Leita í fréttum mbl.is

Friđrik Ólafsson tekur ţátt í sterku og fjölmennu NM öldunga í skák sem hefst í Reykjavík á laugardag

Friđrik ÓlafssonNorđurlandamót öldunga í skák fer fram í fyrsta skipti hérlendis núna í september.  Mótiđ hefst laugardaginn 10. september og lýkur ţann 18. september.  Teflt er í skákmiđstöđinni, Faxafeni 12. Mótiđ er í senn ţađ langsterkasta og fjölmennasta frá upphafi en fyrsta NM öldunga var haldiđ 1999 í Karlstad í Svíţjóđ á 100 ára afmćlisári Skáksambands Norđurlanda og hefur veriđ haldiđ á tveggja ári fresti síđan.   Svandís Svavarsdóttir, starfandi menntamálaráđherra, setur mótiđ og mun leika fyrsta leikinn í skák Friđriks en umferđin hefst kl. 14.  

Til leiks eru skráđir 55 keppendur og ţar á međal 3 stórmeistarar.  Ţar ber NM öldunga 2011nafn Friđriks Ólafssonar langhćst en ţetta er í fyrsta skipti sem Friđrik teflir á kappskákmóti hérlendis síđan 2002 ţegar hann tók ţátt í minningarmóti Jóhanns Ţóris Jónssonar og stóđ sig ţar afar vel.  Einnig taka ţátt finnsku stórmeistararnir Yrjo Rantanen og Heikki Westerinen.  Sá síđarnefndi er margfaldur Norđurlandameistari öldunga, hefur titil ađ verja og reyndar sá skákmađur í heiminum sem teflt hefur á flestum Ólympíuskákmótum.  Danski skákmađurinn Jörn Sloth tekur einnig ţátt en hann er fyrrverandi heimsmeistari í bréfskák.    

Margir öflugir og sterkir skákmenn eru einnig í heimavarnarliđinu.  Fyrir utan Friđrik taka ţátt tveir fyrrverandi Íslandsmeistarar, Gunnar Kr.Gunnarsson og Björn Ţorsteinsson.   Einnig má nefna Magnús Sólmundarson, Braga Halldórsson, Júlíus Friđjónsson, Jón Ţ. Ţór, Ólaf Kristjánsson, Ţór Valtýsson og Jóhann Örn Sigurjónsson. 

Öldungaskák hefur vaxiđ mikiđ hérlendis og erlendis síđustu ár og er ţá átt viđ karla 60 ára og eldri og konur yfir fimmtugt.  Ţađ er fagnađarefni ađ nú er teflt vikulega í mörgum öldungaklúbbum hér enda sannađ mál ađ skák er heilsubót, ekki síst fyrir eldri borgara. 

Teflt verđur daglega og flestar umferđir hefjast kl. 14.   Átta skákir í hverri umferđar verđa sýndar beint á netinu.   

Enn er opiđ fyrir skráningu í mótiđ!


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 21
  • Sl. viku: 97
  • Frá upphafi: 8778303

Annađ

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 74
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband