13.10.2011 | 22:48
Anatoly Karpov nýr félagsmađur Taflfélags Reykjavíkur og heiđursgestur félagsins dagana 6.-9. október 2011
Taflfélag Reykjavíkur átti 111 ára afmćli 6. október sl. Mikiđ var um dýrđir, ţví fyrrum heimsmeistari í skák Anatoly Karpov var heiđursgestur í afmćlishófinu sem jafnframt var móttaka til heiđurs honum, en hann lenti fyrr um daginn á Keflavíkurflugvelli.
Međ Karpov í för var Vasily Papin 23 ára stórmeistari frá Rússlandi. Koma Karpovs í T.R. á fimmtudaginn var sannkölluđ söguleg stund og vera hans hér í Reykjavík síđustu daga er án efa einn af merkustu viđburđum íslensks skáklífs til lengri tíma litiđ.
Dagskrá Karpovs var ţétt skipuđ og hugmyndin var ađ hann skyldi koma víđa viđ. Í stuttu máli sagt varđ heimsókn hans mjög gleđileg og heppnađist í alla stađi vel. Karpov var mjög skemmtilegur í viđmóti, áhugasamur, kíminn og međ góđa nćrveru. Hann gaf sér góđan tíma í hvern einasta dagskrárliđ og nćrstaddir gátu notiđ frásagnar hans, taflmennsku og skákskýringa viđ hin ýmsu tćkifćri.
Karpov í Salaskóla
Dagskráin hjá Karpov hófst föstudagsmorguninn 7. október í Salaskóla í Kópavogi. Taflfélag Reykjavíkur bauđ Hafsteini Karlssyni skólastjóra ađ fá fyrrum heimsmeistarann í heimsókn og tók hann mjög vel í ţađ. Okkur ţótti vel viđ hćfi ađ Karpov hitti fulltrúa frá ţeim tveimur grunnskólum landsins sem kveđiđ hefur mest ađ í skólaskák hin síđustu ár. Nýbökuđum Norđurlandameisturum Rimaskóla ásamt skólastjóra ţeirra Helga Árnasyni var ţví einnig bođiđ ađ taka ţátt í dagskránni međ Karpov í Salaskóla. Karpov tefldi eina skák viđ nemanda úr hvoru skákliđi fyrir sig. Fyrstur til ađ tefla viđ Karpov var Hilmir Freyr Heimisson, nemandi í skákliđi Salaskóla. Ţví nćst var ţađ Hrund Hauksdóttir úr skákliđi Rimaskóla sem tefldi viđ fyrrum heimsmeistarann.
Bćđi tvö tefldu góđar skákir og Karpov fór nokkrum orđum um skákirnar í lokin. Öllum krökkunum úr skákliđunum tveimur gafst síđan kostur á ađ spyrja Karpov spurninga eins og á eins konar blađamannafundi. Nokkrir krakkar nýttu sér ţađ tćkifćri og Karpov svarađi ţeim međ bros og vör og hafđi gaman af. Hann spurđi síđan sjálfur nokkurra spurninga, ţannig ađ úr ţessu varđ hiđ besta samtal!
Í lokin voru svo teknar hópmyndir međ hvoru liđi fyrir sig ásamt skólastjórunum og Karpov. Ţessi heimsókn vakti mikla athygli í Salaskóla og mikla lukku međal skákkrakkanna úr Rimaskóla og Salaskóla.
Karpov í Laugardalshöll
Karpov hafđi mikinn áhuga á ađ sjá Laugardalshöll ţar sem einvígi Spasskís og Fischers fór fram og skruppum viđ í heimsókn međ meistarann ţangađ. Ţađ kom honum á óvart hve höllin er stór og hafđi hann á orđi ađ ţađ hlyti ađ hafa veriđ magnađ ađ tefla ţar fyrir fullu húsi. Hann kímdi ţegar honum var tjáđ ađ nćstfjölmennasti skákviđburđur íslandssögunnar á eftir einvíginu ´72 hefđi einnig fariđ fram í Höllinni, nefnilega bardaginn um íslandsmeistaratitilinn í skákhnefaleikum 2011!
Karpov í CCP
Eftir hádegi heimsótti Karpov CCP og skođađi starfsemi fyrirtćkisins. Ţótti honum mikiđ til flaggskips fyrirtćkisins koma, leiksins EVE online, og sá margt líkt međ leiknum og skákinni. Báđir leikirnir byggjast á strategískri hugsun og hernađarkćnsku. Í lok heimsóknar hans í fyrirtćkiđ tefldi hann viđ ríkjandi skákhnefaleikameistara Íslands, Björn Jónsson og hafđi sigur eftir mikinn barning, en í ţetta sinn fór sá barningur fram á klukkunni!
Karpov og Friđrik Ólafsson í T.R.Kl. 16.30 settust svo Karpov og Friđrik Ólafsson stórmeistari ađ tafli í sýningarskák í T.R. Umhugsunartíminn var 15 mín. á mann. Ţeir tefldu rúmlega 20 leiki áđur en ţeir sćttust á jafntefli. Hópur fólks var á stađnum og fylgdist síđan međ skákskýringum meistaranna á gamla viđarskákskýringarborđinu, sem hafđi veriđ smíđađ fyrir einvígi Friđriks og Bent Larsens 1956.
Kom í ljós ađ mikil undiralda hafđi veriđ í skákinni og stađan mjög flókin. Enda tóku ţeir sér dágóđan tíma í skákskýringarnar og sýndu áhorfendum inn í hugarheim sinn, hvađa áćtlanir höfđu veriđ í gangi og hvađa afbrigđi höfđu veriđ í bođi. Ţetta var einstakur viđburđur fyrir skákáhugamenn!
Setning Íslandsmóts skákfélaga
Síđasti dagskrárliđur Karpovs ţennan dag, var setning Íslandsmóts skákfélaga í Rimaskóla um kl. 20. Ţađ var ljóst frá upphafi ađ Karpov myndi ekki setjast ađ tafli fyrir T.R. á Íslandsmóti skákfélaga í ţetta skipti, en viđ gáfum ţađ náttúrulega ekkert upp frekar en önnur liđ sem héldu sinni liđsskipan fyrir sig! Karpov tók ţví ţátt í setningunni međ ţví ađ halda ávarp, afhenda verđlaun fyrir Landsmótiđ í skólaskák og leika fyrsta leiknum á öllum (fjórum) fyrstu borđunum í 1. deild. Ţetta gerđi hann allt saman međ bros á vör og augljóst var ađ ţeim 400 skákmönnum sem saman komnir voru í Rimaskóla ţetta kvöld ţótti mikiđ til koma ađ sjá fyrrverandi heimsmeistarann međ eigin augum.
Ferđ ađ leiđi Fischers í Laugdćlakirkjugarđi
Laugardagurinn 8. október var tekinn snemma. Í slagviđri og úrhellisrigningu var haldiđ af stađ yfir heiđina ađ Laugdćlakirkju viđ Selfoss. Ţegar í kirkjugarđinn var komiđ, birti til međ sólargeislum og regnboga. Karpov lagđi blóm á leiđi Fischers og svo var minningarstund inni í kirkjunni.
Karpov í heimsókn hjá UNICEF
Eftir ferđina austur var haldiđ tilbaka til Reykjavíkur ţar sem heimsókn hjá UNICEF á Íslandi var nćst á dagskrá. Karpov er sérlegur sendiherra samtakana í miđ og austur Evrópu. Gaf hann sér góđan tíma til ađ kynna sér starfsemi UNICEF á Íslandi og fannst mikiđ koma til ţess merka starfs sem unniđ er af samtökunum hér á landi.
Karpov á skákćfingu barna og unglinga í T.R.Laugardagsćfingin hjá T.R. krökkunum hófst kl. 14. Sum hver komu ţangađ rakleiđis frá 2. umferđ á Íslandsmóti skákfélaga í Rimaskóla. Torfi skákţjálfari sýndi krökkunum skák međ Karpov, en skákir Karpovs hafa einmitt veriđ til umrćđu á skákćfingum síđastliđnar vikur. Rétt fyrir kl. ţrjú var svo bođiđ upp á hressingu, Svala, snúđa og kex. Rúmlega 40 krakkar voru á ćfingunni og nokkuđ af foreldrum og mikil eftirvćnting í loftinu.
Kl. 15.20 kom svo fyrrverandi heimsmeistarinn inn í salinn og krakkarnir tóku vel á móti honum međ dynjandi lófaklappi! Ţau skoruđu síđan á meistarann í skák á sýningarborđinu. Karpov var međ hvítt en krakkarnir međ svart. Karpov lék og krakkarnir réttu upp hönd ef ţau vildu koma međ leik. Torfi benti síđan á einhverja upprétta höndina og leiknum var leikiđ. Ţegar komiđ var út í peđsendatafl og krakkarnir peđi undir gáfu ţau skákina, enda vissu ţau ađ Karpov er enginn aukvisi í endatöflum!
Ţví nćst fengu allir krakkarnir og ţeir foreldrar sem vildu mynd til minningar um heimsókn Karpovs í T.R. Karpov áritađi svo hverja einustu mynd og hafđi mikiđ gaman af áhuga krakkanna!
Karpov í heimsókn á Bessastöđum
Strax eftir Laugardagsćfinguna var brunađ á Bessastađi í heimsókn til forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar. Ţađ má ţví međ sanni segja ađ Karpov hafi fariđ vítt og breitt ţennan daginn!
Heimsóknin á Bessastöđum varđ einnig síđasti dagskrárliđurinn, ţví Karpov ţurfti síđan međ stuttum fyrirvara ađ hćtta viđ fjöltefliđ í Ráđhúsinu sem áćtlađ var daginn eftir. Ástćđan var sú ađ forseti Rússlands hafđi bođađ hann til sín til ađ veita honum viđurkenningu í tilefni af sextugsafmćli hans fyrr á árinu. Karpov fór ţví af landi brott á sunnudagsmorgninum 9. október en landi hans Vasily Papin tefldi fjöltefliđ í hans stađ í Ráđhúsinu eftir síđustu umferđ Íslandsmóts skákfélaga.
Einstakur viđburđur
Ţađ má međ sanni segja ađ koma Karpovs til Íslands um síđustu helgi hafi veriđ einstakur viđburđur í íslensku skáklífi. Viđ í Taflfélagi Reykjavíkur erum mjög ánćgđ og stolt yfir ţví ađ hann hafi gengiđ í félagiđ og strax ţar á eftir komiđ í heimsókn og heiđrađ félagiđ međ nćrveru sinni á 111 ára afmćlinu! Ţetta er draumi líkast!
Taflfélag Reykjavíkur hefur breiđa starfsemi og áherslurnar eru margvíslegar eins og umfangsmikiđ barna-og unglingastarf, umfangsmikiđ skákmótahald og metnađur í ađ T.R. sé međ keppnisliđ í fremstu röđ, eins og ţađ hefur haft í áratugi.
Síđast en ekki síst er Taflfélag Reykjavíkur eitt af elstu starfandi menningarfélögum landsins. Koma Karpovs er ţví í hćsta máta menningarlegur viđburđur fyrir utan ţađ ađ vera einn merkasti viđburđur í skáklífi landsins frá upphafi. Vera hans hér í Reykjavík vakti mikla athygli einnig fyrir utan skákheiminn. Ţannig sýndu fjölmiđlar, bćđi sjónvarp og dagblöđ, veru hans hér mikinn áhuga og greint var frá dagskrá hans og tekin greinagóđ viđtöl viđ hann.
Viđ erum ţess fullviss ađ koma Karpovs muni lengi lifa í minningu ţeirra sem hittu hann dagana 6.-9. október. Viđ erum ţess einnig fullviss ađ heimsókn hans í T.R. muni hafa áhrif um ókomin ár.
Stjórn Taflfélags Reykjavíkur ţakkar fyrirtćkjunum CCP og MP banka fyrir frábćrt samstarf og fyrir ađ leggja sitt á vogarskálarnar og gera okkur ţannig kleift ađ láta hugmyndina, um ađ fá fyrrum heimsmeistara í skák Anatoly Karpov til Íslands, verđa ađ veruleika.
Pistlahöfundur: Sigurlaug Regína Friđţjófsdóttir, formađur T.R.Flokkur: Spil og leikir | Facebook
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.7.): 3
- Sl. sólarhring: 27
- Sl. viku: 171
- Frá upphafi: 8779109
Annađ
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 107
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Fróđlegur og vel skrifađur pistill, Sigurlaug. Ţakka ţér.
Jón Ţorvaldsson (IP-tala skráđ) 14.10.2011 kl. 08:06
Tek heilshugar undir orđ Jóns Ţorvaldssonar og óska ykkur í T.R. til hamingju međ framtakiđ og afmćliđ.
Sćvar Bjarnason
Sćvar Bjarnason (IP-tala skráđ) 14.10.2011 kl. 13:20
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.