18.9.2011 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Keppnisharkan fleytti Judit Polgar áfram
André Danican Philidor (1726-1795) var einn ţekktasti óperuhöfundur Frakka á sinni tíđ og á gólfi ţekktasta kaffihúss skáksögunnar, Café de la Regence í París, bar hann af öđrum skákmönnum. Eftir hann liggur mikiđ verk á sviđi skákbókmennta og nafn hans tengist mörgum snjöllum endataflslausnum. Hagnýtt dćmi sem hann leysti er ţegar upp kemur stađa ţar sem annar ađilinn hefur kóng, hrók og biskup gegn kóng og hrók. Tiltölulega einfalt er ađ verjast međ hrókinn í nćsta námunda viđ kónginn en stundum villast menn í hina svonefndu Philidor-stöđu". Ţar liggur lausnin m.a. í dularfullum biskupsleik.
Á heimsbikarmóti FIDE sem stendur yfir ţessa dagana í Khanty Manyisk í Síberíu hafa fjölmargir skákmenn sýnt frábćra takta. Ţar eru fremst í flokki Vasilí Ivantsjúk og Judit Polgar. Hún hóf ţátttöku sína međ 2:0 sigri yfir lítt ţekktum skákmanni en síđan lagđi hún ađ velli Movsesian og Karjakin ađ velli. Í 4. umferđ vandađist máliđ, hún tapađi fyrri skákinni gegn Kúbverjanum Dominguez og varđ ađ vinna ţá seinni međ svörtu. Eftir 95 leiki var Philidor-stađan" komin upp:
Dominguez - Polgar
Lausnarleikur Philidor.
97. Hg4 Hb5 98. Hg3 Bd3 99. Hg4 Hb1 100. Hg2 Hb3+ 101. Ka4 Hb5 102. Hg4 Hf5 103.Ka3 Hf1 104. Hg2 Hb1 105. Hh2 Bf5 106. Hg2 Bd3 107. Hh2 Bf1 108. Hf2
Eđa 108. Ka2 Hb5 109. Ka1 He5 og engin vörn finnst viđ hótuninni 110. Ha5+ og 111.Bd3+ og mátar.
108. ... Bc4 109. Hf3 Bd3 110. Hf2 Hb3 111. Ka2 Hb6 112. Ka1 Hg6
og Dominguez gafst upp.
Til ađ útkljá ţetta spennandi einvígi var fyrst gripiđ til at-skákar, 25 10. Enn jafnt 1:1. Aftur jafnt eftir hrađskákir 10 10. Í ţeirri fyrri sleppti Judit gjörsamlega fram af sér beislinu og náđi mátsókn. Hćgt er ađ sanna ađ hún hafi veriđ međ tapađ tafl frá 21. - 27. leik en heppnin fylgir hörkunni.
Judit Polgar - Lenier Dominguez
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bc4
Ein hvassasta leiđin gegn Najdorf-afbrigđinu.
6. ... e6 7. O-O b5 8. Bb3 Be7 9. Df3 Db6 10. Be3 Db7 11. a3 O-O 12. Hae1 Bd7 13. g4 Rc6 14. g5 Re5 15. Dg2 Rh5 16. f4 Rc4 17. Bxc4 bxc4 18. f5 g6 19. Rce2 e5 20. f6 Bd8 21. Rf5!?
Ţó ţessi fórn standist ekki" ţá kom varla nokkrum á óvart ađ hún skyldi grípa til hennar.
21. ... gxf5 22. Rc3 Kh8! 23. Dh3 Rf4
Á ađ duga til sigurs en einfaldara var 23. ... Rxf6! 24. gxf6 f4 og svartur vinnur.
24. Bxf4 exf4 25. Hxf4 Hg8 26. Hh4 Hxg5 27. Kf1 Bxf6??
Í 10 mínútna skák er erfitt ađ átta sig á muninum á ţessum leik og 27. .. Kg8. Eftir 28. Hxh7 Bxf6 29. Rd5 Bg7! vinnur svartur.
28. Rd5 Dxb2?
Eftir 28. .. Bg7 getur hvítur leikiđ 29. Re7!
29. Hxh7 Kg8 30. Dh6!
Hér loks rann upp fyrir Dominguez ađ 30. ... Hg6 eđa 30. ... Bg7 strandar á 31. Hh8+! Bxh8 32. Re7 mát!
30. ... Bd8 31. e5!
Línurof. Svartur er varnarlaus.
31. ... Hg1+ 32. Kxg1 Dd4+ 33. Kf1
- og Dominguez gafst upp.
Eftir ađ Dominguez jafnađi metin var gripiđ til tveggja hrađskáka, 5 3. Fyrst jafntefli og svo vann Judit og samanlagt ţví
4 ˝ : 3 ˝. Magnađ einvígi. Eftir standa átta skákmenn af 128 sem hófu keppni: Ivantsjúk, Grischuk, Svidler, Ponomariov, Gashimov, Radjavov, Navara og Judit Polgar.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
-------------------------------
Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is u.ţ.b. viku síđar en í blađinu sjálfu.
Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum 11. september 2011.
Meginflokkur: Spil og leikir | Aukaflokkur: Skákţćttir Morgunblađsins | Breytt 17.9.2011 kl. 10:01 | Facebook
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 2
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 88
- Frá upphafi: 8778274
Annađ
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 72
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.