Leita í fréttum mbl.is

Héðinn tapaði í sjöttu umferð í Boxtel - Giri efstur á hollenska meistaramótinu

Héðinn SteingrímssonStórmeistarinn Héðinn Steingrímsson (2569) tapaði fyrir hollenska alþjóðlega meistaranum Manuel Bosboom (2401) í sjöttu umferð opins mót í Boxtel í Hollandi, sem fram fer samhliða hollenska meistaramótinu.  Héðinn hefur 4 vinninga og er í 4.-7. sæti.  Í sjöundu umferð, sem fram fer á morgun, teflir Héðinn við Roland Daamen (1858).   Alþjóðlegi meistarinn David Miedema (2409) er efstur með 5½Anish Giri vinning.   Anish Giri (2687) náði forystunni á hollenska meistaramótinu eftir að Sokolov (2645) lagði Spoelman (2564) sem var efstur fyrir umferðina.   Þar er mikil spenna þar sem efstu menn eiga mikið eftir að mætast.  

Staða efstu manna á hollenska meistarmótinu:

  • 1. Giri (2687) 4½ v.
  • 2.-4. Ernst (2596), Spoelman (2564) og Swinkels (2483) 4 v .
  • 5. Sokolov (2645) 3½ v.
31 skákmaður tekur þátt í móti Héðins og þar á meðal 2 stórmeistarar og 2 alþjóðlegir meistarar.  Héðinn er stigahæstur keppenda.   Á hollenska meistaramótinu eru Anish Giri (2687) og Ivan Sokolov (2645) meðal keppenda.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 87
  • Frá upphafi: 8778242

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 64
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband