Leita í fréttum mbl.is

Skákhátíđ á Menningarnótt

P1010093

Ţađ má međ sanni segja ađ veđriđ hafi leikiđ viđ fjölmarga gesti og ţátttakendur á Skákhátíđ Skákakademíunnar á Menningarnótt. Sólin skein svo glatt ađ dagskráin var fćrđ út á stéttina viđ Tjarnargötuna.

Stefán leifturfljótur

P1010067

Gleđin hófst svo međ Reykjavíkurmótinu í Leifturskák 2011. Átta grjótharđir keppendur tefldu tvöfalda umferđ allir viđ alla. Lćtin voru mikil enda keppendur bara međ eina mínúta á klukkuna fyrir alla skákina. Fjölmargir áhorfendur fylgdust međ miklum klukkubarningi og fljúgandi taflköllum í allar áttir. Fyrir síđustu umferđina voru Stefán Kristjánsson og Björn Ţorfinnsson efstir međ 10 vinninga og mćttust í lokaumferđinni. Ađrar skákir umferđarinnar voru klárađar fyrst og svo tefldu ţeir félagar. Fór svo ađ Stefán lagđi Björn tvíveigis og telst ţví hrađasti skákmađur Reykjavíkur. Gaman hefđi veriđ ađ sjá Arnar Gunnarsson međal keppenda en hann átti ekki heimangengt. Ađrir keppendur voru: Hjörvar Steinn, Halldór Brynjar, Jón Viktor, Vignir Vatnar, Oliver Aron og Ingvar Ţór.

Myndbandiđ frá skák Stefáns og Björns er tekiđ af Jóni Viktori Gunnarssyni

 

Hrafn og Guđlaug einvígismeistarar 

P1010110Í nćsta viđburđi var Hrafn Jökulsson í fríđum hópi kvenna: Guđlaug Ţorsteinsdóttir og Inga Birgisdóttir eru báđar fyrrverandi Íslandsmeistarar kvenna og tefldu ţćr hrađskákeinvígi; Guđlaug viđ Doniku Kolica og Inga viđ Hrafn. Hinn mikli sóknarskákmađur Hrafn Jökulsson lagđi Ingu Birgis 3-1 og hin reynda Guđlaug sigrađi hina efnilegu Doniku örugglega.

 

Dráttur á Menningarnótt  

P1010133Fyrri hluti Íslandsmótsins í skák fer fram eftir nokkrar vikur. Ţví var kominn tími á ađ draga í töfluröđ í 1. og 2. deild. Fjölmargir forsvarsmenn félaganna voru mćttir í dráttinn sem forseti SÍ Gunnar Björnsson stjórnađi. Á međan á drćttinum stóđ var sýnd upptaka af síđustu skák Jóhanns Hjartarsonar gegn Viktori Kortsnoj í St.John í Kanada 1988. Ţađ var skemmtileg stund enda Jóhann sjálfur á stađnum. 

Hrund náđi jafntefli gegn stórmeistaranum 

Nćsti viđburđur var einmitt fjöltefli Jóhanns gegn P1010139Rimskćlingum og Vigni Vatnari Stefánssyni. Rimaskóli teflir senn á NM barna- og grunnskólasveita  og Vignir fer á Evrópumót barna í Búlgaríu í september. Mikill fjöldi fylgdist međ fjölteflinu enda Jóhann enn landsţekktur fyrir skákafrek sín á fyrri árum. Hrund Hauksdóttir tefldi einna best krakkanna og náđi jafntefli en Jóhann vann allar hinar sex skákirnar.

 

Nansý sigrađi í Stelpuskák

P1010217Ţađ voru nokkrar kynslóđir skákkvenna sem sameinuđust í Stelpuskákinni sem var nćst á dagskrá. Sigurlaug Regína Friđţjófsdóttir komst fyrst í kvennalandsliđ íslands fyrir rúmum ţremur áratugum - áđur en allir hinir keppendurnir fćddust. Inga Birgisdóttir varđ Íslandsmeistari kvenna 1999 og Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir tók titilinn um áratug síđar. En sú sem stóđ  uppi sem sigurvegari í Stelpuskákinni er víst ekki fćdd fyrren 2002! Nansý Davíđsdóttir varđ hálfum vinningi á undan Ingu, Hallgerđi og Tinnu Kristínu; fékk 6.5 vinning úr átta skákum. Ađrir keppendur voru: Donika Kolica, Veronika Steinunn Magnúsdóttir, Elín Nhung og Hrund Hauksdóttir.


Víkingar tefla 

Víkingaskák hefur náđ nokkrum vinsćldum á síđustu árum og hefur Víkingaklúbburinn styrkst P1010225töluvert fyrir baráttuna í 2. deild á komandi vetri. Nokkrir félagar í klúbbnum mćttu til leiks og sýndu Víkingaskák og hennar helstu brellur og brögđ.

 

Ugla mátađi Máta  

Hinir vösku Mátar ráku svo lokahöggiđ á ţennan skemmtilega dag í Skákakademíunni. Blésu ţeir félagar til hrađskákmóts međ nokkrum gestum. Hart var barist ađ hćtti Máta en fór svo ađ lokum ađ gestrisnin hafđi yfirhöndina ţar sem Jón Viktor Gunnarsson hafđi tryggt sér sigur í mótinu fyrir síđustu umferđ. Bestur Máta var eins og oft áđur einn besti Drekaskákmađur landsins Arnar Ţorsteinsson.

Bjössi bóksali mćtti 

P1010119

Fyrir utan alla ţessa viđburđi var Sigurbjörn bóksali međ sölu á skákbókum og einvígisborđiđ frá Fischer - Spassky vakti athygli og raunar tilfinningauppnámi nokkurra útlendinga! Fjölmargir skákforeldrar litu svo viđ og kynntu sér starfssemi Skákakademíunnar sem senn hefur skákkennslu sína í skólum Reykjavíkur enda nýtt skólár ađ ganga í garđ.

Dagurinn heppnađist í alla stađi vel og skákdagskrá á menningarnótt er komin til ađ vera.

Myndaalbúm


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 92
  • Frá upphafi: 8778323

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband