Leita í fréttum mbl.is

„Okkar efnilegasta skákkona“

Joshuna og NansýNansý Davíđsdóttir, sem er ađeins níu ára og stundar nám viđ Rimaskóla í Reykjavík, ţykir ein efnilegasta skákkona landsins. Reyndir menn segja ađ enginn geti gengiđ út frá ţví sem vísu ađ vinna Nansý, á hvađa aldri sem hann er.

„Ég byrjađi ađ tefla í skólanum ţegar ég var sjö og hálfs árs. Mamma mín vildi ađ ég lćrđi skák ţví ţađ vćri gott fyrir heilann. Mér finnst gaman ađ tefla af ţví ég fć alltaf verđlaun," segir Nansý. Stćrđfrćđi er uppáhaldsfagiđ hennar í skólanum en hún stundar líka dans. Nansý er Íslandsmeistari međ Rimaskóla, Íslandsmeistari stúlkna 2011 og hefur veriđ virk í ţjálfun hjá Skákakademíu Reykjavíkur og Skákskóla Íslands.

Ćtlar ađ kenna bróđur sínum

„Ég ćtla ađ kenna bróđur mínum skák ţegar hann verđur átta ára," segir Nansý en bróđir hennar er fimm ára. „Ég ćtla ađ vera skákkennari ţegar ég er orđin stór... nei, skákmeistari!" segir Nansý stolt, en hún stendur sig afburđavel í skólanum og er mjög fljót ađ klára námsefniđ ađ sögn skólastjóra Rimaskóla, Helga Árnasonar. Foreldrar Nansýar eru kínversk og hún talar líka kínversku en finnst svolítiđ erfitt ađ skrifa máliđ. Skemmtilegast finnst henni ađ tefla. „Ég er búin ađ tefla og fara á ćfingar í allt sumar," segir Nansý.

Á heimsmćlikvarđa

„Hún er efnilegasta skákkonan í dag, ţađ er ekki spurning, ţetta er alveg stórmerkileg stelpa, rosalega öguđ og einbeitt, alveg einstök," segir Gunnar Björnsson, formađur Skáksambands Íslands.

„Hún hefur gott auga fyrir taktík og getur náđ mikilli einbeitingu viđ borđiđ," segir Stefán Bergsson, ćskulýđsfulltrúi hjá Skáksambandi Íslands. Hún er komin í skáksveit Rimaskóla og mun taka ţátt í Norđurlandamóti barnaskólasveita. Helgi segir ađ henni hafi einnig veriđ bođiđ ađ taka ţátt í Evrópumeistaramóti unglinga í haust. „Hún virđist vera međ miklu meiri fćrni en gengur og gerist og er greinilega svakalega gáfuđ, hefur gott skap og metnađ. Viđ getum mátađ hana viđ bestu skákmenn heims á hennar aldri," segir Helgi.

Markmiđ Skáksambands Íslands er ađ fylgja henni vel eftir," segir Helgi. Norđurlandamót barnaskólasveita verđur haldiđ í Danmörku 8. til 11. september nćstkomandi.

-------------------------------------

Grein ţessi birtist á baksíđu Morgunblađsins, föstudaginn, 12. ágúst.   Maríu Elísabetu Pallé, sem skrifađi greinina, Árna Sćberg, og sjálfu Morgunblađinu er ţakkađ kćrlega fyrir ađ leyfa birtingu hér á Skák.is.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 93
  • Frá upphafi: 8778324

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband