 4-0, og var sá sigur afar sannfćrandi.
Hjörvar vann átakalítinn sigur á Graham Morrison međ svörtu. Einhverjar pćlingar voru í gangi ađ hvíla Henrik og láta Hjörvar tefla á fyrsta borđi. Ţá fengi hann hvítt gegn Alan Tate sem hefur veriđ í uppsveiflu. Ţađ var ţó fljótt slegiđ af borđinu. Ţađ var mat manna ađ Morrison međ svörtu vćri mun betri valkostur en Tate međ hvítu. Morrison er ţó alls ekki gefinn bráđ. Hann náđi sínum ţriđja áfanga ađ alţjóđlegum meistaratitli nú á EM en vantar stigin.
Og sú ákvörđun var kórrétt. Hjörvar vann auđveldan sigur á Morrison sem teflt hvasst. Fórnađi t.d. skiptamun sem Hjörvar ţáđi ekki og var kominn međ yfirburđartafl skömmu síđar. Átakalaus sigur. Og sá mikilvćgasti í skáksögu Hjörvars. Tryggđi tvöfaldan stórmeistaraáfanga og yngsti Íslendingurinn sem hefur nokkurn tíma náđ stórmeistaraáfanga. Viđtal viđ Hjörvar má nálgast hér: http://skak.blog.is/blog/skak/entry/1204415/
Henrik vann góđan sigur á Alan Tate á fyrsta. Tate tefldi hvasst en sigur fyrir hann hefđi ţýtt stórmeistaraáfanga. Henrik tefldi ákveđiđ og yfirvegađ og vann góđan sigur. Helgi vann einnig góđan sigur á fjórđa borđi og Björn vann svo Muir á ţriđja borđi.
Mikilvćgir sigrar fyrir alla. Björn vann sína fyrstu skák og Henrik lagađi skoriđ sitt. Međ sigrinum var ljóst ađ Helgi vćri besta skor allara á mótinu prósentulega séđ, fékk 4,5 vinning af 5 mögulegum.
Árangur íslenska liđsins
Íslenska liđiđ varđ í 26. sćti af 38 liđum. Mjög góđur árangur í ljósi ţess ađ liđinu var rađađ fyrirfram í 32. sćti. Og auk ţess urđu mikil forföll á síđustu metrunum ţegar 3 stórmeistarar drógu sig út úr liđinu af persónulegum ástćđum og endanleg mynd komst ekki á íslenska liđiđ fyrr en tveimur dögum fyrir brottför. Helgi ćtlađi upphaflega ađ einbeita sér ađ liđsstjórn en vegna ţessara ađstćđna varđ ţađ niđurstađan ađ hann yrđi teflandi liđsstjóri og varamađur. Ekki slćmur varamađur á ferđinni sem fćr 4,5 vinning í 5 skákum!
Íslenska liđiđ varđ jafnframt efst Norđurlandanna en fyrirfram var liđinu rađađ neđst ţeirra. Ísland er ţví óformlegur Norđurlandameistari" en öll Norđurlöndin leggja mikla áherslu á ţessa keppni". Manni var ţađ alveg ljóst ađ hinar ţjóđirnar spáđu mikiđ í ţessu og Danirnir óskuđu okkur sérstaklega til hamingju eftir mót međ titilinn".
Frábćrt afrek í ljósi allra ţeirra forfalla sem urđu á íslenska liđinu síđustu vikur og daga á íslenska liđinu. Svíar voru efstir fyrir umferđina, voru bćđi 2 stigum og 2,5 vinningi fyrir ofan okkur. Ég og brćđurnir gátum varla faliđ gleđi okkur ţegar Pontus Carlsen samdi jafntefli gegn Georgíumönnum og ţar međ ljóst ađ Svíar fengu ađeins 1 vinning og ţar međ ađ titilinn" vćri okkar.
Íslenska liđiđ náđi frábćrlega saman á mótinu. Góđ liđsheild og mikil barátta voru ađalsmerkin. Liđiđ gerđi ađeins eitt stutt jafntefli. Ţađ gerđi Hjörvar međ svörtu gegn Svartfellingum ţegar ljóst var ađ ekkert vćri í stöđunni. Helgi hefur oft líka sagt ađ íslenska liđinu gangi best ţegar teflt sé í botn og er örugglega mikiđ til í ţví.
Viđ tefldum viđ 2 lakari sveitir. Unnum ţćr báđar örugglega. Tefldum viđ tvćr sveitir sem voru lítilsháttar sterkari en viđ. Unnum ţeir einnig báđar. Tefldum viđ 5 sveitir sem teljast mun sterkari. Töpuđum ţeim öllum en aldrei ţannig ađ viđ vćrum burstađir. Töpuđum ţeim ýmist 2,5-1,5 eđa 3-1. Í nánast öllum tilfellum áttum viđ möguleika á ađ halda 2-2 lengi vel.
Menn liđsins voru ađ sjálfsögđu Hjörvar og Helgi.
Skákmennirnir
Hjörvar fékk 5 vinninga í 9 skákum. Var sá eini sem tefldi allar skákir mótsins. Eftir á ađ hyggja átti Hjörvar stórmeistaraáfangaskák einnig í 7. skák. Viđ gerđum okkar enga grein fyrir ţví og kannski sem betur fer. Ţví ekki veit ég hvernig málin ţróast og engan veginn ljóst ađ ţessi tvöfaldi áfangi hefđi náđst. Ađ fá 5 vinninga gegn svo sterkum andstćđingum er auđvitađ frábćrt. Ţess má geta ađ ađeins fjórir annađ borđs menn voru stigalćgri en Hjörvar á öllu mótinu. Árangur Hjörvars samsvarađi 2606 skákstigum og hann hćkkar um 18 stig og er nú kominn međ 2470 skákstig. Hann ţarf ađeins einn áfanga til viđbótar.
Helgi fékk 4,5 vinning í 5 skákum. Helgi tefldi minnst liđsmanna. Helgi kom ađeins inn í liđiđ međ vikufyrirfara ţegar Héđinn forfallađist. Ađ hafa Helga á bekknum" var frábćrt. Mađur skynjađi strax ađ ţađ gaf liđinu aukin kraft og sjálfstraust hinna liđsmanna ađ vita af Helga á fjórđa borđinu. Árangur Helga var sá tíundi besti allra skákmanna stigalega séđ en árangurinn samsvarađi 2786 skákstigum. Helgi hćkkar um 15 stig fyrir frammistöđuna og er nú kominn upp fyrir Hannes og Henrik á stigum. Í nćstum sćtum á eftir Helga komu Topalov og Morozevich. Efstur var hins vegar Mamedyarov. Undirbúningur hans á kvöldin voru fyrir skákirnar var ţađ helst ađ hanga á spilavítinu ţar sem hann lagđi undir háar upphćđir ađ mér nánast skilst nánast á hverju kvöldi og oft langt fram á nótt!
En semsagt árangur Helga var sá nćstbesti fyrir varamenn. Franski stórmeistarinn Christian Bauer, sem fékk 6,5 vinning í 8 í skákum, var hćstur međ 2797. Ísraelski stórmeistarinn Evgeny Postny var svo ţriđji međ árangur upp á 2762 skákstig.
Bragi Ţorfinnsson átti einnig fínt mót. 3,5 vinningur í 8 skákum. Árangur uppá 2476 skákstig og hćkkar um 5 stig og var frekar óheppinn en hitt og Helgi var ánćgđur heilt yfir međ taflmennsku hans. Nánast allar skákir frá Braga voru langar. Bragi virđist sífellt vera ađ ná meiri stöđugleika í sinni taflmennsku.
Henrik byrjađi illa en átti góđan endasprett. Mjög mikilvćgur gegn Makedóníu eftir 3 töp. Henrik fékk 2,5 vinning í sjö skákum á fyrsta borđi, en átti upphaflega ađ vera á ţriđja borđi. Árangur Henriks samsvarađi 2478 og lćkkar hann um 6 stig.
Björn Ţorfinnsson náđi sér ekki fullkomlega strik á mótinu. Björn fékk 2,5 í 7 skákum. Björn kom auđvitađ inn í liđiđ međ ađeins 2ja daga fyrirvara viđ forföll Stefáns Kristjánssonar sem hafđi komist í liđiđ í forföllum Hannesar Hlífars. Mikilvćgt fyrir Björn ađ enda mótiđ međ sigri en Björn hafđi áđur sagt: Ég vinn alltaf í síđustu umferđ í landskeppnum". Og hefur haft rétt fyrir sér hingađ til. Frammistađa Björns samsvarađi 2361 skákstigi og lćkkar hann um 4 stig fyrir frammistöđu sína.
Halldór Grétar Einarsson hefur tekiđ saman stigalista afreksmanna á heimasíđu SÍ. Búiđ er ađ uppfćra listann eftir EM landsliđa. Halldór hefur bćtt viđ dálki ţar sem fram kemur fjöldi tefldra skáka síđustu 24 mánuđi. Sjá listann: http://skaksamband.is/?c=webpage&id=441.
Brćđurnir voru ekki búnir ađ fá nóg af skák eftir mótiđ. Ţegar viđ lentum á Heathrow í London voru menn ţar sem náđu í brćđurna og ćtluđu ađ keyra ţá til Birmningham ţar sem tefla í Bresku deildakeppninni. Ljóst var ađ ţeir kćmu ađeins á skákstađ um hálftíma fyrir umferđ. Ţeir stóđu sig ţar vel og fengu báđir 1,5 vinning í tveimur skákum.
Toppbaráttan
Toppbaráttan var gífurlega hörđ og ótrúlega spennandi allan tímann. Ţjóđverjar urđu Evrópumeistarar og er óhćtt ađ segja ađ ţađ hafi komiđ verulega á óvart en ţeim var ađeins rađađ í 10. sćti fyrir mót. Bestu skákmenn Ţýskalands áttu í deilum viđ Ţýska skáksambandiđ fyrir Ólympíuskákmótiđ 2010 sem varđ til ţess ađ flestir bestu skákmenn Ţýskalands sátu ţá heima. Ţeir mćttu hins vegar til leiks nú međ ţessum frábćra árangri.
Aserar urđu ađrir og Ungverjar náđu ţriđja sćtinu međ ótrúlegum 4-0 sigri á Búlgörum í lokaumferđinni sem eru međal ţeirri óvćntari úrslita sem mađur hefur séđ.
Fyrir umferđina var ljóst ađ 2,5 vinningur myndu duga bćđi Ţjóđverjum og Armenum. 2-2 myndi duga Armenum ef Aserar ynnu ekki 3-1. Ţađ gerđu einmitt Aserar. Stađan var orđin 2-1 fyrir Ţjóđverjum. Meier vann Movsesian. Sargassian sem var ađ reyna Gustafsson stóđ frammi fyrir ţví ef hann myndi vinna myndu Aserar verđa Evrópumeistarar en mikiđ hatur ríkir á milli ţessara ţjóđa. Til dćmis tefla ekki skákmenn ţessara ţjóđa í skákmótum hjá hinni ţjóđinni. Ţetta nćr ađ mér skilst ţó ekki til ţessara skákmanna sem láta deilur ekki trufla persónuleg samskipti og eru vinir. Gustafsson hélt jafntefli.
Mótslok sá mađur ađ Armenar tóku ţessu létt. Örugglega ţótt ţađ miklu skárra ađ sjá Ţjóđverjanna hampa dollunni en Aserana.
Rússar urđu öruggir Evrópumeistarar kvenna.
Skákstjórinn
Ađ ţessu var ég ekki bara fararstjóri og sjá um ađ koma fréttum til Íslands heldur var ég einnig skákstjóri. Ţađ var fróđlegt ađ vera skákstjóri á slíku móti. Ţađ kom ekkert upp hjá mér sem skipti máli. Ef fleiri Íslendingar vilja taka ađ sér skákstjórn gćti veriđ mögulegt ađ komast ađ á Ólympíuskákmótinu í Istanbul 2012. Og íslenskum skákdómurum er sérstaklega bođiđ til leiks í Tromsö 2014. Áhugasamir varđandi Istanbul vil ég biđja um ađ hafa samband viđ mig.
Sjálfum hentar mér betur ađ vera á ferđ og flugi en ađ sitja í slíkri borđadómgćslu. Ég saknađi ţess óneitanlega ađ geta hvorki komist í tölvu né síma á međan umferđum stóđ til ađ koma bođum heim. Ég var hins vegar ávallt mjög nálćgt íslenska liđinu nema í fyrstu umferđinni og grunar mig ađ Grikkirnir hafa gert ţađ fyrir mig af einskćrri góđmennsku. Ţađ ţýddi ađ ég átti auđvelt međ ađ taka myndir og fylgjast međ skákunum. Á Ólympíuskákmótum er vćntanlega slíkt ekki í bođi og á ég síđur von á ţví ađ ég taki á skákstjórn á slíkum mótum í framtíđinni.
Á mótinu fékk ég hins vegar athyglisvert bođ um skákstjórn eftir áramót sem ég ćtla ađ velta fyrir mér.
Grikkirnir
Grikkir eru ađ mörgu leyti einstakir. Ákaflega vinalegir, afslappađir og ţćgilegir í allri umgengi. Skipulagning mótsins var ađ öllu leyti til mikillar fyrirmyndar.
Ađstćđur á skákstađ og í hótelinu einnig ađ öllu leyti til fyrirmyndar. Ekki síđra en á EM 2007 í Krít ţar sem ađstćđur voru einnig frábćrar.
Grikkirnir sem héldu mótiđ kunnu ađ skemmta sér. Ţeir höfđu sérherbergi á skákstađ ţar sem var bjór o.ţ.h. Margir ţeirra skemmtu sér langt fram á nótt og sváfu langt fram eftir.
Ţeir höfđu mikinn áhuga á Íslandi og okkur ađstćđum í gegnum tíđina. Sérstaklega áhugasamir um ţađ hversu fljótir viđ höfum viđ veriđ ađ ná okkur upp úr kreppunni.
Einn Grikki sagđi mér ađ viđ sćjum ađeins gerviveröld á skákstađ og á hótelinu. Ástandiđ á Grikklandi vćri grafalvarlegt.
Ađ lokum
Einhvern tíma kom fram í stuttum pistli ađ ég hefđi haft tíma fyrir pistlaskrif ţar sem ég hafi veriđ upptekinn á mikilvćgum fundi". Ţađ upplýsist hér međ ađ ţann morguninn spiluđum viđ Helgi 18 holu hring á virkilega góđum golfvelli í Porto Carras. Ţann daginn vannst góđur sigur á Makedóníu!
Ég rćddi nokkuđ viđ Goran Urosevic, sem sér um Chessdom og hefur ţar veriđ ađ gera frábćra hluti. Ég vona ađ hann mćti á Reykjavíkurskákmótiđ og hjálpi okkur viđ ađ kynna mótiđ á erlendri grundu.
Ég hefđi mjög gaman ađ fylgjast međ erlendu skákmeisturum og háttum sumra ţeirra. Ég vil sérstaklega nefna Korchnoi. Ţađ var gaman ađ fylgjast međ svissneska liđsstjóranum sem nánast nálgađist gamla manninn eins og guđ. Okkur skákstjórunum var einnig sagt ađ međhöndla karlinn af sérstakri virđingu og gera ekki athugasemdir ţótt hann t.d. stćli stólnum okkar eđa talađi hátt.
Viđ fengum miklar og góđar kveđjur út eftir hinum ýmsum dreifileiđum. Ekki síst í gegnum Facebook. Eftir mótiđ fengum viđ sérstaklega góđar kveđjur frá Jóhanni Hjartarsyni og Jóni L. Árnasyni sem féllu í góđan jarđveg. Ţađ er gott ađ sjá ađ menn fylgjast vel međ ţótt ţeir séu hćttir atvinnumennsku.
Eftir mót var fagnađ eins og vera ber. SÍ bauđ upp á rauđvín međ matnum nokkur glös eftir mat. Menn gerđu sér góđan dag. Hins vegar fór rútan af stađ kl. 3 um nótt. Menn mćttu ţví illa hvíldir niđur í rútu og sumir jafnvel svefnlausir, ţar sem diskótekiđ var tekiđ fram yfir svefn. Sextán tíma ferđalag fyrir mig, Helga og Hjörvar, sem innihélt ţrjú flug. En ţađ voru sáttir menn en ţreyttir sem komu heim í gćr!
Ég fékk ýmsa ađstođ ađ heiman á međan mótinu stóđ. Vil ég ţar sérstaklega ţakka Halldóri Grétari sem bćđi ađstođađi mig viđ ađ koma á fréttum af EM á Skák.is og sá t.d. um ađ koma skákum mótsins á Skák.is
Baldur A. Kristinsson, vefstjóri blog.is, var mér svo einkar hjálplegur viđ ađ koma hinum ýmsum fréttum á Skák.is ţar sem vefkerfiđ virkađi ekki úti vegna öryggiskrafna blog.is. Ekki náđum viđ ţó ađ möndla myndir ađ neinu ráđi og ég sendi heim u.ţ.b. eina mynd úr umferđ. Allar myndirnar mínar eru hins vegar komnar á Skák.is og flestar einnig á Facebook. Ţar er ţó fyrst og fremst ađ finna myndir frá íslenska liđinu. Ég vil svo vekja athygli á mörgum skemmtilegum myndum teknum af Anastasiya Karlovich á Chessbase: http://www.chessbase.com/newsdetail.asp?newsid=7670.
Ég vil ţakka Baldri og Halldóri sérstaklega fyrir ţeirra hjálp. Án hennar hefđi fréttaflutningur orđiđ heldur máttlaus!
Takk fyrir mig og íslenska liđiđ!
Gunnar Björnsson,
forseti Skáksambands Íslands
Flokkur: Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 21:04 | Facebook
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.7.): 11
- Sl. sólarhring: 21
- Sl. viku: 151
- Frá upphafi: 8778668
Annađ
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 88
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 9
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Takk fyrir ađ leyfa okkur skákáhugamönnum á klakanum ađ fylgjast međ.
Gunnar Th. Gunnarsson, 13.11.2011 kl. 22:48
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.